Opni háskólinn býður í fjórða sinn hagnýtt nám í verkefnastjórnun (APME - Applied Project Management Expert) í fjarnámi, nám samhliða vinnu.
Opið er fyrir umsóknir fyrir haustið 2012. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2012.
Einnig er hægt er að sækja stök námskeið af námsbrautinni:
- Áætlanagerð í verkefnum.
- Upplýsingatækni.
- Að leiða verkefni - Leiðtogaþjálfun.
- Framleiðsla og gæðastjórnun.
- Aðferðir við ákvarðanatöku.
APME námið hentar einstaklingum sem vilja læra að nota tölulegar greiningar til að taka ákvarðanir og stjórna rekstri og verkefnum. Námið er tilvalið fyrir þá sem fást við eða hafa áhuga á verkefnastjórnun, hvort heldur sem er fyrir stór eða smá verkefni. Námið hentar einnig þeim sem stýra minni fyrirtækjum eða framleiðslueiningum innan fyrirtækja.
Nemendur læra að útbúa heildstæða verkefnisáætlun og framkvæma árangursmælingar. Farið verður meðal annars yfir gerð verkáætlana og kostnaðarútreikninga í forritinu MS Project. Farið verður í greiningu framleiðsluferla og uppbyggingu stefnumiðaðra gæðakerfa ásamt því sem nemendur læra tölfræði, notkun og greiningu líkana og aðferðir til að taka ákvarðanir þegar óvissa ríkir um niðurstöður.
Í lok náms þreyta nemendur próf sem veitir þeim alþjóðlega IPMA vottun samkvæmt stigi D sem er staðfesting á þekkingu á sviði aðferðafræði verkefnastjórnunar.
Námsbraut í verkefnastjórnun er unnin í samstarfi við tækni- og verkfræðideild HR og gefur ígildi 24 ECTS eininga í grunnnámi.
Kennslufyrirkomulag
- Námið hefst haustið 2011 og lýkur með prófi 5. maí 2012.
- Kennsla hefst 13. september 2011.
- Námið samanstendur af fimm námskeiðum.
- Kennt er í 6 vikna lotum þar sem hverju námskeiði lýkur með prófi eða verkefni.
-
Kennsla fer fram í fjarnámi, en staðarlotur verða haldnar í Reykjavík að jafnaði einu sinni fyrir hvert námskeið.
- Hljóðfyrirlestrar eru settir inn á sameiginlegt vefsvæði nemenda að jafnaði tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum.
- Öll kennsla fer fram á íslensku en kennslubækur eru á ensku (að Upplýsingatækni undanskilinni - eru á ísl.).
Námskeiðslýsingar
Áætlanagerð í verkefnum.
Nemendur læra að undirbúa og afmarka verkefni og setja fram tölusett markmið um árangur. Áhersla er á að skilja hvað viðskiptafæri (business case) verkefnis er. Kennd verður gerð tímaáætlana, greiðslustreymisáætlana, kostnaðaráætlana og hvernig þessar áætlanir eru tengdar saman í heilstæða vörðumarkaða verkefnisáætlun. Nemendur læra að byggja upp framvindueftirlitskerfi til að mæla mismun á raunverulegum tölum og áætluðum tölum. Nemendur læra einnig að ljúka verkefnum og gera þau upp þannig að læra megi af mistökum og festa góðan árangur í sessi. Í þessu námskeiði verður einnig minnst á verkefnisstjórnunarumhverfið PRINCE2.
Staðarlota: 17. september 2011.
Leiðbeinandi: Þórður Víkingur Friðgeirsson. MSc, CPM. Lektor við Tækni- og verkfræðideild HR.
Upplýsingatækni - Excel, MS project, Access.
Kennt verður á algeng og hagnýt forrit við verkefnastjórnun.
MSProject – verkáætlanir og kostnaðarútreikningar.
Excel – líkanagerð, veltitöflur (pivot) og fjölvar (macros).
Umbrot í Word.
Mind Manager.
Staðarlota: 22. október og 12. nóvember 2011.
Leiðbeinandi: Eðvald Möller, MScE, MBA. Aðjúnkt við viðskiptaskor Háskóla Íslands.
