Opni háskólinn í HR býður í annað sinn upp á heildrænt og hagnýtt nám í Markþjálfun (Executive Coaching) á háskólastigi, þar sem grunnurinn er lagður að alþjóðlegri ACC vottun nemenda (Associate Certified Coach). Námið hentar einnig þeim sem hafa nú þegar fengið ACC vottun en vilja sækja um PCC vottun (Professional Certified Coach).
Vegna mikillar eftirspurnar hefur nokkrum sætum verið bætt við í námið.
Umsóknarfrestur hefur því verið framlengdur til 1. febrúar 2012.
Námið er ætlað fólki sem hefur áhuga á að starfa við markþjálfun einkum á sviði atvinnulífs (executive coaching). Markþjálfun má beita á ýmsa vegu bæði tengt vinnu og einkalífi og miðar sérstaklega að því að bæta árangur einstaklinga og skipulagsheilda.
Nám í markþjálfun gefur þátttakendum tækifæri til að þróa leiðtogahæfni sína, laða fram það besta í starfsfólki, teymum og skipulagsheildum og bæta árangur í lífi og starfi.
Að loknu námi munu nemendur hafa öðlast næga þekkingu og þjálfun til að ljúka ACC prófi á vegum ICF (International Coaching Federation). Nemendur fá traustan grunn til að starfa sjálfstætt sem markþjálfar. Leiðbeinendur búa yfir víðtækri reynslu á sviði markþjálfunar og leiðtogafræða.
Námsbrautin er kennd í samstarfi við sálfræðisvið viðskitpadeildar HR og CCUI.
Hér til vinstri og að neðan er að finna ítarlegar upplýsingar um námið, markþjálfun, Opna háskólann, siðareglur ICF og CCUI.
"Námið í markþjálfun (Executive coaching) fór langt fram úr væntingum mínum og aldrei hef ég lært jafn mikið á jafn stuttum tíma. Opni Háskólinn í Reykjavík hefur framúrskarandi starfsfólk sem vill allt fyrir mann gera og aðstaðan frábær. Námið er krefjandi, skemmtilegt, hagnýtt og frábærlega framsett með úrvalsliði kennara. Andrúmsloftið í HR er svo einstakt, mér finnst ég alltaf koma heim þegar ég mæti í skólann, þetta var í annað skipti sem ég kem í nám hjá HR og mun ég pottþétt koma aftur."
Steinunn Hall, MSc, stjórnendamarkþjálfi
RU Executive Coaching alumni 2010
Dagskrá námsbrautar
Eftirfarandi er yfirlit yfir lotur námsins árið 2012. Námsskrá er að finna hér.
Persónuleg forysta og árangur
- Kynning á námi og hópefli (Personal Leadership Development - introduction and team development) - staðarlota
Dags 10. febrúar
Kl. 12:30 – 16:30
Leiðbeinandi: Guðrún Högnadóttir, MHA, ACC, BSPH
Markþjálfun (New Student Orientation) – fjarfundur
Dags 17. febrúar
Kl. 16:00 – 17:00
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC
Markþjálfun (The Core Essentials Fast Track ProgramTM) – staðarlota - fyrri hluti
Dags 23. - 25. febrúar
Kl. 8:30 – 18:00
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC
Markþjálfun (The Core Essentials Fast Track ProgramTM) – staðarlota - seinni hluti
Dags 22. - 24. mars
Kl. 8:30 – 18:00
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC
Markþjálfun (TeleClasses) - fjarfundir
Dags 29. mars, 10. apríl, 17. apríl og 24. apríl
Kl. 16:00 – 18:00
Leiðbeinandi: Cheryl Smith, MA, MCC
Virði markþjálfunar á vinnustöðum og hringborðsumræður (Value of Executive Coaching, Roundtable) - staðarlota
Dags 31. maí
Kl. 12:30 – 16:30
Leiðbeinandi: Hulda Dóra Styrmisdóttir, BA, MBA, dpl í klínískri vinnusálfræði frá Insead
* Upplýsingar um námið er birt með fyrirvara um breytingar.
Verð
Námsbraut í markþjálfun (Executive Coaching) kostar kr. 640.000 kr.
Innifalið eru m.a. kennslubækur (Essential Coaching Tools, Personal and Corporate Coach Training, Personal Development), vönduð kennslugögn frá CCUI, PCDI sjálfsmat, greinar, vinnubækur, réttur til ACC vottunar, aðgangur að lokuðu vefsvæði CCUI, skráning á alþjóðlega markþjálfunarvefi, veitingar ofl.
* Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012
Inntökuskilyrði
Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár. Nemendur verða valdir eftir frammistöðu í námi á framhalds- og háskólastigi. Aðrar prófgráður koma til greina og eru skoðaðar sérstaklega auk annarra þátta svo sem umsagna og greinagerðar frá umsækjanda sjálfum.
Forföll og innheimta
Þar sem um takmarkaðan fjölda í námið er að ræða er mikilvægt að greiðsluseðill sé greiddur fyrir 30. desember 2011. Vinsamlegast athugið að eftir að umsókn um nám í markþjálfun (Executive Coaching) í Opna háskólanum í HR hefur verið samþykkt, jafngildir staðfesting á þátttöku samþykki um fulla greiðslu námsgjalda. Úrsögn úr námi skal alltaf fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en umsókn er staðfest. Sjá greiðsluskilmála.
Nánari upplýsingar
Kamilla Reynisdóttir
Verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum í HR
599 6398
kamillar@ru.is

