Almannatengsl

ALMANNATENGSL, GRUNNREGLUR OG STOÐIR

 

Námskeiðslýsing

Leggur fræðilegan grunn fyrir vinnu við almannatengsl á skipulegan og gagnsæjan hátt. Farið verður í hvernig fyrirtæki geta notað almannatengsl til að móta áhrifaríka stefnu til framtíðar og samband almannatengsla og ímyndar, sjálfsmyndar og orðspors fyrirtækja. Einnig verður unnið á áþreifanlegan hátt með hugtök eins og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, krísustjórnun og innri samskipti.

Áhersla verður lögð á innri og ytri samskipti fyrirtækja og stofnana sem og samskipti og boðleiðir fyrir ólíka hlutaðeigendur, s.s. viðskiptavini, fjárfesta, starfsmenn, fjölmiðla og hið opinbera.

 

Lærdómsviðmið

Að nemendur:

  • Öðlist hagnýtan skilning á almannatengslum og með hvaða hætti þau eru stunduð í samfélaginu, hjá hinu opinbera og hinum ýmsu skipulagsheildum
  • Séu færir um að nýta þekkingu sína á almannatengslum í atvinnulífinu að námi loknu
  • Séu færir um að vera með "real pitch"
     

Námsmat

30% Hópverkefni

70% Einstaklingsverkefni

 

Kennsluaðferðir

Kennsla verður í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og umræðna auk þess sem gestafyrirlesarar verða fengnir að námskeiðinu.

 

Lesefni

Exploring Public Relations. Yeomans and Tench (2nd Edition, 2009).

 

Kennari

Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir, Msc. Samskiptastjóri hjá NASDAQ OMX Iceland (Kauphöllin).

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á vorönn 2012
Námskeiðið hefst 28. mars 2012
Kennt er á miðvikudögum kl. 17:00-20:00 og laugardögum 9:00-13:00
Námskeiðinu lýkur með prófi 5. maí 2012

 

Verð kr. 81.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur er til 14. mars 2012

  

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Námskeiðið er á háskólastigi og samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi, en það veitir ekki ECTS einingar. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Bryndís Bjarnadóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
bryndisb@ru.is
Sími: 599 6387








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica