Nýmiðlun

NÝMIÐLUN - MARKAÐSSETNING Á NETINU

 

Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er skoðað helstu ástæður þess að markaðsfólk er í auknu mæli farið að snúa sér að Internetinu sem markaðstæki. Farið er í grunnhugtök tengd markaðssetningu á Internetinu, s.s. stefnumótun (strategy) og árangursríkrar uppbyggingu vefsíðna og vefstjórnun (implementation and practice). Farið er vandlega í gegnum helstu leiðir og nýjungar sem eru í boði á þessum vettvangi s.s. markaðssetingu á leitarvélum (SEO), vefborða, rafræn fréttabréf, markaðssetning á samfélagsvefjum ásamt því hvernig á að meta og mæla árangur í markaðsstarfi á netinu.

 

Lærdómsviðmið

Að námskeiði loknu er stefnt að því að nemendur:

  • Þekki helstu leiðir í innleiðingu og uppbygginu vefsíðna
  • Þekki helstu leiðir í markaðssetningu á Internetinu
  • Öðlist þjálfun í að nota og veita ráðgjöf í notkun Internetsins í markaðsstarfi

 

Námsmat

Tvö einstaklingsverkefni sem gilda 50 % hvor.

 

Kennsluaðferðir

Kennsla verður í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og umræðna auk þess sem gestafyrirlesarar verða fengnir að námskeiðinu.

 

Lesefni

Internet Marketing – Strategy, Implementation and Practice. Höf: Dave Chaffey, Fiona Ellis-Chadwick, Kevin Johnston & Richard Mayer. Útgáfuár: 2009.
Greinar og annað ítarefni eftir því sem við á.

 

Kennari

Gunnar Thorberg Sigurðsson, BSc Viðskiptafræði, MSc Management of eBusiness.

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á vorönn 2012
Námskeiðið hefst 18. febrúar 2012
Kennt er á miðvikudögum kl. 17:00-20:00 og laugardögum kl.9.00-13.00*
Námskeiðið lýkur með prófi 24. mars

 

Verð kr. 81.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012.

 

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Námskeiðið er á háskólastigi og samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi, en það veitir ekki ECTS einingar. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Bryndís Bjarnadóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
mailto:salomeg@ru.is
Sími: 599 6387








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica