AÐ LEIÐA VERKEFNI - LEIÐTOGAÞJÁLFUN, MANNAUÐUR, FUNDARSTJÓRNUN
Námskeiðslýsing
Verkefnastjórnun snýst um að stýra hópi fólks. Í þessu námskeiði lærir nemandinn að leiða teymi til árangurs með öguðum vinnubrögðum. Kennd verður fundarstjórnun, hugarflug og ýmsar greiningaaðferðir til að komast skjótt að kjarna málsins s.s. areto, SVÓT og Ishikawa. Stutt kynning verður á stefnumótun og samningatækni en ekki verður farið djúpt í þau fræði þar sem vort fag tekur heilt námskeið. Áhersla er lögð á leiðtogafræðin, fjallað er m.a. um mismunandi leiðtogastíla, teymisvinnu með ólíku fólki og eðli leiðtogans.
Lærdómsviðmið
- Að nemendur læri að stjórna hópi manna með markvissum og öguðum aðferðum til að greina megi aðalatriði frá aukaatriðum á skjótan hátt.
- Að nemendur hugi að persónulegri þróun sinni í lífi og starfi, sem leiðtogar í verkefnateymi.
- Að nemendur öðlist þekkingu í samningatækni sem þeir geti nýtt sér
- Að nemendur átti sig á því að verkefni verða oft til út frá stefnumótun
- Að nemendur þekki mismunandi leiðtogastíla
Námsmat
Þátttaka 5%.
Hópverkefni 25%.
Einstaklingsverkefni 15%.
Próf 55%.
Kennsluaðferðir
Hljóðfyrirlestrar, verkefnavinna, umræðuþræðir og staðarlota í upphafi námskeiðs.
Lesefni
Project Leadership Höf: James P. Lewis. Útgáfuár: 2003. Útgefandi: McGraw.
Ítarefni og greinar frá kennara.
Kennari
Kristín Leópoldína Bjarnadóttir, B.Sc., B.Ed, MPM.
*Ath. birt með fyrirvara um breytingar
Dagsetningar
Námskeiðið er kennt í fjarnámi á vorönn 2013.
Námskeiðið hefst 8. janúar 2013.
Fyrirlestrar eru settir inn á heimasvæði nemenda á þriðjudögum og fimmtudögum.
Staðarlota verður haldin í Reykjavík laugardaginn 12. janúar 2013.
Námskeiðinu lýkur með heimaprófi 9. febrúar 2013.
Verð kr. 87.000,-
* Umsóknarfrestur er til 1. janúar 2013.
Þátttökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.
Mat námskeiðs til eininga
Námskeiðið er á háskólastigi, það samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi og veitir ígildi 6 ECTS eininga við Tækni- og verkfræðideild HR í grunnnámi. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Kamilla Reynisdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
kamillar@ru.is
Sími: 599 6398

