Samkeppnishæfni og útrás

STEFNUMÓTUN OG SAMKEPPNISHÆFNI FYRIRTÆKJA OG ÞJÓÐA

Námskeiðslýsing

Útrás og alþjóðavæðing koma við sögu flestra stærstu fyrirtækja á Íslandi. Því er skilningur á stefnumótun og vaxtarmöguleikar og á hverju þessir þættir byggjast mikilvægur stjórnendum fyrirtækja. Í námskeiðinu verður farið í forsendur í stefnumótunarvinnu að úrás. Skoðum vaxtamöguleika fyrirtækja m.t.t. samruna og yfirtaka. Samkeppnislögum verða gerð skil og hvaða hindranir kunna að vera í veginum. Metum samkeppnishæfi og möguleika í alþjóðavæðingu hjá íslenskum fyrirtækjum. Í kennslunni verður tekið dæmi af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum og skoðum hvernig þau hafa borið sig að í útrásinni.

 

Hæfniviðmið

Að nemendur kynnist

  • Hvað liggur til grundvallar samkeppnishæfni fyrirtækja
  • Samkeppnishæfni á alþjóðavísu
  • Hverjar eru forsendur fyrirtækja fyrir útrás
  • Reynslu og árangri íslenskra fyrirtækja í útrás
 

Námsmat

Hópverkefni 50%

Einstaklingsverkefni 50%

 

Kennsluaðferðir

Fyrirlestrar og umræðutímar. Aðilar úr viðskiptalífinu flytja gestafyrirlestra.

 

Lesefni

Blaða- og tímaritsgreinar

 

Kennari

Jón Snorri Snorrason, Cand.oecon frá HÍ og MS frá Essex University, lektor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á haustönn 2010.
Námskeiðið hefst 8. nóvember.
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl.16:30 - 19:30.
Námskeiðinu lýkur 20. desember.

 

Verð kr. 77.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur er til 20. október 2010.

  

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Þetta námskeið gefur ekki ECTS einngar en er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica