Viðurkenndir bókarar

Opni háskólinn í HR í samvinnu við Fjármálaráðuneytið býður áhugasömum að sitja réttindanám fyrir bókara. Námið skiptist í þrjá hluta; skattskil, upplýsingakerfi og reikningshald og er kennt einu sinni á ári (frá ágúst til desember). Þeir nemendur sem standast prófin fá staðfestingu frá Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og þar með leyfi til að titla sig viðurkennda bókara, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald.

 

Skráning hér

Opið er fyrir umsóknir til 10. ágúst 2012 


I. hluti - Skattskil (40 klst.)

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga. Auk þess er lögð áhersla á að bæta þekkingu þátttakenda á upplýsingaskyldu og verklagi varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta.

Kennsla hefst í ágúst 2011

 

II. hluti - Upplýsingamiðlun og upplýsingakerfi (31 klst.)

Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning þátttakenda á áhrifum upplýsingakerfa nútímans á reikningshald og rafræn samskipti. Mikil áhersla er lögð á Excel (2007).

Kennsla hefst í október 2011

 

III. hluti - Reikningshald (40 klst.)

Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning þátttakenda á meginreglum reikningshalds og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á.

Kennsla hefst í  nóvember 2011

 

Kennslufyrirkomulag:

Kennsla er í formi fyrirlestra, nema þegar nemendur eru í tölvustofum í upplýsingatæknihlutanum.
Í Upplýsingatæknihlutanum er nemendum skipt í hópa. Hluti nemenda mun því koma til með að sitja tíma á laugardögum eða sunnudögum í stað föstudags og jafnvel einhvern þriðjudag eða miðvikudag.
 

Undirbúningsnámskeið verður haldið áður en námið hefst. 
Nemendur fá upplýsingar um skráningu þegar umsóknum er svarað. 

  

Markmið með náminu:

  • Að þátttakendur öðlist dýpri þekkingu á bókhaldi, reikningsskilum og skattskilum.  
  • Að þátttakendur öðlist hæfni við að nýta upplýsingatækni við störf sín.
  • Að þátttakendur öðlist enn meiri víðsýni og verði verðmætari starfskraftar.
  • Að þátttakendur geti beitt enn betri og vandaðri vinnubrögðum í starfi.

 

Vinsamlega athugið:

  • Námið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum.
  • Mælt er með því að umsækjendur hafi unnið við bókhald í amk 2-3 ár og hafi á þeim tíma sinnt margvíslegum og krefjandi bókhaldsstörfum.
  • Námið er á háskólastigi.
  • Námið er fagnám og er mjög umfangsmikið. Þátttakendur mega gera ráð fyrir að þurfa að taka sér frí frá vinnu á mestu álagstímum í náminu.
  • Góð reynsla og þekking á Excel, bókhaldi, reikningshaldi og skattalegum atriðum er nauðsynleg. Þeir sem eru ekki vissir um getu sína í einhverju fyrrgreindra eiga þess kost að sitja námskeiðið Almennir bókarar vorið 2010 áður en þeir sækja um í viðurkennda bókara. Seta í því námskeiði tryggir samt ekki inngöngu í viðurkennda bókara.
  • Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur eru einungis skoðaðar ef taka skal inn af biðlista í námskeið.
  • Greitt er fyrir námið um leið og samþykki berst fyrir náminu. Greiðsluseðlar eru sendir með pósti og skulu greiðast ÁÐUR en námið hefst. Ef greiðsla hefur ekki borist áður en námið hefst fellur réttur þess einstaklings til að sitja námið niður.

 

Upplýsingar varðandi próf, einkunnagjöf:


Prófin eru 3 klst. að lengd. 


Ná verður að lágmarki 5,0 á lokaprófi til að verkefni gildi og þarf að ná heildarmeðaleinkunn úr náminu 7,0 til að hljóta titilinn Viðurkenndur bókari. Þeir þátttakendur sem taka allt námskeiðið en ná ekki 7,0 í meðaleinkunn geta komið aftur og tekið einn eða fleiri hluta gegn hlutfallslegri greiðslu.  Einnig er hægt að taka endurtektarpróf og er þá greitt fyrir það sérstaklega
kr. 10.500,-.

Námið er alls 110 klst. að lengd.

Þátttökugjald er samtals kr. 265.000,-*. Þátttökugjald greiðist um leið og viðkomandi er samþykktur í námið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

* ath. verð getur breyst án fyrirvara.

 

Hægt er að sækja um námið rafrænt hér að neðan. Athugið að mikilvægt er að fylla út allar nauðsynlegar upplýsingar svo starfsmenn Opna háskólans geti haft samband ef upplýsingar vantar og þegar umsóknum er svarað í júní.


Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Opna háskólans í HR í síma 599 6387 eða í gegnum tölvupóst bryndisb@hr.is


 

Upplýsingar varðandi umsókn

 Nauðsynlegar upplýsingar við umsókn eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Tölvupóstfang
  • Símanúmer - helst GSM, heimasími og vinnusími
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
  • Upplýsingar um menntun
  • Upplýsingar um reynslu
  • Fylgiskjöl eins og til dæmis ferilskrá, meðmælabréf og afrit af prófskírteinum eða viðurkenningarskjölum ef við á (ekki skilyrði).

Vinsamlegast athugið:

  • Upplýsingar sem umsækjandi tekur fram í umsókninni eru notaðar til þess að meta viðkomandi inn í námið. Nauðsynlegt er að fylla út ALLAR helstu upplýsingar svo hægt sé að meta umsækjendur þar sem um takmarkað sætaframboð er að ræða.
  • Fylgiskjöl eru einungis ætluð til þess að bæta við það sem ekki kemur fram annarstaðar. Fylgiskjöl eru EKKI skilyrði. Ef umsækjandi hefur fleira en eitt fylgiskjal sem hann/hún vill skila inn skal viðkomandi sameina þau áður en þeim er bætt við umsókn.
  • ÖLLUM gögnum skal skila rafrænt.

 

Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta kr. 50.000,- í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námi með minna en tveggja vikna fyrirvara áður en það hefst. Ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði með minna en einnar viku fyrirvara áður en námskeið hefst áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald. Úrsögn úr námskeiði skal ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

Nánari upplýsingar


Bryndís Bjarnadóttir
verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
bryndisb@hr.is
599 6387

 


 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica