AÐFERÐIR VIÐ ÁKVARÐANATÖKU - AÐFERÐIR OG ÁHÆTTA
Námskeiðslýsing
Nemandinn mun læra grunnatriði tölfræðinnar s.s. að reikna meðaltöl og frávik. Þá mun hann læra til hvers tölfræðilegar reiningar eru notaðar við ákvörðunartöku, hvernig ákvörðunartré eru byggð upp og óvissa reiknuð til fjár. Einnig mun nemandinn læra að byggja upp ákvörðunarlíkön og hvernig áhætta er minnkuð í verkefnum og fjármálagjörningum.
Lærdómsviðmið
Helsta markmið námskeiðsins er að kenna nemendum aðferðir til að taka bestu mögulegu ákvörðun þegar óvissa ríkir um niðurstöðuna.
- Kenna nemendum beitingu einfaldrar tölfræði við ákvörðunartöku og áhættugreiningar.
- Kynna fyrir nemendum hvernig ofmat/vanmat á mannlegum þáttum skiptir máli við ákvörðunartöku.
- Kenna nemendum helstu aðferðir ákvörðunargreininga.
- Kenna nemendum að byggja upp einföld líkön til að styðja ákvörðunartökuna t.d. í Excel og Crystal Ball.
Kennsluaðferðir
Hljóðfyrirlestrar, verkefnavinna, staðarlota og umræðuþræðir.
Námsmat
Verkefni 50%.
Próf 50%.
Lesefni
Ítarefni frá kennara.
Bendum á bókina: Áhætta, ákvarðanir og óvissa (JPV) – eftir Þórð Víking Friðgeirsson.
Kennari
Sigurjón Hákonarson, BSc, MSc. Tölvunarfræði. Viðskiptastjóri stærri fyrirtækja hjá Microsoft á Íslandi.
*Ath. birt með fyrirvara um breytingar
Dagsetningar
Námskeiðið er kennt á vorönn 2013.
Námskeiðið hefst 26. mars 2013
Hljóðfyrirlestrar eru settir inn á samskiptanet nemenda á þriðjudögum og fimmtudögum.
Námskeiðinu lýkur með heimaprófi 4. maí 2013.
Verð kr. 87.000,-
* Umsóknarfrestur er til 24. mars 2013.
Þátttökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.
Mat námskeiðs til eininga
Námskeiðið er á háskólastigi, það samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi og veitir ígildi 6 ECTS eininga við Tækni- og verkfræðideild HR í grunnnámi. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Kamilla Reynisdóttir
Verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum í HR
kamillar@ru.is
Sími: 599 6398

