Opni háskólinn býður upp á hagnýta námsbraut í mannauðsstjórnun, nám samhliða vinnu. Námið hentar þeim sem sinna mannauðsmálum innan fyrirtækja hvort sem er stórum eða smáum og vilja kynna sér helstu lykilþætti mannauðsstjórnunar. Námið hentar einnig þeim sem hafa hug á því að skipta um starfsvettvang eða vilja einfaldlega dýpka þekkingu sína á mannauðsmálum.
Markmið námsins er að nemendur fái hagnýta þekkingu á mannauðsstjórnun og tilgangi hennar og fái nægilega þekkingu og hæfni til að geta nýtt sér námið í starfi á markvissan og árangursríkan hátt.
„Námið jók skilning minn svo um munaði um réttindi starfsmanna og að hverju þarf að huga í því sambandi. Ég er þegar farinn að nýta mér þá þekkingu sem ég aflaði mér markvisst í starfi mínu.“
Þröstur Sigurðsson, sölu- og viðskiptastjóri Securitas
Kennslufyrirkomulag
- Námið hefst haustið 2011 og lýkur í maí 2012.
- Kennsla hefst í september 2010.
- Námið samanstendur af sex námskeiðum.
- Kennt er í 5-6 vikna lotum þar sem hverju námskeiði lýkur með prófi eða verkefni.
Námskeiðslýsingar
Skipulag og stjórnun
Fjallað er um skipulagsheildir, einkenni þeirra og uppbyggingu. Helstu viðfangsefni í stjórnun fyrirtækja og stofnana eru kynnt og rædd með tilliti til rekstrarumhverfis og breytinga í atvinnulífi. Skoðuð er stefna og stefnumótun skipulagsheilda, grunnatriði stjórnskipulags, ytra umhverfi fyrirtækja, tengsl á milli og innan fyrirtækja, æviskeið fyrirtækja og menning skipulagsheilda sem og siðferðisleg gildi. Fjallað er um þróun og breytingar skipulagsheilda, ákvarðanatökur og ákvarðanatökuferli, ágreining og vald innan fyrirtækja og ný viðfangsefni í rekstri og skipulagi skipulagsheilda.
Leiðbeinandi: Hrefna S. Briem, MSc. Forstöðumaður BSc náms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.
Mannauðsstjórnun
Fjallað er um stefnumiðaða mannauðsstjórnun, breytingar á vinnumarkaði, áhrif þess á stjórnun starfsmannamála. Farið er í ferli mannauðsstjórnunar frá ráðningu til starfsloka. Áhersla er lögð á tengsl mannauðsstjórnunar við stefnumótun fyrirtækja og stofnana, rétta verkaskiptingu almennra stjórnenda og starfsmannadeilda og mælingar á árangri. Verklegar æfingar og lausn raundæma er ætlað að þjálfa ýmiss atriði námsins.
Leiðbeinandi: Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir, MBA frá HR. Ráðgjafi og meðeigandi Attentus - Mannauður og ráðgjöf.
Hagnýt vinnusálfræði
Leitast verður við að gefa nemendum fræðilega yfirsýn yfir vinnusálfræðina sem vísindagrein og kynnast helstu kenningum í fræðunum. Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að nýta sálfræðilega þekkingu og aðferðir við að ná árangri fyrirtækja í gegnum starfsmenn. Einnig verður leitast við að nemendur læri að leysa hagnýt vandamál tengd mannlegum þáttum á vinnustað og öðlist leikni í að lesa vísindagreinar og kynna niðurstöður kannana.
Leiðbeinandi: Anna María Pétursdóttir, MSc., starfsmannastjóri hjá Vífilfelli.
Fræðsla, þjálfun og starfsþróun
Fjallað verður um hugtök tengd fræðslu, þjálfun og starfsþróun á vinnumarkaði s.s. fullorðinsfræðslu, sí- og endurmenntun, starfsþjálfun, starfsþróun, vinnustaðanám o.fl. Nemendum verði kynntar aðferðir til greiningar fræðsluþarfa og í framhaldi af því skipulag náms og þjálfunar á vinnustöðum. Fjallað verður m.a. um kennsluaðferðir í fullorðinsfræðslu og starfsþjálfun á vinnustöðum, hvatningu til náms, tengsl náms og þjálfunar og starfsþróunar. Ávinning fyrirtækja og stofnana að skipulögðu fræðslustarfi, þjálfun og starfsþróun.
Leiðbeinandi: Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, MSc. Stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og einn af eigendum HRM rannsóknir og ráðgjöf.
Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
Fjallað verður um vinnumarkaðsfræði og helstu hugtök á því sviði. Einkenni og þróun íslensks vinnumarkaðar verða skoðuð og tengsl hans við hagþróun gerð skil. Fjallað verður um aðila og samtök á vinnumarkaði, samskipti og réttarstöðu. Fjallað verður um átök á vinnumarkaði, verkföll og verkbönn og launamál, launadreifingu, launaþróun og kaupmáttarþróun. Auk þess verður fjallað um atvinnuleysi, tegundir þess og atvinnustig.
Fjallað verður um þær reglur sem gilda um samskipti vinnuveitanda og stéttarfélaga, aðild starfsmanna að stéttarfélögum, trúnaðarmenn, kjarasamninga og túlkun þeirra og vinnudeilur. Þá verður fjallað ítarlega um réttindi og skyldur aðila ráðningarsambands, s.s. varðandi ráðningar og uppsagnir, vinnuskyldu, trúnað, veikindarétt, jafnréttislög og framkvæmd þeirra, upplýsinga og samráðsskyldu vinnuveitanda gagnvart starfsmönnum o.fl.
Leiðbeinandi: TBA
Leiðtogafræði
Fjallað verður um mikilvægi forystu og helstu hugtök leiðtogafræða skoðuð. Nemendur fá tækifæri til að skoða og þróa þekkingu sína og skilning á leiðtogahlutverkinu. Kennd verður hugmynda- og aðferðafræði markþjálfunar (coaching) og fá nemendur hagnýta þjálfun í að leiða einstaklinga og teymi til aukinnar frammistöðu.
Leiðbeinandi: Sigurður Ragnarsson, MBA. Stundakennari við viðskiptadeild HR.
Námsbraut í mannauðsstjórnun gefur ekki ECTS einingar. Hvert námskeið er samtals 120-180 klukkustundir þar af eru 23-35 klukkustundir í tímasókn. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Við lok námsbrautar fá nemendur afhent prófskírteini.
* Upplýsingar um námsbrautina eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Verð
Námsbraut í mannauðsstjórnun kostar kr. 450.000,-
SÆKJA UM HÉR
* Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2011.
Umsóknum sem berast fyrir 31. maí verður svarað í júní, öðrum umsóknum verður svarað í lok ágúst.
Inngönguskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði. Nemendur með grunnháskólamenntun fá forgang í námið.
Forföll og innheimta
Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta kr. 50.000 í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði skriflega a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Fyrir þá sem það vilja þá býður fjármáladeild HR uppá raðgreiðslur á kreditkortum. Ef óskað er eftir raðgreiðslu þarf greiðandi að hafa samband við fjármálasvið Háskólans í Reykjavík í síma 599 6200 eftir að reikningur hefur borist. Ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður eftir að nám er hafið.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353

