MARKAÐSRANNSÓKNIR
Námskeiðslýsing
Markaðsrannsóknir ganga út á það að afla upplýsinga um neytendur og markaði. Í námskeiðinu læra nemendur að áætla, framkvæma og meta mismunandi aðferðir sem notaðar eru í greiningavinnu og liggja til grundvallar við stefnumótun fyrirtækja og annarra skipulagsheilda. Í þessu samhengi verður lögð áhersla á vísindalega aðferðafræði og mikilvægi markaðshegðunar – en það er þegar upplýsingar um hegðun markhópa og samkeppni spila lykilhlutverk í ákvarðanatöku og allri hegðun fyrirtækis. Byggt á þessu verður farið í neytendavísindi, markaðskennitölur, líkön og tækni til að greina og breyta hegðun neytenda. Einnig verður lögð áhersla á hagnýta tölfræði og í því sambandi kennt á tölfræðiforritið SPSS. Nemendur munu framkvæma eigin markaðsrannsókn, skrifa skýrslu og verja verkefnið undir lok námskeiðsins. Raunveruleg dæmi af íslenskum og erlendum markaðsrannsóknum verða fléttuð inní kennsluna, hugað að hagnýtingu þeirra og oft óvæntum niðurstöðum.
Hæfniviðmið
Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemendur:
- Hafi skilning á grunnþáttum markaðsrannsókna , svo sem eins og vísindalegri aðferðafræði, gagnrýnni hugsun og tölfræði.
- Skilji hlutverk markaðsrannsókna í rekstri fyrirtækja og stefnumótun.
- Hafi góða hugmynd um hvernig á að útbúa markaðsrannsóknaráætlun og geti fylgt henni eftir og notað niðurstöður.
- Geti notað markaðsfræði til að styrkja stefnumótun byggða á rannsóknum og örðum gögnum/heimildum.
- Skilji helstu kennitölur markaðsfræðinnar og geti metið niðurstöður markaðsrannsókna á gagnrýnan hátt.
Verkefni 60%
Lokapróf 40%
Kennsla verður í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og umræðna auk þess sem gestafyrirlesarar verða fengnir að námskeiðinu.
Aker, D. A., Kumar, V., & Day, G. S. (2006). Marketing research (9th ed.). NJ: John Wiley & Sons.
Pallant, J. (2007). SPSS Survival Manual (3. útgáfa). Berkshire: McGraw-Hill Education.
Ítarefni eftir þörfum.
Kennari
Dr. Valdimar Sigurðsson, Nova dósent í markaðsfræði, viðskiptadeild HR.
Dagsetningar
Námskeiðið er kennt á haustönn 2010.
Námskeiðið hefst 8. september.
Kennt er á miðvikudögum kl.17:00 - 20:00 og annan hvern laugardag kl.9:00 - 13:00.
Námskeiðinu lýkur 3. nóvember.
Verð kr. 82.000,-
* Umsóknarfrestur til 15. ágúst 2010
Þátttökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.
Mat námskeiðs til eininga
Þetta námskeið gefur ekki ECTS einingar en er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353

