Af hverju markþjálfun í Opna háskólanum?

Leadership coaching

Alþjóðleg réttindi. Þegar nemandi hefur uppfyllt skilyrði ICF m.a. um fullnægjandi mætingu í staðarlotu, fjöldi markþjálfunartíma með viðskiptavinum og leiðbeinanda, úrlausn raundæma ofl. er prófskírteini afhent, þar sem fram kemur að nemandi hafi lokið námsbraut í markþjálfun við Opna háskólann í HR. Að því loknu geta nemendur ennfremur sótt um ACC réttindi (Associate Certified Coach) hjá ICF (International Coaching Federation) sem veitir þeim alþjóðlega viðurkenningu sem markþjálfar.

 

Kennslubækur.   CCU (Corporate Coach University) og bókaútgefandinn Wiley hafa gefið út fyrstu bækur sinnar tegundar um markþjálfun fyrir atvinnulíf.  Innifalið í verði námsbrautarinnar eru þrjár innbundnar og vandaðar kennslubækur,  sem verða rýndar í kjölinn í líflegum kennslutímum.  Nánar um námsgögn hér.

 

Ígildi 6 ECTS eininga. Þeir nemendur sem ljúka námi með ACC réttindi eiga þess kost á að fá námið metið inn á sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík sem valfag til 6 ECTS eininga.

 

Markþjálfun 2Leiðbeinandi. Opni háskólinn kynnir með stolti leiðbeinanda markþjálfunarhlutans, Cheryl Smith. Hún býr yfir rúmlega 25 ára reynslu í leiðtogaþjálfun fyrir stórfyrirtæki og hinar ýmsu ríkisstofnanir Bandaríkjanna. Cheryl er með MA gráðu í leiðtogaþjálfun frá Royal Roads University, Canada og MCC réttindi (Master Certified Coach) í markþjálfun. Hún hefur starfað sem markþjálfi og leiðbeinandi í fjöldamörg ár á vegum CCU þar sem hún er nú aðstoðarforstjóri. Áherslusvið hennar eru innan leiðtogamarkþjálfunar (Leadership/Executive Coaching), stjórnun starfsframa og þróunar framúrskarandi teyma.

 

Stöðugt á tánum. Kosturinn við það að vinna með þaulreyndum markþjálfa sem lætur sig varða um árangur þinn er sá að þú ert stöðugt með fingurna á púlsinum. Með vikulegum símafundum færðu tækifæri til að samþætta og þjálfa það sem þú hefur lært. Þannig má tryggja að sú hæfni sem þú þjálfar með þér, hugtök og orðaforði verði hluti af verkfærakistu þinni til framtíðar.

 

Aðgangur að efni CCUI. Um leið og þú hefur námið getur þú nýtt þér sérhönnuð eyðublöð, matskýrslur, greinar, markaðsefni og önnur gögn frá CCUI.

 

Öflugt tengslanet. Nemendur eru hvattir til að byggja upp tengsl við aðra markþjálfa víðs vegar um heiminn. Þeim stendur til boða að taka þátt í fjöldamörgum fjarnámskeiðum eða staðarlotum erlendis sem eingöngu eru ætlaðar nemendum sem stunda eða hafa lokið markþjálfunarnámi.

 

Alþjóðlegur listi yfir markþjálfa. Nemendum og markþjálfum á vegum CCU stendur til boða að skrá sig í alþjóðlegt skráarsafn markþjálfa (Find A Coach Directory) gegn vægu gjaldi. Allir nýjir nemendur eru þó sjálfkrafa skráðir í safnið ásamt grunnupplýsingum um viðkomandi.

 

Fullt fæði og fullkomin aðstaða. Nemendur fá fullt fæði í staðarlotum og ótakmarkaðan aðgang að aðstöðu Háskólans í Reykjavík meðan á náminu stendur. Nemendur fá jafnframt aðgang að þráðlausu neti skólans, bókasafni, lesaðstöðu og gagnagrunnum.

 

Samkeppnishæft verðlag. Opni háskólinn leggur sig fram við að halda verði í lágmarki í samræmi við gæði og umfang námsins. Verð á námsbraut í markþjálfun við Opna háskólann er kr.640.000,- sem er lægra verð en sambærilegt nám í Bretlandi eða Bandaríkjunum. Þá eru innifalin tvö auka námskeið til viðbótar við námsefni CCUI.  Boðið er upp á raðgreiðslur á kreditkortum. Við bendum nemendum einnig á að kanna möguleika sína á niðurgreiðslu námsgjalda hjá stéttarfélögum. http://www.opnihaskolinn.is/um-opna-haskolann/styrkir/  








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica