Flutninga- og vörustjórnun (Logistics)

Námsbraut í Flutninga- og vörustjórnun


Opni háskólinn býður í þriðja sinn hagnýtt nám í Flutninga- og vörustjórnun (Logistics) á háskólastigi samhliða vinnu.
 

Námsbraut í Flutninga- og vörustjórnun  kynnir hagnýtar og fræðilegar aðferðir sem notaðar eru í flutningagreininni. Námið er heildstæð námsbraut á háskólastigi sem er ætluð þeim sem starfa eða hafa áhuga á að starfa við hvert það starf sem tengist flutningagreininni ásamt því að stunda nám samhliða vinnu. Þetta geta t.d. verið störf hjá flutningafyrirtækjum, heildsölum, póstþjónustufyrirtækjum, smásölum, inn- og útflutningsfyrirtækjum, við birgðastýringu og svo mætti lengi telja.

FlutningafræðiNámið er fjölbreytt og samanstendur af sex námskeiðum sem miða öll að því að dýpka skilning nemenda og efla faglega þekkingu á sviði flutninga, innkaupa og dreifingar með áherslu á umbætur í rekstri með aðferðum rekstrarstjórnunar. Mikil áhersla er einnig lögð á að nemendur læri einnig hver af öðrum og fái miðlað reynslu sinni og þekkingu. Kennarar hafa víðtæka akademíska reynslu og starfsreynslu hver á sínu sviði. Farnar eru vettvangsferðir í tengslum við námið og fengnir að gestakennarar sem búa yfir sérþekkingu innan flutningagreinarinnar.

Námskeiðin eru kennd í lotum og lýkur hverju þeirra með prófi eða verkefni. Námskeiðin eru; flutningastjórnun, markaðsfræði, rekstrarstjórnun, vörustjórnun, þjónustustjórnun og að endingu lokaverkefni. Lokaverkefnið er sjálfstæð úttekt nemenda á afmörkuðum spurningum innan efnistaka flutningafræðinnar og er ætlað að hnýta saman þá þekkingu sem nemendur hafa aflað sér í gegnum námið. Niðurstaða lokaverkefnisins er að leggja fram tillögu eða lausn fyrir fyrirtæki sem starfar á sviði flutningamála og sem hægt er að rökstyðja með fræðilegum hætti. 

 

Umsagnir nemenda

Bergvin"Námsbraut í flutninga - og vörustjórnun dýpkaði skilning minn á rekstri þar sem birgðir og vöruflæði skipta höfuð máli. Námið tengir saman flutninga, rekstur, markaðsmál, birgðastýringu og þjónustustjórnun á mjög einfaldan og skilningsríkan hátt. Sjálfur hef ég unnið við flutninga í 24 ár. Þegar ég hóf nám við námsbrautina hjá Opna Háskólanum komst ég að því hvað þekking mín var mjög einskorðuð við dagleg störf. Námið mun nýtast í starfi þar sem skilningur minn á snertiflötum fræðanna hefur aukist til muna. Mæli eindregið með þessu námi fyrir alla þá sem starfa á einhvern hátt við flutninga eða birgðastýringu." 

 - Bergvin Þórðarson, Öryggisstjóri / verndarfulltrúi hafnarsvæðis Samskipa

 

Gudni"Skilningur minn á rekstri fyrirtækja hefur stóraukist eftir nám í Flutninga - og vörustjórnun. Ég hef mun víðtækari skilning á rekstri fyrirtækja, hvort sem um er að ræða birgðarhald, þjónustustýringu eða markaðssetningu fyrirtækja. Í náminu fléttast saman á mjög skemmtilegan hátt starfsreynsla nemenda og aðferðafræðin sem verið er að kenna í Opna Háskólanum. Ég mæli hiklaust með þessu námi, hvort sem starfað er við flutninga eða stýringu aðfanga. Námið hjálpar til við að skilja mikilvægi þjónustu og markaðssettningar betur."

- Guðni Þórarinsson, Viðskiptastjóri hjá Samskip

 

Kennslufyrirkomulag

  • Kennsla hefst 23. janúar 2012
  • Kennt er í 6 vikna lotum þar sem hverju námskeiði lýkur með prófi eða verkefni
  • Kennt er á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16:30-20:00
  • Náminu lýkur með skilum á lokaverkefni í desember 2012.
  • Boðið verður upp á undirbúningsnámskeið í stærðfræði og excel grunni fyrir nemendur
  •  

Námskeiðslýsingar

Flutningastjórnun (Transportation Management)

Á námskeiðinu verður farið yfir þróun flutningastjórnunar og flutningatækni og helstu hugtök kynnt. Meðal efnis verður sjóflutningakerfi, landflutningar og flugflutningar, umhverfi flutningafyrirtækja og samkeppnisþættir. Farið er yfir dreifingaleiðir, tíðni flutninga og alþjóðlega flutninga með áherslu á flutninga til og frá Íslandi og innanlands. Fjallað verður um flutningatækni, geymslutækni, forflutninga og framhaldsflutninga, samskipti við birgja, tollayfirvöld og hafnarfyrirtæki svo og upplýsingatækni í flutningum. 

Leiðbeinandi: Kristján M. Ólafsson hagverkfræðingur.

 

Markaðsfræði (Marketing)

Farið er í gegnum grunnþætti markaðsfræðinnar. Námskeiðið byggir á fjórum meginþáttum í bók Kotlers: Að skilja grunnþætti markaðsstarfs. Að greina markaðstæki. Að setja saman tilboð til viðskiptavina og stýringu og framkvæmd markaðsþátta. Í lok námskeiðsins eiga nemendur að hafa öðlast skilning á mikilvægi markaðsstarfs í daglegri starfsemi fyrirtækja og hafa næga innsýn til að móta og framfylgja markaðsáætlun.

Leiðbeinandi: Árni Árnason, MA Markaðssamskipti, stundakennari við viðskiptadeild HR.

 

Rekstrarstjórnun (Operations Management)

Rekstrarstjórnun fjallar um framleiðslu vara og þjónustu. Fjallað er um hvernig hlutverk og markmið rekstrarins er skilgreint út frá stefnu fyrirtækis, jafnframt áhrif rekstrarstjórnunar á stefnu fyrirtækis. Farið yfir mikilvægi heildarferla í skipulagi fyrirtækja og stefnumótun (resource-based view). Mótun rekstrarstefnu og tengsl hennar við viðskiptastefnu. Þá er fjallað um helstu aðferðir og hugmyndafræði í hönnun ferla, vöru og þjónustu. Ennfremur um áætlanagerð og stýringu t.d. afkastagetu, birgða, aðfangakeðja. Þá er fjallað um verkefnastjórnun, gæðaeftirlit og stjórnun. Spálíkön eru kynnt. Farið er yfir  arðsemisútreikninga og framlegð. Loks er fjallað um umbætur í rekstri og gæðastjórnun.

Leiðbeinandi: Reynir Kristjánsson, M.Sc. Stundakennari við viðskiptadeild HR og stjórnunarráðgjafi hjá ParX.

 

Vörustjórnun (Supply Chain Management)

Vörustjórnun (Logistics) tekur á þáttum er varða flæði íhluta, vöru og upplýsinga í hinu einstaka fyrirtæki. Grundvöllur fagsins er skipulags- og stjórnunarleg vandamál tengdum aðgerðum ss. viðskiptaþjónusta, innkaup, lager, flutningar, vöruhús, dreifing; allt aðgerðir sem hafa snertiflöt með öðrum fræðigreinum, sér í lagi rekstrarstjórnun og markaðsfræðum. Þessar aðgerðir eru ekki einungis mikilvægar fyrir framleiðslu- og verslunarfyrirtæki, heldur standa þjónustufyrirtæki og opinberar stofnanir frammi fyrir ákvörðunartöku og stefnum, sem byggja á verkfærum vörustjórnunar.

Leiðbeinandi: Hlynur Stefánsson, MSc, PhD. Lektor við Tækni- og verkfræðideild HR.

 

Þjónustustjórnun (Service Management)

Þjónustufyrirtæki gegna lykilhlutverki í öllum hagkerfum.  U.þ.b. 60-80% af þjóðarframleiðslu þróaðra ríkja kemur frá þjónustugreinum.  Í námskeiðinu skoðum við sérstöðu þjónustu og þjónustumarkaða og berum saman við hefðbundnar vörur.   Við skilgreinum þjónustu og förum yfir hin „8P“þjónustunnar (product, place, price, promotion, process, physical environment, people og productivity).  Við skoðum muninn á grunn- og viðbótarþjónustu, mörkun (branding) þjónustu, þjónustuveitingu á netinu, útrás og alþjóðavæðingu, verðlagningu, markaðshlutun og staðsetningu (positioning).   Einnig veltum við fyrir okkur stjórnun í þjónustufyrirtækjum og lykilþáttum sem snúa að mannauðsstjórnun í fyrirtækjum.

Leiðbeinandi: Kristinn Tryggvi Gunnarsson, MBA. Stjórnunarráðgjafi og eigandi Expectus, stundakennari við viðskiptadeild HR.

 

Lokaverkefni

Verkefnin skulu vera sjálfstæðar úttektir nemenda á afmörkuðum spurningum innan efnistaka flutningafræðinnar. Nemendur vinna saman í litlum hópum að raunhæfu verkefni fyrir fyrirtæki. Verkefnið er unnið yfir nokkurra vikna tímabil.

Nemendur þurfa að fá til samstarfs fyrirtæki eða stofnun sem samþykkir að verkefnið sé unnið innan þess. Verkefnið felst í að skilgreina ákveðið viðfangsefni sem viðkomandi stofnun eða fyrirtæki stendur frammi fyrir, og verður það að tengjast ákveðnu sviði á vettvangi flutningafræðinnar.

 
* Upplýsingar um námið eru birtar með fyrirvara um breytingar.

 

Verð

Námsbraut í Flutninga- og vörustjórnun kostar kr. 450.000,-

 

Inntökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun og haldbær reynsla af vinnumarkaði. Þeir sem hafa lokið háskólaprófi njóta forgangs í námið. Lágmarksaldur nemenda eru 25 ár.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókn:

  • Staðfest afrit prófskríteina verða að fylgja umsókn svo að hún sé tekin gild.
  • Meðmælabréf (kostur en ekki skylda).
  • Á rafrænu umsóknareyðublaði þarf jafnframt að tilgreina hvers vegna umsækjandi óskar eftir inngöngu.

Fylgigögnum umsókna er hægt að skila rafrænt með umsókn eða beint til verkefnastjóra námsins.

 

Mat á einingum

Námsbraut í flutningafræði við Opna háskólann er kennd á háskólastigi en veitir ekki ECTS einingar.

Hvert námskeið brautarinnar samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

Við lok námsbrautar fá nemendur afhent prófskírteini og staðfestingu á námsárangri. Nemendur þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum með lágmarkseinkunn til að fá afhend prófskríteini við lok námsbrautar.

 

Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námsbraut jafngildir samningi um greiðslu námsbrautar. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta kr. 50.000,- í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námi með minna en tveggja vikna fyrirvara áður en það hefst. Ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði með minna en einnar viku fyrirvara áður en námskeið hefst áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald. Úrsögn úr námskeiði skal ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið.
Sjá greiðsluskilmála

Nánari upplýsingar

 
elisabet Elísabet I. Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
elisabet@hr.is
Sími: 599 6296   








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica