Í boði eru hagnýt námskeið á háskólastigi samhliða vinnu. Námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja auka samkeppnishæfni sína og bæta við sig þekkingu án þess að fara í fullt nám. Námskeiðin henta meðal annars þeim sem stefna á grunnám á háskólastigi og jafnframt þeim sem þegar hafa lokið háskólamenntun og hafa áhuga á að ná sér í dýpri þekkingu eða þekkingu af öðru fagsviði.
STÖK NÁMSKEIÐ Á HÁSKÓLASTIGI
|
STÖK NÁMSKEIÐ ÚR NÁMSBRAUTUM Samhæfð markaðssamskipti - 11. janúar Flutningastjórnun - 23. janúar Framleiðsla og gæðastjórnun - 16. febrúar |
NÁMSKEIÐ TIL ECTS EININGA Í SAMSTARFI VIÐ Tölvunarfræðideild, BSc nám Tölvunarfræðideild, MSc nám Agile - hugbúnaðarþróun - 9. janúar Modeling and Vertification - 9. janúar |
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár. Þátttakendur námskeiða á meistarastigi skulu hafa lokið viðeigandi BSc/BA prófi.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn:
- Staðfest afrit prófskríteina verða að fylgja umsókn svo að hún sé tekin gild.
- Meðmælabréf (kostur en ekki skylda).
- Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar eftir inngöngu.
Fylgigögnum umsókna er hægt að skila rafrænt með umsókn eða beint til verkefnastjóra námsins.
Mat námskeiða til eininga
Námskeið sem haldin eru í samstarfi við eina af hinum fjóru akademísku deildum HR veita ECTS einingar.
Önnur stök námskeið á háskólastigi hjá Opna háskólanum veita ekki ECTS einingar nema annað sé tekið fram, en samsvara um 150 - 180 klst í vinnuframlagi*. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fjóru akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
*Á bakvið hverja ECTS einingu sem akademísk deild veitir eru um 25 - 30 klst í vinnuframlag.
Nánari upplýsingar:
Elísabet Þorvaldsdóttir,
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
elisabet@hr.is
Sími: 599 6296

