FLUTNINGASTJÓRNUN
Námskeiðslýsing
Á námskeiðinu verður farið yfir þróun flutningastjórnunar og flutningatækni og helstu hugtök kynnt. Meðal efnis verður sjóflutningakerfi, landflutningar og flugflutningar, umhverfi flutningafyrirtækja og samkeppnisþættir. Farið er yfir dreifingaleiðir, tíðni flutninga og alþjóðlega flutninga með áherslu á flutninga til og frá Íslandi og innanlands. Fjallað verður um flutningatækni, geymslutækni, forflutninga og framhaldsflutninga, samskipti við birgja, tollayfirvöld og hafnarfyrirtæki svo og upplýsingatækni í flutningum.
Farið er yfir þróun flutninga og alþjóðleg áhrif. Einnig áhrif reglubundinna flutninga og mikilvægi áætlanagerðar í flutningarekstri. Hafnir fyrir flug og sjóflutninga, svo og flutningamiðstöðvar, flutningsmiðlanir og frísvæði verða kynnt.
Farið er yfir það hvernig íslensk flutningastarfsemi virkar og hvernig flutningum er háttað við helstu viðskiptalönd Íslands. Gæðamál, tjóna- og öryggismál, skipulagning flutninga, stefnumótun, stjórnun og eftirlit fyrirtækja í flutningarekstri eru meðal efnis í náminu. Lög og skilmálar um flutninga og viðskipti (INCO terms, Liner terms ofl) eru tekin fyrir og á námskeiðinu er lagður grunnur fyrir næstu námskeið í námsleiðinni.
Lærdómsviðmið
Við lok námskeiðs ættu nemendur að:
- Þekkja grundvallarhugtök í flutningafræðum
- Þekkja flutninga- og viðskiptaskilmála
- Gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar stjórnunar og skipulags í flutningum.
Námsmat
50% verkefni (einstaklings- og hópaverkefni)
50% lokapróf
Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar, umræður og verkefnavinna auk gestafyrirlestra.
Lesefni
Glærur, greinar og annað ítarefni frá kennara.
Kennari
Kristján M. Ólafsson, hagverkfræðingur.
Dagsetningar
Námskeiðið er kennt á vorönn 2012
Námskeiðið hefst 23. janúar 2012
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:30-20:00
Námskeiðinu lýkur með prófi 27. febrúar 2012
Verð kr. 81.000,-
SÆKJA UM HÉR
* Umsóknarfrestur er til 16. janúar 2012.
Þátttökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.
Mat námskeiðs til eininga
Námskeiðið er á háskólastigi og samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi, en það veitir ekki ECTS einingar. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Elísabet Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
elisabet@ru.is
Sími: 599 6296

