Opni háskólinn mun enn á ný fara af stað með hagnýtt nám í markaðssamskiptum og almannatengslum, nám samhliða vinnu, á haustönn 2012. Umsóknarfrestir eru tveir, fyrri 5. júní og síðarí 31. ágúst. Öllum umsóknum sem berast fyrir 5. júní verður svarað eigi síðar en 15. júní.
Námið miðar að því að dýpka skilning nemenda og efla faglega þekkingu á viðfangsefninu. Við leggjum okkur fram við að bjóða stöðugt upp á nýjustu nálgun kennsluefnisins með öflugu fagráði og leiðbeinendum sem eru meðal þeirra færustu hérlendis á sínu sviði.
Náminu er ætlað að:
- veita fræðilegan grunn að faglegu markaðsstarfi
- auka skilning á kauphegðun neytenda
- sýna fram á mikilvægi stefnumótunar markaðsmála og samræmdra skilaboða
- veita innsýn í samskipti markaðsdeilda og birtinga- / auglýsingastofa
- kynna helstu leiðir við markaðssetningu á netinu og uppbyggingu árangursríkra vefsíðna
- veita hagnýta innsýn í störf almannatengla
- auka viðtalshæfni nemenda og færni þeirra til að koma skilaboðum skýrt og skorinort frá sér í ræðu og riti
- gera nemendum kleift að undirbúa og skipuleggja markaðssamskiptaherferð
Markaðsaðstæður á Íslandi hafa verið erfiðar síðustu árin og markaðsáætlanir fyrirtækja breyst í samræmi við það. Kynningarleiðir fyrirtækja hafa einnig tekið miklum stakkaskiptum með tilkomu samfélagsmiðla á borð við facebook og twitter og nú nýlega snjallsímanna sem hafa verið að riðja sér rúms hér á landi.
Við bjóðum þér að taka þátt í lifandi og hagnýtu og í senn fræðilegu námi á háskólastigi þar sem nemendur læra undirstöðuatriði öflugs markaðsstarfs og fá tækifæri til að kynnast því nýjasta í straumum og stefnum markaðsmála bæði hér á landi og erlendis.
Fyrir hverja?
Námið er ætlað þeim sem starfa og hafa áhuga á að starfa við markaðsmál, sölu og almannatengsl (PR) en ekki síður gagnlegt fyrir vefstjóra, grafíska hönnuði sem fá tækifæri til að kynnast starfi sínu frá öðru sjónarhorni og frumkvöðla / hönnuði sem hafa áhuga á að læra að koma ákveðinni vöru / vörulínu á framfæri. Námið er einnig afar gagnlegt þeim sem eru í forsvari fyrri hina ýmsu menningarviðburði þar sem það veitir yfirsýn og sameinar hin ýmsu svið innan auglýsinga-, markaðs- og sölugeirans.
Í lok náms ættu nemendur að kunna skil á grunnhugtökum markaðsfræðinnar, þekkja þankagang neytenda, hafa kynnst nýjustu leiðum í markaðssetningu á netinu, byggt upp færni til að koma fram í viðtölum í útvarpi og sjónvarpi og þekkja helstu verkefni almannatengla. Nemendur ættu að þekkja skilvirk samskipti auglýsingastofa og markaðsdeilda og geta sett upp markaðssamskiptaherferðir svo fátt eitt sé nefnt.
Lögð er áhersla á virkni nemenda og öflug tengsl við atvinnulífið með úrvali leiðbeinenda og gestafyrirlesara og raunhæfum verkefnum. Nemendur geta nýtt það sem þeir læra beint í störfum sínum og hafa tækifæri til að mynda öflugt tengslanet við samnemendur sína og kennara. Opni háskólinn býður auk þess upp á skemmtilegt og lifandi umhverfi til náms í Háskólanum í Reykjavík við Nauthólsvík.
Að náminu standa sérfræðingar við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Almannatengslafélag Íslands, ÍMARK og Samband íslenskra auglýsingastofa. Við skipulag námsins er horft til fremstu háskóla Evrópu á þessu sviði auk þess sem leiðbeinendur búa yfir víðtækri reynslu hver í sínu fagi. Náminu lýkur með markaðssamskiptaherferð þar sem nemendur nýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér til þess að vinna raunhæfa markaðssamskiptaáætlun fyrir íslenskt fyrirtæki.
"Námið var mjög gagnlegt og afskaplega skemmtilegt. Ég hlakkaði til allra tíma og samnemendur mínir voru frábær hópur. Ég mæli hiklaust með þessu námi við alla sem hafa áhuga á að ná lengra í markaðssamskiptum."
Gústaf Gústafsson, markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands
Kennslufyrirkomulag
- Námið hefst haustið 2012 og lýkur í júní 2013.
- Kennsla hefst í 12. september 2012.
- Námið samanstendur af sjö námskeiðum.
- Kennt er í 4-6 vikna lotum þar sem hverju námskeiði lýkur með prófi eða verkefni.
- Kennt er á miðvikudögum kl. 17:00-20:00 og laugardagsmorgnum kl. 9:00-13:00.
Námskeiðslýsingar
Markaðsfræði
Faglegt markaðsstarf er grundvöllur tekjusköpunar flestra fyrirtækja og því er skilningur á markaðsfræði mikilvægur þáttur í þekkingarsafni fyrirtækja og starfsmanna þeirra. Í námskeiðinu verður farið í gegnum grundvallaratriði markaðsfræðinnar og byggir það á fjórum meginþáttum: Að skilja grunnþætti markaðsstarfs, að greina markaðstæki, að setja saman tilboð til viðskiptavina og stýringu og framkvæmd markaðsþátta. Raunveruleg dæmi úr íslenskum og erlendum veruleika verða fléttuð inní kennsluna.
Leiðbeinandi: Ásmundur Helgason, viðskiptafræðingur MBA, framkvæmdastjóri Dynamo auglýsingastofu.
Sálfræði markaðssamskipta
Hér er farið í markaðssamskipti út frá sálrænum áhrifum á neytendur, neytendahegðun meðal annars skoðuð í þaula. Skoðaðar eru kenningar um sannfæringu og áhrif sem markaðssamskipti geta haft á neytendur. Hvernig breytingar og samræmi í hegðun neytenda eiga sér stað og hvernig viðhorf og gildi hafa áhrif á markaðssamskipti og öfugt. Skilningur á þessum atriðum er einmitt lykilatriði í áhrifaríkum markaðssamskiptum.
Leiðbeinandi: Árni Árnason, MA í Markaðssamskiptum. Stundakennari við Háskólann í Reykjavík ásamt gestakennara.
Samhæfð markaðssamskipti
Öll markaðssamskipti fyrirtækja eiga sér rætur í markaðsstefnu fyrirtækisins. Í þessu námskeiði er farið yfir hvernig fyrirtæki þróa og framkvæma stefnumótun í markaðsmálum og hvernig þessi stefnumótun hefur áhrif á markaðssamskipti. Einnig er farið í grunnatriði samhæfðra markaðssamskipta, helstu kynningarleiðir, s.s. auglýsingar, beina markaðssetningu, almannatengsl o.fl., og grunnur lagður fyrir næstu námskeið í námsleiðinni.
Leiðbeinandi: Árni Árnason, MA í Markaðssamskiptum. Stundakennari við Háskólann í Reykjavík ásamt gestakennara.
Nýmiðlun
Skoðaðar eru helstu ástæður þess að markaðsfólk er í auknu mæli farið að snúa sér að Internetinu sem markaðstæki. Farið er í grunnhugtök tengd markaðssetningu á Internetinu, s.s. stefnumótun (strategy) og árangursríkrar uppbyggingu vefsíðna og vefstjórnun (implementation and practice). Farið er vandlega í gegnum helstu leiðir og nýjungar sem eru boði á þessum vettvangi s.s. markaðssetning á leitarvélum (SEO), vefborðar, rafræn fréttabréf, markaðssetning á samfélagsvefjum ásamt því hvernig á að meta og mæla árangur í markaðsstarfi á netinu. Að auki verður farið yfir notkun félagsmiðla eins og facebook og twitter í markaðsstarfi fyrirtækja.
Leiðbeinandi: Gunnar Thorberg Sigurðsson, MSc Management of eBusiness.
Almanntengsl, grunnreglur og stoðir
Kynnir nemendum grunnstoðir almannatengsla og helstu nálganir á fræðigreinina. Leggur fræðilegan grunn fyrir vinnu við almannatengsl á skipulegan og gagnsæjan hátt. Farið verður í hvernig fyrirtæki geta notað almannatengsl til að móta áhrifaríka stefnu til framtíðar og samband almannatengsla og ímyndar, sjálfsmyndar og orðspors fyrirtækja. Einnig verður unnið á áþreifanlegan hátt með hugtök eins og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, krísustjórnun og innri samskipti.
Leiðbeinandi: Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir, Msc. Samskiptastjóri hjá NASDAQ OMX Iceland (Kauphöllin).
Samskiptahæfileikar
Nemendur æfa grunnatriði framkomu. Farið er í líkamstjáningu, útgeislun, raddbeitingu og framsögn. Kennd er textauppbygging fyrir fyrirlestra, greinar og fréttatilkynningar. Nemendur fá æfingu í ræðuflutningi og kynningum auk þess sem farið verður í samskipti við fjölmiðla og framkomu í sjónvarpi, útvarpi, fréttum og viðtalsþáttum með æfingum fyrir framan upptökuvél.
Leiðbeinandi: María Ellingssen, BA í leiklist frá New York Háskóla, leikstjóri og fjölmiðlakona.
Markaðssamskiptaherferð
Nemendur vinna saman í litlum hópum að raunhæfu verkefni fyrir fyrirtæki eða vörumerki. Allir hópar vinna fyrir sama fyrirtæki og keppast að því að fá viðkomandi fyrirtæki í viðskipti við sig. Um er að ræða heildstæða markaðssamskiptaáætlun sem tekur á öllum markaðssamskiptaþörfum viðkomandi fyrirtækis eða vörumerkis. Verkefnið er unnið yfir nokkurra vikna tímabil. Hóparnir hitta leiðbeinendur reglulega á tímabilinu, kynna framgang verkefnisins og fá persónulega endurgjöf. Námskeiðinu lýkur svo með kynningu verkefnis fyrir leiðbeinendum og fulltrúum fyrirtækisins.
Leiðbeinandi er Árni Árnason, MA í Markaðssamskiptum. Stundakennari við Háskólann í Reykjavík.
* Upplýsingar um námsbrautina eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestir eru til 5. júní og 31. ágúst 2012. Svar við umsóknum sem berast fyrir 5. júní verður svarað eigi síðar en 15. júní 2012.
Verð
Námsbraut í markaðssamskiptum og almannatengslum kostar kr. 485.000,-
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn:
- Staðfest afrit prófskríteina verða að fylgja umsókn svo að hún sé tekin gild.
- Meðmælabréf (kostur en ekki skylda).
- Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar eftir inngöngu.
Fylgigögnum umsókna er hægt að skila rafrænt með umsókn eða beint til verkefnastjóra námsins.
Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námsbraut jafngildir samningi um greiðslu námsbrautar. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta kr. 50.000,- í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námi með minna en tveggja vikna fyrirvara áður en það hefst. Ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði með minna en einnar viku fyrirvara áður en námskeið hefst áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald. Úrsögn úr námskeiði skal ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar

Elísabet I. Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
elisabet@ru.is
S: 599 6296

