Ný tækni

2. Grunnnám, framhaldsnámskeið

Námskeiðslýsing

Tækni er eitt af þeim atriðum sem hvað mest hefur haft áhrif á daglegt líf fólks undanfarna áratugi og aldir. Slík tækni er kölluð truflandi tækni – eða disruptive technologies þar sem hún breytir hegðun okkar. Sé litið til baka má sjá hvernig frumkvöðlar nýttu sé tækniframfarir til að búa til ný tækifæri. Sagan er full af slíkum dæmum. Markmið þessa námskeiðs er að fara yfir tækniþróun, læra af sögunni og reyna að sjá munstur til að meta nýja tækni sem er að ryðja sér til rúms núna og meta hvaða þýðingu hún hefur. Sýnt verður fram á hvernig hægt er að fylgjast með tækniþróun. Sérstakleg verður litið á þráðlaus tæki, síma og sjónvörp, en þetta eru miðlar sem eru að fá ný hlutverk. Einnig er litið á þær breytingar sem þetta hefur í för með sér og reynt er að skyggnast inn í framtíðina með því að líta á hvaða tækni verður ofan á, hvaða staðlar sigra og hvaða fyrirtæki verða leiðandi, hvaða lausnir neytendur muni kaupa og hvernig þjóðfélagið mun breytast samhliða nýjum tæknilegum möguleikum. Einnig verða fengnir gestafyrirlesarar til að kynna ýmsa tækni sem þeir eða fyrirtæki þeirra eru að vinna að. Sem annarverkefni kynna nemendur sér og rannsaka ákveðna tækni eða hugmynd og skrifa rannsóknarritgerð þar sem tæknin og möguleikar hennar koma fram.

Hæfniviðmið

Stefnt er að því að nemendur:

  • Skilji nýsköpun og þróun tækni 
  • Skilji kenningar um nýsköpun og hvernig hægt er að beita þeim.  Nemendur fá innsýn inn í tæknisögu og hver áhrif truflandi tækni getur verið, þekki nýja tækni sem eru að riðja sér til rúms og þá möguleika sem tæknin hefur, læri um þróun lausna fyrir neytendatæki eins og síma, leikjatölvur og gagnvikt sjónvarp 
  • Skilji samruna tækni geti greint og séð þróun tækni til að nýsköpunar velji sér tækni til að rannsaka og skrifa rannsóknarritgerð

Námsmat
Verkefni, miðannapróf og lokapróf

Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar, dæmatími og umræðutími

Kennari
Ólafur Andri Ragnarsson


Dagsetningar
Kennt er mánudaga kl. 10:20 - 11:55 og föstudaga kl. 13:10 - 14:45. Stofa M123, 1.hæð


Tungumál

Enska


SKRÁNING HÉR


Verð
81,000 kr,-


Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála


Nánari upplýsingar
BB-(2)



Bryndís Bjarnadóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
bryndisb@hr.is
Sími: 599-6387















Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica