Staðarlotur eru haldnar einu sinni á hverju námskeiði og fara fram í húsnæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík.
Staðarlotur APME (Applied Project Management Expert) 2012 - 2013:
Áætlanagerð í verkefnum - 15. september.
Upplýsingatækni - 20. október og 10. nóvember.
Leiðtogaþjálfun - 12. janúar.
Framleiðsla og gæðastjórnun - 16. febrúar.
Aðferðir við ákvarðanatöku - 6. apríl.
Ekki er skyldumæting í staðarlotur en nemendur eru hvattir til að nýta sér tækifærið til að hitta leiðbeinendur og samnemendur. Staðarlotur eru haldnar seinnipart dags og / eða um helgar í u.þ.b. 6 - 10 klst. hver.
Séu lögð verkefni fyrir nemendur í staðarlotu sem gilda til einkunna munu leiðbeinendur leggja sérstök verkefni fyrir þá nemendur sem ekki sjá sér fært að mæta.
Vinsamlegast athugið að kennsla í staðarlotum er ekki tekin upp.

