Samskiptahæfileikar

Námskeiðslýsing

Nemendur æfa grunnatriði framkomu. Farið er í líkamstjáningu, útgeislun, raddbeitingu og framsögn. Kennd er textauppbygging fyrir fyrirlestra, greinar og fréttatilkynningar. Nemendur fá æfingu í ræðuflutningi og kynningum auk þess sem farið verður í samskipti við fjölmiðla og framkomu í sjónvarpi, útvarpi, fréttum og viðtalsþáttum með æfingum fyrir framan upptökuvél.

 

Hæfniviðmið

Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemendur:
 
  • séu færir um að koma fram og tjá sig fyrir framan hóp.
  • hafi færni í að koma fram fyrir eigin hödn eða hönd fyrirtækis við hin ýmsu tilefni í fjölmiðlum.
 

Námsmat

20% mæting
80% verkefni

 

Kennsluaðferðir

Kennsla verður í formi verkefnavinnu, æfinga fyrir framan myndavél, umræðna og kynninga.

 

Lesefni

Námsefni dreift af kennara.

 

Kennari

María Ellingsen,  BA í leiklist frá New York Háskóla, leikstjóri og fjölmiðlakona.

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á haustönn 2011.
Námskeiðið hefst  30. nóvember.
Kennt er á miðvikudögum kl.17:00 - 20:00 og laugardögum kl.9:00 - 13:00.
Námskeiðinu lýkur í desember 2011.

 

Verð kr. 54.000,-

 

SÆKJA UM HÉR 

* Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2011.

 

Inntökuskilyrði

Stúdentspróf eða sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár.

 

Mat námskeiðs til eininga

Þetta námskeið veitir ekki ígildi ECTS eininga. 

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
soleyjons@ru.is
Sími: 599 6341
www.opnihaskolinn.is








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica