Hagnýtar upplýsingar námsbrauta

Ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir nemendur námsbrauta Opna háskólans

 

Opni háskólinn í HR

Opni háskólinn (OH) er staðsettur á 2.hæð skólans í Mars álmu. Móttaka OH er opin alla virka daga á milli kl.8:30 og 16:00. Kennslustofur sem tilheyra OH eru M215. M216 og M217.

Nemendur Opna háskólans hafa aðgang að kaffi- og vatnsvélum í sameiginlegu veitingarými á hæðinni.

 

Samskiptanet nemenda

Til þess að auðvelda nemendum að halda utan um námskeið námsbrauta fá þeir aðgang að samskiptaneti Opna háskólans þar sem fram koma allar helstu upplýsingar um nemandann sjálfan og námskeiðin. Þarna má finna upplýsingar um fyrirlestra, kennsluáætlun, námsmat, hæfniviðmið, kennslubók, tilkynningar frá kennara og verkefnastjóra, einkunnir og ýmislegt fleira. Þarna geta nemendur m.a. skilað rafrænt inn verkefnum til kennara.

Stuttu áður en nám hefst fá nemendur sendan notendaaðgang að samskiptaneti Opna háskólans.

Til þess að skrá sig inn á samskiptanetið þarf að fylgja eftirfarandi skrefum:

1.         Farðu inn á heimasíðu Opna háskólans www.opnihaskolinn.is.

2.         Ofarlega á síðunni er flipi „samskiptanet“.

3.         Sláðu inn notendanafn og lykilorð (Gott að breyta lykilorðinu eftir fyrstu innskráningu).

4.         Smelltu á „stök námskeið“.

5.         Hægra megin má sjá tilkynningar, hæfniviðmið, lýsingu, fyrirlestra og ýmislegt annað.

6.         Kennarar sjá um að setja fyrirlestra og annað efni inn á síðuna þannig að nemendur geti nálgast það fyrir hverja kennslustund.

Við biðjum þig um að fylgjast vel með því sem gerist á þessari síðu en þar einnig eru birtar mikilvægar upplýsingar eins og stofubreytingar eða forföll kennara eftir því sem við á.

 

Þráðlaust net

Vefur: help.ru.is

Þar er hægt að finna upplýsingar varðandi tæknimál og leiðbeiningar við uppsetningu á þráðlausu neti fyrir öll helstu stýrikerfi (undir Knowledgebase).

Í upphafi náms útvegar Opni háskólinn nemendum námsbrauta aðgang (notendanafn og lykilorð) að þráðlausu neti.

 

Aðgangsstýringar

Í upphafi náms útvegar Opni háskólinn nemendum aðgangskort að skólanum. Byggingin er opin frá kl.7:30 til 20:00 á kvöldin alla virka daga en nemendur ættu að hafa kortin ávallt meðferðis þar sem ákveðin svæði eru aðgangsstýrð allan sólarhringinn. Byggingin er opin á milli kl.8:00 og 18:00 um helgar.

 

Móttaka HR

Þjónustuborðið í Sólinni (aðalinngangur skólans að framanverðu) – almenn þjónusta við gesti, nemendur og starfsmenn.

Opnunartími: kl.8:00 - 17:00 alla virka daga.

 

Aðalsímanúmer skólans: 599 6200. Skiptiborðið er opið frá kl.8:00 til 17:00.

 

Greiðslumöguleikar

Fyrir þá sem það vilja þá býður fjármáladeild HR uppá raðgreiðslur með kreditkortum. Ef óskað er eftir raðgreiðslu þarf greiðandi að hafa samband við  fjármálasvið Háskólans í Reykjavík í síma 599 6200 eftir að reikningur hefur borist.  Ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður eftir að nám er hafið. Sjá greiðsluskilmála.

Við bendum á að flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Nýttu þér tækifærið og kannaðu þinn rétt. Sjá möguleika á námsstyrkjum.

 

Málið

Málið er mötuneyti HR. Það er opið frá kl.8:00 til 18:00, mánudaga til fimmtudaga og frá kl.8:00 til 16:00 á föstudögum.

Sjá matseðil vikunnar á malid.hr.is.

 

Te & Kaffi

Te & Kaffi er með kaffihús í Sólinni. Það er opið frá kl.8:00 til kl.22:00 alla virka daga þegar skólastarf er í gangi. Á laugardögum er opið frá kl.9:30 til 16:30 og á sunnudögum er opið frá kl.11:00 til 16:00.

 

Heilsurækt

World Class heilsuræktarstöð er staðsett í kjallara í Sólinni. Í stöðinni er 200 fermetra fullbúinn tækjasalur. Nemendur sem eiga kort í stöðinni geta stundað heilsurækt þar allan sólarhringinn.

Bóksala stúdenta í Nauthólsvík

Boðið er upp á allar þær námsbækur sem kenndar eru í HR, handbækur og ritföng, auk ýmissa annarra bóka og tímarita. Allar bækur verða á sama verði og í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi og þær bækur sem aðeins eru til í búðinni á Háskólatorgi geta nemendur í HR pantað og þá verða þær komnar í HR-búðina í síðasta lagi næsta virka dag.

Opnunartími Bóksölunnar í Nauthólsvík er frá kl.10:30 til kl 17:00 alla virka daga.

Kennslubækur eru ekki innifaldar í verði námsbrauta nema annað sé tekið fram.

 

Bókasafn

Nemendur námsbrauta Opna háskólans hafa aðgang að bókasafni HR sem staðsett er í Úranusi, á bakvið móttökuna í Sólinni. Þeir verða skráðir inn í gagnagrunn safnsins í upphafi náms og geta þar með leigt þar bækur meðan á námi stendur.

Bókasafnið er opið mánudaga til fimmtudaga frá kl.8:00 til 19:00, föstudaga frá kl.8:00 til 17:00, laugardaga frá kl.10:00 til 16:00 og sunnudaga frá kl.11:00 til 16:00.

Ljósritunarvélar eru staðsettar fyrir framan bókasafnið. Nemendur geta keypt ljósritunarkort í móttöku skólans á 1.hæð í Sólinni. 200 blöð 1.100 kr. / 100 blöð 600 kr.

 

Prentkvóti

Prentarar eru staðsettir á nokkrum stöðum á göngum skólans og merktir með nafni. Nemendur námsbrauta Opna háskólans eiga kost á því að kaupa sér prentkvóta í móttöku skólans á 1.hæð í Sólinni. 1 blað í svarthvítu 5 kr. / 1 blað í lit - 20 kr.

 

Les- og vinnuaðstaða nemenda

2. hæð Venus (Kassíópeia 1-4) og Sólin 2. hæð

2. hæð Venus (V.2.01) og Sólin 3. hæð

Gert er ráð fyrir því að á 3. hæðinni í Sólinni sé meira næði en á öðrum hæðum. Við biðjum ykkur vinsamlegast að virða það.

 

Hafi nemendur áhuga á að fá lánaðar almennar kennslustofur Opna háskólans til prófundirbúnings eða verkefnavinnu er hægt að hafa samband við verkefnastjóra.

 

Námsráðgjöf

Stúdentaþjónustan er staðsett á 1.hæð í Úranus. Opnir viðtalstímar náms- og starfsráðgjafa eru í boði alla daga nema föstudaga, ekki þarf að bóka tíma í opna viðtalstíma. Til að bóka viðtal á öðrum tíma er hægt að senda tölvupóst til námsgráðgjafa sth@ru.is.

Opnir viðtalstímar eru alla daga nema föstudaga frá kl.13:30 til 16:00.

 

Náms- og prófareglur HR

Nemendum er bent á að kynna sér reglur Háskólans í Reykjavík varðandi náms- og prófareglur en þær er að finna á heimasíðu HR hér: http://www.ru.is/namid/ertu-ad-spa-i-hr/nams--og-profareglur-hr/

 

Siðareglur HR

Við minnum þátttakendur á námskeiðum Opna háskólans að þeir eru bundnir sömu siðareglum og aðrir nemendur HR en þær má sjá hér: http://www.ru.is/haskolinn/sidareglur-hr/

 

Mat á námskeiðum

Námsbrautir Opna háskólans gefa ígildi ECTS eininga og samsvara allt að 36 ECTS einingum. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

Við lok námsbrautar fá nemendur afhent prófskírteini og staðfestingu á námsárangri. Nemendur þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum með lágmarkseinkunn til að fá afhend prófskríteini við lok námsbrautar.








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica