HAUSTÖNN 2010
Markaðsrannsóknir
Markaðsrannsóknir ganga út á það að afla upplýsinga um neytendur og markaði. Í námskeiðinu læra nemendur að áætla, framkvæma og meta mismunandi aðferðir sem notaðar eru í greiningavinnu og liggja til grundvallar við stefnumótun fyrirtækja og annarra skipulagsheilda. Í þessu samhengi verður lögð áhersla á vísindalega aðferðafræði og mikilvægi markaðshegðunar – en það er þegar upplýsingar um hegðun markhópa og samkeppni spila lykilhlutverk í ákvarðanatöku og allri hegðun fyrirtækis. Byggt á þessu verður farið í neytendavísindi, markaðskennitölur, líkön og tækni til að greina og breyta hegðun neytenda. Einnig verður lögð áhersla á hagnýta tölfræði og í því sambandi kennt á tölfræðiforritið SPSS. Nemendur munu framkvæma eigin markaðsrannsókn, skrifa skýrslu og verja verkefnið undir lok námskeiðsins. Raunveruleg dæmi af íslenskum og erlendum markaðsrannsóknum verða fléttuð inní kennsluna, hugað að hagnýtingu þeirra og oft óvæntum niðurstöðum. Nánari upplýsingar hér.
Kennari: Dr. Valdimar Sigurðsson, Nova dósent í markaðsfræði, viðskiptadeild HR.
Vörumerkjastjórnun (Branding)
Vörumerkjastjórnun (e. branding) er einn af þeim þáttum innan markaðsfræða sem vex hvað hraðast. Fræðisviðið er ungt og lifandi og ekki eru allir endilega á eitt sáttir um hvað aðferðir séu vænlegastar til að byggja upp gott vörumerki . Í námskeiðinu verða nemendum kennd grundvallar atriði vörumerkjastjórnunar sem og verða þeim kynnt nýjustu áherslur á fræðisviðinu. Nánari upplýsingar hér.
Kennarar: Friðrik Larsen, lektor við viðskiptadeild HR og Árni Árnason, vörumerkjastjóri hjá Vífilfell og stundakennari við viðskiptadeild HR

