Námskeiðslýsing
Nemendur læra að undirbúa og afmarka verkefni og setja fram tölusett markmið um árangur. Áhersla er lögð á að skilja hvað viðskiptafæri (business case) verkefnis er. Þá mun nemandinn læra gerð tímaáætlana, greiðslustreymisáætlana, kostnaðaráætlana og hvernig þessar áætlanir eru tengdar saman í heilstæða vörðumarkaða verkefnisáætlun. Þá mun nemandinn læra að byggja upp framvindueftirlitskerfi til að mæla mismun á raunverulegum tölum og áætluðum tölum. Loks mun nemandinn læra að ljúka verkefnum og gera þau upp þannig að læra megi af mistökum og festa góðan árangur í sessi. Í þessu námskeiði verður einnig minnst á verkefnisstjórnunarumhverfið PRINCE2.
Námskeiðið er hluti af námsbraut í verkefnastjórnun og er kennt í fjarnámi.
Hæfniviðmið
Að loknu námskeiðinu verður nemandinn með vandaða grundvallarþekkingu á beitingu aðferðum verkefnastjórnunar við að undirbúa, skipuleggja, framkvæma og ljúka meðalstórri eða stærri framkvæmd.
Námsmat
Lokapróf 40%
Verkefni 60%
Kennsluaðferðir
Hljóðfyrirlestrar, verkefni, dæmi, umræðuþræðir, viðtalstímar við kennara og staðarlota.
Lesefni
Project Management
Höf: Gray and Larson
Útgáfa: 4.
Útgáfuár: 2007
Kennari
Þórður Víkingur Friðgeirsson MSc, CPM. Lektor við Tækni- og verkfræðideild HR.
Dagsetningar
Námskeiðið verður kennt í fjarnámi á haustönn 2012.
Námskeiðið hefst 13. september.
Námskeiðinu lýkur með prófi í október.
Verð kr. 81.000,-
* Umsóknarfrestur til 30. ágúst 2012.
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn:
- Staðfest afrit prófskríteina verða að fylgja umsókn svo að hún sé tekin gild.
- Meðmælabréf (kostur en ekki skylda).
- Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar eftir inngöngu.
Fylgigögnum umsókna er hægt að skila rafrænt með umsókn eða beint til verkefnastjóra námsins.
Mat námskeiðs til eininga
Námskeiðið er metið til 6 ECTS eininga inn í grunnnám við tækni- og verkfræðideild HR að undangengnum reglum deildarinnar um mat á fyrra námi. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Kamilla Reynisdóttir
Verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum
kamillar@ru.is
Sími: 599 6398

