Nýmiðlun

Framleiðsla og gæðastjórnun

FRAMLEIÐSLA OG GÆÐASTJÓRNUN

 

Námskeiðslýsing

Nemandinn mun læra að byggja upp stefnumiðað gæðakerfi og verður einkum horft til ISO-9000 staðlaraðarinnar. Nemandinn lærir að semja verklagsreglur, gera flæðirit og byggja upp tölfræðilega gæðastýringu. Þá verður kennd framleiðslustjórnun þar sem kennd er aðfangastjórnun, birgðastýring, gerð framleiðsluspáa og framleiðslubestun.

 

Lærdómsviðmið

Nemendur læra að greina framleiðsluferli með það að leiðarljósi að það verði sem hagkvæmast og tryggi viðskiptavininum umsamin gæði.

 

Námsmat

Verkefni 30%.
Lokapróf 70%.


Kennsluaðferðir

Hljóðfyrirlestrar, verkefnavinna, umræðuþræðir og staðarlota.


Lesefni

Operations Management  (2010)

Höf. Nigel Slack, Stuart. Chambers, Robert Johnston. Útgáfa: 6th

 

Kennari
Hlynur Stefánsson BSc, MSc, PhD. Lektor við Tækni- og verkfræðideild HR.


*Ath. birt með fyrirvara um breytingar


 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  í fjarnámi á vorönn 2012
Námskeiðið hefst 16. febrúar 2012
Fyrirlestrar eru settir inn á heimasvæði nemenda á þriðjudögum og fimmtudögum
Staðarlota verður haldin í Reykjavík laugardaginn 18. febrúar 2012
Námskeiðinu lýkur með prófi 24. mars 2012

 

Verð kr. 87.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2013.

 

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Námskeiðið er á háskólastigi, það samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi og veitir ígildi 6 ECTS eininga við Tækni- og verkfræðideild HR í grunnnámi. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Kamilla Reynisdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
kamillar@ru.is
Sími: 599 6398








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica