Námsbrautir

OPNI HÁSKÓLINN BÝÐUR FJÖLBREYTT ÚRVAL NÁMSBRAUTA - NÁM SAMHLIÐA VINNU

PMD2Námið er fjölbreytt og lifandi og miðar að því að dýpka skilning nemenda og efla faglega þekkingu á ákveðnum sérsviðum. Námið hentar þeim sem hafa áhuga á námi á háskólastigi en vilja þó ekki láta af starfi né skrá sig í fullt nám. Námsbrautirnar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og auka við menntun sína. Lögð er áhersla á öflug tengsl við atvinnulífið, hagnýta nálgun með raunhæfum verkefnum og virkni nemenda.

Opni háskólinn býður auk þess upp á skemmtilegt og lifandi umhverfi til náms þar sem öll kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík við Nauthólsvík.
 

NÁMSBRAUTIR HAUST 2012

Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun (Transparent Project Leadership and Sustainable Project Management)

Markaðssamskipti og almannatengsl

Verkefnastjórnun APME (Applied Project Management Expert)

Rekstrarstjórnun (Operation Management)

 

NÁMSBRAUTIR VOR 2013

Markþjálfun (Executive Coaching)

Flutninga- og vörustjórnun (Logistics)

 

Markmið Opna háskólans er að virkja þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði með faglegu og hagnýtu námi. Námsbrautir okkar hafa verið byggðar upp með þarfir atvinnulífsins að leiðarljósi í nánu samstarfi við sérfræðinga innan viðkomandi atvinnugreina.

Námsbrautir Opna háskólans eru á háskólastigi. Þær veita ekki ECTS einingar nema annað sé tekið fram, en að baki hverju námskeiði innan brautar er áætlað um 150 - 180 klst vinnuframlag sem samsvarar allt að 6 ECTS einingum í akademískri deild. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna, lestur og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

Við lok námsbrautar fá nemendur afhent prófskírteini og staðfestingu á námsárangri. Nemendur þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum með lágmarkseinkunn til að fá afhend prófskríteini við lok námsbrautar. Sjá nánar náms og prófareglur HR.

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica