Námsbraut í markþjálfun (executive coaching)
Dagskrá námsbrautar
Námið hefst 10. febrúar 2012 og lýkur í byrjun október 2012. Eftirfarandi er yfirlit yfir lotur námsins.
Námskeiðslýsingar er að finna hér.
Persónuleg forysta og árangur
- Kynning á námi og hópefli (Personal Leadership Development - introduction and team development) - staðarlota
Dags 10. febrúar.
Kl. 12:30 – 16:30.
Leiðbeinandi: Guðrún Högnadóttir, MHA, ACC, BSPH.
Markþjálfun (New Student Orientation) – fjarfundur
Dags 17. febrúar.
Kl. 16:00 – 17:00.
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC.
Markþjálfun (The Core Essentials Fast Track ProgramTM) – staðarlota - fyrri hluti
Dags 23. - 25. febrúar.
Kl. 8:30 – 18:00.
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC.
Markþjálfun (The Core Essentials Fast Track ProgramTM) – staðarlota - seinni hluti
Dags 22. - 24. mars.
Kl. 8:30 – 18:00.
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC.
Markþjálfun (TeleClasses) - fjarfundir
Dags 29. mars, 10. apríl, 17. apríl og 24. apríl.
Kl. 16:00 – 18:00.
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC.
Virði markþjálfunar á vinnustöðum og hringborðsumræður (Value of Executive Coaching, Roundtable) - staðarlota
Dags 10. maí.
Kl. 12:30 – 16:30.
Leiðbeinandi: Hulda Dóra Styrmisdóttir, BA, MBA, dpl í klínískri vinnusálfræði frá Insead.
* Upplýsingar um námið eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Verð
Námsbraut í markþjálfun (Executive Coaching) kostar kr. 640.000,-
Innifalið eru m.a. kennslubækur (Essential Coaching Tools, Personal and Corporate Coach Training, Personal Development), vönduð kennslugögn frá CCUI, PCDI sjálfsmat, greinar, vinnubækur, réttur til ACC vottunar, aðgangur að lokuðu vefsvæði CCUI, skráning á alþjóðlega markþjálfunarvefi, veitingar ofl.
* Umsóknarfrestur er til 1.febrúar 2012
Inngönguskilyrði
Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár. Nemendur verða valdir eftir frammistöðu í námi á framhalds- og háskólastigi. Aðrar prófgráður koma til greina og eru skoðaðar sérstaklega auk annarra þátta svo sem umsagna og greinagerðar frá umsækjanda sjálfum.
Forföll og innheimta
Þar sem um takmarkaðan fjölda í námið er að ræða er mikilvægt að greiðsluseðill sé greiddur fyrir 30. desember 2011. Vinsamlegast athugið að eftir að umsókn um nám í markþjálfun (Executive Coaching) í Opna háskólanum í HR hefur verið samþykkt, jafngildir staðfesting á þátttöku samþykki um fulla greiðslu námsgjalda. Úrsögn úr námi skal alltaf fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en umsókn er staðfest. Sjá greiðsluskilmála.
Nánari upplýsingar
Kamilla Reynisdóttir
Verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum í HR
kamillar@hr.is
Sími: 599 6398

