Af hverju nám í markaðssamskiptum og almannatengslum?
Námið er fjölbreytt og lifandi og samanstendur af sjö hagnýtum námskeiðum sem miða öll að því að dýpka skilning nemenda og efla faglega þekkingu á viðfangsefninu. Náminu lýkur með markaðssamskiptaherferð þar sem nemendur nýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér til þess að vinna raunhæfa markaðssamskiptaáætlun fyrir íslenskt fyrirtæki.
Nýtist beint í starfi. Námið sameinar hin ýmsu svið innan auglýsinga-, markaðs- og sölugeirans og er því afar hagnýtt. Í lok náms ættu nemendur að kunna skil á grunnhugtökum markaðsfræðinnar, þekkja þankagang neytenda, hafa byggt upp færni til að koma fram í viðtölum í útvarpi og sjónvarpi og þekkja helstu verkefni almannatengla. Nemendur ættu að þekkja skilvirk samskipti auglýsingastofa og markaðsdeilda og geta sett upp markaðssamskiptaherferðir svo fátt eitt sé nefnt.
Skemmtilegt og lifandi námsumhverfi. Öll kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík við Nauthólsvík þar sem fullkomin aðstaða er til náms.
Hæfir leiðbeinendur. Kennarar eru allir sérfræðingar með víðtæka menntun og starfsreynslu á sínu sviði.
Öflugt tengslanet. Aðeins 15 - 20 nemendur eru teknir inn í námið sem gerir það að verkum að nemendur fá tækifæri til að kynnast samnemendum og leiðbeinendum vel. Í náminu fá nemendur jafnframt tækifæri til þess að heimsækja auglýsingastofur og markaðsdeildir auk þess sem fjöldi gestakennara kemur að náminu.
Aukin samkeppnishæfni. Í lok náms eru nemendur án efa orðnir samkeppnishæfari starfsmenn í þessu skemmtilega fagi þar sem þeir hafa fengið að kynnast öllum hliðum markaðssamskipta og almannatengsla.
Auknir söluhæfileikar og sannfæringarkraftur. Námið veitir nemendum skilning á öllum hliðum auglýsinga- og markaðsmála og eflir þannig sjálfstraust þeirra í starfi. Námið býður þannig upp á tækifæri fyrir nemendur til að efla söluhæfileika sína og sannfæringarkraft.
Hvaða greiðslumöguleikar eru í boði? Við hvetjum nemendur til að kynna sér styrki stéttarfélaga sinna. Sem dæmi má nefna styrkir VR félagsmenn sína um allt að helming námsgjalda. Kynntu þér málið hér.
Háskólinn í Reykjavík býður einnig upp á greiðsludreifingu á kreditkortum til allt að 36 mánaða.
Fer einhver hluti kennslunnar fram á ensku? Öll kennsla og fyrirlestrar fara fram á íslensku. Kennslubækur eru á ensku en efni frá kennurum, glærur oþh á íslensku. Kennslubækur á ensku hafa ekki valdið nemendum erfiðleikum.
Er hægt að stunda námið samhliða vinnu? Já. Námið er hugsað sem nám samhliða vinnu. Kennsla fer fram á miðvikudögum kl.17:00 - 20:00 og á laugardögum kl.9:00-13:00. Gera má að auki ráð fyrir uþb 15-20 klst í undirbúning og verkefnavinnu vikulega.
Hvernig er námið byggt upp? Námið samanstendur af sjö námskeiðum sem kennd eru í 3-6 vikna lotum.
Hvað gerir fagráð? Að náminu standa sérfræðingar við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Almannatengslafélag Íslands, ÍMARK og Samband íslenskra auglýsingastofa. Þessir aðilar auk verkefnastjóra á vegum Opna háskólans mynda fagráð námsins. Hlutverk fagráðs er í stuttu máli að tryggja gæði námsins með því að rýna markmið og efnistök og staðfesta hæfni kennara.
Nánari upplýsingar
Salóme Guðmundsdóttir, verkefnastjóri
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353 / 825 6353

