Rekstrarstjórnun

Nám samhliða starfi

Opni háskólinn kynnir hagnýtt nám í Rekstrarstjórnun (Operations Management) á háskólastigi, ígildi 36 ECTS eininga.

 

AðalinngangurNámið er heildstæð námsbraut á háskólastigi og sérstaklega ætlað þeim sem vilja bæta árangur við stjórnun rekstrar, svo sem í verslun, heildsölu, smáiðnaði og framleiðslu. Farið verður meðal annars yfir stjórnun aðfangakeðjunnar og afkastagetu, ferlahönnun, umbætur og árangursmælingar. Kynnt verður hlutverk mannauðsstjórnunar og markaðsstarfs fyrirtækja auk þess sem farið verður yfir helstu undirstöður í fjármálum fyrirtækja.

Náminu er ætlað að:

  • veita nemendum hagnýta þekkingu og færni frá leiðbeinendum með mikla reynslu á sviði rekstrarstjórnunar (operation management)
  • gera nemendum kleift að nýta þá þekkingu sem þeir afla sér með markvissum og árangursríkum hætti í störfum sínum


SÆKJA UM HÉR

Umsóknarfrestir eru tveir til 5. júní og 31. ágúst 2012. Öllum umsóknum sem berast fyrir 5. júní verður svarað eigi síðar en 15. júní.
 

Kennslufyrirkomulag

  • Námið hefst á haustönn 2012
  • Kennsla hefst 11. september 2012
  • Kennt er á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16:30 til 20:00
  • Kennt er í 6 vikna lotum þar sem hverju námskeiði lýkur með prófi
  • Boðið er upp á undirbúningsnámskeið í stærðfræði og excel  grunni (innifalið í verði námsbrautar)

 

Námskeiðslýsingar

Rekstrarstjórnun

Rekstrarstjórnun er hagnýtt fag sem hefur gildi fyrir þá sem vinna við stjórnun í fyrirtækjum. Þetta fag hefur snertifleti við mörg önnur fög eins og stefnumótun, stjórnun, fjármál, vörustjórnun, þjónustustjórnun, mannauðsstjórnun og tölfræði. Á námskeiðinu er farið í hlutverk og markmið rekstrar- og ferlastjórnunar í fyrirtækjum, umbætur í rekstri, mótun rekstrarstefnu og árangursmælingar, stjórnun afkastagetu og aðfangakeðjunnar, spár og spálíkön, ferlahönnun, skipulag vinnusvæðis, val á tækjum og starfahönnun, áætlanagerð og verkefnastjórnun, birgðastjórnun, gæðastjórnun og gæðaeftirlit.

Leiðbeinandi: Reynir Kristjánsson, M.Sc. Stundakennari við viðskiptadeild HR og stjórnunarráðgjafi hjá ParX.

 

Gæðastjórnun og ferlar

Fjallað er um hugmyndafræði altækrar gæðastjórnunar (TQM) og helstu stjórnunaraðferðir sem tengjast gæðastjórnun. Farið verður yfir gæðahugtakið, innri og ytri viðskiptavinir, umbótarferli, innri og ytri úttektir, gæðatryggingin, gæðahringinn og gæðaeftirlit. Farið verður yfir mikilvægi þátttöku æðstu stjórnenda, starfsmanna og hvatningu í gæðastarfi. Einnig verður farið yfir mótun gæðastefnu í framleiðslu-, þjónustufyrirtækjum og stofnunum út frá stefnu fyrirtækis. Nemandinn lærir að semja verklagsreglur, gera flæðirit og byggja upp tölfræðilega gæðastýringu. Áhersla er lögð á hagnýtingu gæðastjórnunar, tölfræðina og farið er yfir kröfur ISO9001 staðalsins.   

Leiðbeinandi: Hanna Þóra Hauksdóttir, MBA. Verkefnastjóri.

 

Mannauðsstjórnun

Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um ferli mannauðsstjórnunar frá ráðningu til starfsloka, þ.m.t. mönnun og ráðningar, þjálfun og starfsþróun, frammistöðustjórnun, launastjórnun, starfsmannatengsl og vinnurétt. Áhersla er lögð á tengsl mannauðsstjórnunar við stefnumótun fyrirtækja og stofnana, verkaskiptingu almennra stjórnenda og starfsmannadeilda, og mælingar á árangri. Með verklegum æfingum og lausn raundæma er ætlað að þjálfa nemendur upp í helstu viðfangsefnum mannauðsstjórnunar.

Leiðbeinandi: Arney Einarsdóttir, MA. Lektor við Viðskiptadeild HR, Stofnandi, framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá HRM rannsóknum og ráðgjöf ehf.

 

Fjármál fyrirtækja

Fjármálafræði og fjármálastjórnun verða kynnt fyrir nemendum auk þýðingar þeirra fyrir atvinnurekstur. Fjallað verður um markmið fyrirtækja og fjármálaumhverfið. Skoðað verður samband á milli ávöxtunar og áhættu. Farið verður í tímavirði peninga og núvirðingu fjárstreymis. Nemendum verða kynnt hlutabréf og skuldabréf, verðmyndun þeirra og umhverfi fjármálamarkaðarins. Ákvarðanir fyrirtækja um fjárfestingar verða athugaðar sem og fjármögnun langtímaverkefna og grunnatriði fjárhagsáætlunargerðar. Þá veður fjallað um hagkvæmustu fjármagnskipan fyrirtækja og grunnatriði í áhættustýringu.

Athugið að í þessu námskeiði er gert ráð fyrir að nemendur hafi fartölvu þar sem stuðst er við excel í kennslu fjármála.

Leiðbeinandi: Már Wolfgang Mixa, fjármálakennari við Viðskiptadeild HR. 

 

Vöru- og innkaupastjórnun

Vörustjórnun tekur á þáttum er varða skilvirkari og árangursríkari aðferðir við flæði vara, þjónustu og/eða upplýsingum innan og milli fyrirtækja. Grundvöllur fagsins er skipulags- og stjórnunarleg vandamál s.s. viðskiptaþjónusta, innkaup, lager, flutningar, vöruhús, dreifing; allt aðgerðir sem hafa snertiflöt með öðrum fræðigreinum, sér í lagi rekstrarstjórnun og markaðsfræðum. Þessar aðgerðir eru ekki einungis mikilvægar fyrir framleiðslu- og verslunarfyrirtæki, heldur standa þjónustufyrirtæki og opinberar stofnanir frammi fyrir ákvörðunartöku og stefnum, sem byggja á verkfærum vörustjórnunar. Meðal þátta sem ýtt hafa undir áhuga fyrirtækja á vörustjórnun er aukin samkeppni á markaðnum, þróun í upplýsingatækni, hnattvæðing bæði hvað varðar framboð og opnun heimsmarkaða.

Leibeinandi: Hlynur Stefánsson, MSc, PhD. Lektor við Tækni- og verkfræðideild HR.

 

Markaðssetning og sala

Markaðsmál eru lífæð nútíma fyrirtækja og það er því öllum sem starfa að rekstri lífsnauðsyn að þekkja grunnatriði markaðsfræðinnar, sama hvar þeir koma að rekstrinum. Í þessu námskeiði verður farið í grunnþætti markaðsfræðinnar á skýran og skilmerkilegan hátt. Nemendur læra meðal annars að greina það umhverfi sem fyrirtæki starfa í, hvernig á að öðlast skilning á neytendum, hvernig byggja á upp og viðhalda vörumerkjum og setja saman tilboð sem fellur að smekk og þörfum neytandans, auk þess sem farið er ítarlega yfir hvernig á að koma þessu tilboði á framfæri og selja það. Að námskeiði loknu eiga nemendur að vera færir um að móta og framfylgja eigin markaðs- og söluáætlun.

Leiðbeinandi: Árni Árnason, MA. stundakennari við viðskiptadeild HR og vörumerkjastjóri hjá Vífilfell.

 

* Námskeiðslýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

 

SÆKJA UM HÉR

Umsóknarfrestir eru tveir til 5. júní og 31. ágúst 2012. Öllum umsóknum sem berast fyrir 5. júní verður svarað eigi síðar en 15. júní.

 

Verð

Námsbraut í Rekstrarstjórnun kostar kr. 485.000,-

 

Inntökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn:

  • Staðfest afrit prófskríteina verða að fylgja umsókn svo að hún sé tekin gild.
  • Meðmælabréf (kostur en ekki skylda).
  • Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar eftir inngöngu.

Fylgigögnum umsókna er hægt að skila rafrænt með umsókn eða beint til verkefnastjóra námsins.

 

Mat á einingum

Námsbraut í Rekstrarstjórnun er unnin í samstarfi við viðskiptadeild HR sem er akademískur bakhjarl námsins og gefur ígildi 36 ECTS eininga í grunnnámi. Á bakvið hvert námskeið liggja uþb 120-180 klukkustundir í vinnuframlag.

Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna, lestur og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fjóru akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

Við lok námsbrautar fá nemendur afhent prófskírteini og staðfestingu á námsárangri. Nemendur þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum með lágmarkseinkunn til að fá afhend prófskríteini við lok námsbrautar.

 

Forföll og innheimta

Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að rukka kr. 50.000 í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námi innan tveggja vikna áður en námið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði skriflega a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

elisabet
Elísabet I. Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
elisabet@ru.is
S: 599 6296

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica