Skipulag og stjórnun

SKIPULAG OG STJÓRNUN

Námskeiðslýsing

Fjallað er um skipulagsheildir, einkenni þeirra og uppbyggingu. Helstu viðfangsefni í stjórnun fyrirtækja og stofnana eru kynnt og rædd með tilliti til rekstrarumhverfis og breytinga í atvinnulífi. Skoðuð er stefna og stefnumótun skipulagsheilda, grunnatriði stjórnskipulags, ytra umhverfi fyrirtækja, tengsl á milli og innan fyrirtækja, æviskeið fyrirtækja og menning skipulagsheilda sem og siðferðisleg gildi. Fjallað er um þróun og breytingar skipulagsheilda, ákvarðanatökur og ákvarðanatökuferli, ágreining og vald innan fyrirtækja og ný viðfangsefni í rekstri og skipulagi skipulagsheilda.

 

Hæfniviðmið

Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemendur:

  • Hafi þekkingu á höfuðviðfangsefnum stjórnunar, þ.e. áætlanagerð, skipulagningu, forystu og eftirliti og geri sér grein fyrir samhengi þessarra þátta í rekstri skipulagsheilda.
  • Hafi skilning á fjölbreytileika viðfangsefna í stjórnun og að takast megi á við þau með mismunandi sjónarhorn og lausnir í huga.
  • Nemendur skilji einnig mikilvægi stjórnunar í skipulagsheildum og átti sig á samhengi stjórnkerfis fyrirtækis og rekstrarárangurs.

 

Námsmat

TBA

 

Kennsluaðferðir

Fyrirlestrar, verkefnavinna og umræður

 

Lesefni

Hitt, Black, Porter. (2009). Management. Greinar og annað efni frá kennara.

 

Kennari

Hrefna S Briem, MSc, forstöðumaður BSc náms í viðskiptafræði.

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt á haustönn 2010.
Námskeiðið hefst 27. september
Kennsla fer fram á mánudögum og fimmtudögum kl.16:30-20:00 og einn laugardag í mánuði á milli kl.9:00-13:00.
Námskeiðinu lýkur 28. október.

 

Verð kr. 77.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur til 21. september 2010.

 

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Þetta námskeið gefur ekki ECTS einingar en er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica