Markaðsfræði (Akureyri)

MARKAÐSFRÆÐI

Námskeiðslýsing

Faglegt markaðsstarf er grundvöllur tekjusköpunar flestra fyrirtækja og því er skilningur á markaðsfræði mikilvægur þáttur í þekkingarsafni fyrirtækja og starfsmanna þeirra. Í námskeiðinu verður farið í gegnum grundvallaratriði markaðsfræðinnar og byggir það á fjórum meginþáttum: Að skilja grunnþætti markaðsstarfs, að greina markaðstæki, að setja saman tilboð til viðskiptavina og stýringu og framkvæmd markaðsþátta. Raunveruleg dæmi úr íslenskum og erlendum veruleika verða fléttuð inní kennsluna.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SÍMEY). Kennsla fer fram á Akureyri.

 

Hæfniviðmið

Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemendur:

  • Hafi skilning á grunnþáttum markaðsfræðinnar
  • Skilji hlutverk markaðsfræðinnar í rekstri fyrirtækja
  • Hafi góða hugmynd um hvernig á að útbúa markaðsáætlun og hvernig henni er framfylgt

 

Námsmat

Lokapróf 40%

Verkefni 60%

 

Kennsluaðferðir

Kennsla verður í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og umræðna auk þess sem gestafyrirlesarar verða fengnir að námskeiðinu. 

 

Lesefni

Marketing Management

Höfundur: KOTLER, PHILIP & KELLER, KEVIN LANE

Útgefandi: PRENTICE HALL

Útgáfuár: 2009, 13th ed.

Ítarefni eftir þörfum.

 

Kennari

Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, MA Marketing Management. Lektor við viðskiptadeild Háskólans á Akureyri.

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt á haustönn 2010.
Námskeiðið hefst 30. september.
Kennt er á fimmtudögum kl.17:00 - 20:00 og laugardögum kl.9:00 - 13:00.
Námskeiðinu lýkur 4. nóvember.

 

Verð kr. 77.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur til 23. september 2010

 

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Þetta námskeið gefur ekki ECTS einingar en er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica