Nemendur sem ljúka CEG Certificate sem Executive Coach frá Corporate Coach U fyrir árslok 2010
Alda Sigurðardóttir starfar sem aðstoðarmaður rektors HR. Þar áður starfaði hún sem samskiptastjóri en byrjaði upphaflega sem kynningarstjóri HR árið 2006. Hún starfaði sem viðskiptastjóri hjá fyrirtækinu SJÁ ehf í eitt ár og sem fræðslustjóri VR í rúm 5 ár. Hún var stundakennari við viðskiptadeild Háskóla Íslands 2000-2003. Alda hefur mikla reynslu af nefndar og stjórnarstörfum og var m.a. stjórnarformaður Menntar sem er samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla, sat í skólastjórn Borgarholtsskóla í 4 ár, sat í stjórn Heilsugæslu Reykjavíkur 2002 og var varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur það sama ár. Á námsárum sínum sat Alda í Stúdentaráði Háskóla Íslands og í stjórn alþjóðafélags stjórnmálafræðinema en hún er með B.a. próf í stjórnmálafræði með atvinnulífsfélagsfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands.
Arnar Agnarsson starfar sem Þjálfunarflugstjóri hjá Flugfélaginu Atlanta. Hann hefur síðustu 10 ár séð um áhafnaþjálfun fyrir öll stærri íslensku flugfélögin ásamt að hafa kennt mikið í Evrópu og verið fyrirlesari á ráðstefnum þegar kemur að áhafnarsamstarfi. Arnar hefur starfað fyrir Flugmálastjórn Íslands sem matsmaður á virkni samstarfs og við að hámarka árangur af samvinnu. Hann hefur reynslu í þjálfun á ýmsum hópum sem krefjast mjög agaðra vinnubragða og „stress level“ er hátt. Landhelgisgæslan nýtir sér þessa þjálfun ásamt læknum og fleiri stéttum sem vinna við ögrandi aðstæður og veltur mikið á öguðum vinnubrögðum og hlýtalausum aðgerðum, þar sem mistök eru gerð undir miklu álagi. Arnar hefur mikla reynslu að meta getu mannlegs þáttar í starfi og finna leiðir til að hámarka árangur.
Bergþóra Ólafsdóttir er með meistaragráðu í Mannauðsstjórnun og BSc gráðu í alþjóðamarkaðsfræði. Bergþóra hefur starfað sem Mannauðssjóri hjá Betware síðan árið 2007. Hún starfaði áður í stjórnunarstörfum hjá Símanum og Samskipum. Hún hefur m.a. reynslu á sölu- og markaðsmálum. Bergþóra nýtir markþjálfun innan síns fyrirtækis í dag.
Elísabet Helgadóttir er með MA gráðu í Mannauðsstjórnun frá EADA Business School í Barcelona, BA gráðu í Sálfræði við Háskóla Íslands og stefnir að því að ljúka CEG Certificate sem Executive Coach frá Corporate Coach U fyrir árslok 2010. Elísabet er starfandi Fræðslustjóri hjá Íslandsbanka þar sem hún hefur starfað í mannauðsmálum undanfarin 3 ár. Helstu verkefni hennar á sviði mannauðsmála snúa að fræðslu og þjálfun, stjórnendaþróun, markþjálfun og ráðningum. Áður starfaði Elísabet hjá Capacent sem ráðgjafi í markaðsgreiningu og markaðsrannsóknum.
Erla Andrea Pétursdóttir er viðskipta- og hugbúnaðarráðgjafi hjá Applicon ehf. Hún hefur undanfarin ár unnið með nokkrum stærstu fyrirtækjum landsins við endurhönnun á viðskiptaferlum, innleiðingu á hugbúnaði (SAP), kennslu og viðskiptaráðgjöf. Auk þess hefur hún unnið við vörustjórnun, verkefnastjórnun og að kynningarmálum. Áður en Erla kom til starfa hjá Applicon starfaði hún hjá Sameinaða líftryggingafélaginu, Samlíf, sem deildarstjóri viðskiptaþjónustu. Sem ráðgjafi og stjórnandi hefur hún öðlast mikla reynslu af breytingastjórnun og öðrum þáttum sem snúa að árangursríkum samskiptum. Erla er með BSc. í viðskiptafræðum frá Háskólanum í Reykjavík.
Guðrún Lind Halldórsdóttir er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, Mannauðsstjórnun frá EHÍ og BA gráðu í Sálfræði við Háskóla Íslands. Guðrún Lind starfar sem Mannauðsstjóri í „Human Resources & Organisational Devlelopment“ hjá móðurfélagi Actavis Group. Meðal helstu verkefna eru stefnumótun, þátttaka í mótun og innleiðingu HR ferla fyrir samstæðuna, ráðningar, stjórnendaþróun ásamt ráðgjöf og stuðningi við stjórnendur og starfsmannastjóra félagsins. Guðrún Lind hóf störf hjá Actavis árið 2002 sem ráðningastjóri félagsins á Íslandi.
Hildur Jakobína Gísladóttir starfar sem forstöðumaður fjölskyldudeildar hjá Kópavogsbæ. Hún er með BA í sálfræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.
Hinrik Sigurður Jóhannesson starfar sem ráðgjafi hjá Capacent og er með Cand.Psych Sálfræði.
Íris Ösp Bergþórsdóttir er með MSc gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands, BA gráðu í Sálfræði frá Háskóla Íslands. Íris gegnir starfi mannauðsráðgjafa hjá Íslandsbanka með áherslu á frammistöðustjórnun, þróun starfsmanna, coaching og liðseflingu auk þess að sjá um vinnustaðagreiningar bankans. Áður starfaði Íris við kennslu og ráðgjöf.
Kristinn Tryggvi Gunnarsson er stjórnunarráðgjafi og eigandi hjá Expectus, stjórnendaþjálfari við Opna háskólann og stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.S. prófi í stjórnun og stefnumótun frá University of North Carolina og MBA prófi frá University of Georgia. Kristinn hefur víðtæka stjórnunarreynslu, starfaði í sjö ár hjá Íslandsbanka, lengst af sem útibússtjóri og fjögur ár hjá SPRON sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og síðar markaðsmála. Árið 2002, eftir 11 ár í bankageiranum, sneri hann sér að ráðgjöf og í sex ár starfaði Kristinn hjá Capacent, fyrst sem ráðgjafi, síðar framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs og síðustu tvö árin sem forstjóri Capacent á Íslandi. Kristinn hefur starfað með fjölmörgum af 300 stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Hann hefur mikla reynslu af lóðsun, markþjálfun og stjórnendaþjálfun og hefur auk réttinda frá Franklin Covey lokið þjálfun hjá Project Adventure, Corporate Lifecycles Inc, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporate Coach University og SHL.
Sigrún Þorleifsdóttir starfar sem stjórnendamarkþjáfi með leiðtogum og stjórnendum sem vilja vaxa í starfi, ryðja hindunum úr vegi og ná afburða árangri. Sigrún hefur lokið MSc. prófi í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og BSc. prófi í rekstrarfræðum frá Háskólanum á Bifröst. Sigrún starfaði sem stjórnandi í 20 ár hjá Eimskip, SH/Icelandic og víðar. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun í alþjóðlegum fyrirtækjum, stefnumótun, markmiðssetningu, áætlanagerð, breytingastjórnun, markaðs- og þróunarmálum. Sem stjórnandi hefur hún kynnst af eigin raun þeim óteljandi áskorunum sem stjórnendur standa frammi fyrir í starfi og einkalífi. Sigrún hefur sérhæft sig í árangursríkum samskiptum stjórnenda og starfsmanna í fyrirtækjum.
Sigurður Ólafsson lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og fór svo til Hollands þar sem hann lauk MBA prófi frá Rotterdam School of Management við Erasmus Háskóla.
Sigurður hefur víðtæka reynslu af stjórnun starfsmannamála, stjórnun og stefnumótun fyrirtækja. Þá hefur Sigurður reynslu af félagsmálum m.a. í gegn um Hjálparsveit skáta í Kópavogi, Knattspyrnufélag Reykjavíkur KR og samtök starfsmannastjóra á Íslandi. Sigurður hefur tekið þátt í starfi á vegum samtaka atvinnulífsins (SA) m.a. í úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta, starfshópi um starfsmenntun í atvinnulífi og fl. Sigurður hefur einnig tekið þátt í starfi félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga FVH og hefur þar m.a. setið í dómnefnd vegna þekkingarfyrirtækis ársins s.l. ár. Sigurður er nú starfsmannastjóri Isavia ohf.
Steinunn Hall lauk Bsc gráðu í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík 2008 og MSc gráðu í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands, júní 2010. Steinunn hefur víðtæka starfsreynslu, sem dæmi má nefna af stjórnunarstöfum, verkefnastjórnum, rekstrarráðgjöf og bókhaldi. Steinunn Hall starfar nú sjálfstætt sem stjórnendamarkþjálfi. Hún er jafnframt formaður faghóps um markþjálfun hjá Stjórnvísi, einnig situr hún í kjaranefnd Félags viðskiptafræðinga og hagfræðina síðan árið 2008.
Svanlaug Jóhannsdóttir starfar sem verkefnastjóri hjá Klak, Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. Hún er með BSc gráðu í viðskiptafræði og unnið mikið með frumkvöðlum og stjórnað skapandi fólki. Víðtæk reynsla af verkefnastjórnun og markaðsmálum, bæði í eigin fyrirtæki og annarra. Altalandi á ensku og spænsku.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir hefur 15 ára reynslu af rekstri og stjórnun. M.a. sem aðstoðarframkvæmda-stjóri Hreyfingar, heilsuræktar og framkvæmdastjóri Dale Carnegie á Íslandi. Sl. fimm ár hefur hún starfað fyrir Dale Carnegie við námskeiðahald á Íslandi og erlendis og starfað með stjórnendum nokkurra stærstu fyrirtækja landsins. Unnur hefur víðtæk þjálfunarréttindi á námskeiðum Dale Carnegie og er jafnframt Master Trainer fyrir Dale Carnegie and associates, með réttindi til að þjálfa þjálfara út um allan heim. Unnur hefur B.ED próf frá KHÍ, Diploma í viðskipta og rekstrarfræðum frá EHÍ. Unnur starfar sjálfstætt við ráðgjöf, lóðsun og markþjálfun og skrifar auk þess greinar um viðskiptabækur í Frjálsa verslun.