Leiðtogaþjálfun, mannauður, fundastjórnun – að leiða verkefni.
Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að stjórna hópi manna með markvissum og öguðum aðferðum til að greina megi aðalatriði frá aukaatriðum á skjótan hátt. Nemandinn lærir að leiða teymi til árangurs með öguðum vinnubrögðum. Kennd verður fundarstjórnun, ýmsar greiningaaðferðir til að komast skjótt að kjarna málsins s.s. Pareto, SVÓT, Ishikawa, GAP o.fl.. Nemandinn mun læra aðferðir eins og hugarflug, Delphi aðferðina og samningatækni.
Staðarlota: 14. janúar 2012.
Leiðbeinandi: Kristín Leópoldína Bjarnadóttir. BSc, B.Ed, MPM. Verkefnastjóri og viðskiptagreinir hjá Íslandsbanka.
Framleiðslu og gæðastjórnun.
Nemendur læra að greina framleiðsluferli með það að leiðarljósi að það verði sem hagkvæmast og tryggi viðskiptavinum umsamin gæði. Nemendur læra að byggja upp stefnumiðað gæðakerfi og verður einkum horft til ISO-9000 staðlaraðarinnar. Nemendur læra að semja verklagsreglur, gera flæðirit og byggja upp tölfræðilega gæðastýringu. Þá verður kennd framleiðslustjórnun þar sem kennd er aðfangastjórnun, birgðastýring, gerð framleiðsluspáa og framleiðslubestun.
Staðarlota: 18. febrúar 2012.
Leiðbeinandi: Hlynur Stefánsson. BSc, MSc, PhD. Lektor við Tækni- og verkfræðideild HR.
Aðferðir við ákvarðanatöku
Nemendur læra ýmsa tölfræði og aðferðir til að taka ákvarðanir þegar óvissa ríkir um niðurstöðuna og áhætta er til staðar. Nemendur læra grunnatriði tölfræðinnar s.s. að reikna meðaltöl og frávik, einnig til hvers tölfræðilegar greiningar eru notaðar við ákvörðunartöku, hvernig ákvörðunartré eru byggð upp og óvissa reiknuð til fjár. Nemendur læra þar að auki að byggja upp ákvörðunarlíkön og minnka áhættu verkefna og fjármálagjörninga.
Staðarlota: 31. mars 2012.
Leiðbeinandi: Þórður Víkingur Friðgeirsson. MSc, CPM. Lektor við Tækni- og verkfræðideild HR.
* Upplýsingar um námsbrautina eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Verð
Námsbraut í verkefnastjórnun kostar kr. 435.000,-
* Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2012.
Mat á einingum
Námsbraut í verkefnastjórnun er unnin í samstarfi við tækni- og verkfræðideild HR og gefur ígildi 24 ECTS eininga í grunnnámi. Á bakvið hvert námskeið liggja uþb 120-180 klukkustundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn í staðarlotum, undirbúningur fyrir heimavinnu, hlustun á hljóðglærur, próftaka, prófundirbúningur og verkefnavinna. Við lok námsbrautar fá nemendur afhent prófskírteini og staðfestingu á námsárangri. Nemendur þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum með lágmarkseinkunn til að fá afhend prófskríteini við lok námsbrautar.
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn:
- Staðfest afrit prófskríteina verða að fylgja umsókn svo að hún sé tekin gild.
- Meðmælabréf (kostur en ekki skylda).
- Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar eftir inngöngu.
Fylgigögnum umsókna er hægt að skila rafrænt með umsókn eða beint til verkefnastjóra námsins.
Forföll og innheimta
Skráning á námsbraut jafngildir samningi um greiðslu námsgjalda. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta kr. 50.000 í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði skriflega a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála.
Fyrir þá sem það vilja þá býður fjármáladeild HR uppá raðgreiðslur á kreditkortum. Ef óskað er eftir raðgreiðslu þarf greiðandi að hafa samband við fjármálasvið Háskólans í Reykjavík í síma 599 6200 eftir að reikningur hefur borist. Ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður eftir að nám er hafið.
Nánari upplýsingar
Kamilla Reynisdóttir
Verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum
kamillar@hr.is
Sími: 599 6398

