Viðurkenndir bókarar - Akureyri

Opni háskólinn í samstarfi við Símey- Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar bjóða áhugasömum að sitja réttindanám fyrir bókara. Námið skiptist í þrjá hluta; reikningshald, skattskil og upplýsingakerfi og er kennt einu sinni á ári (frá ágúst til desember). Þeir nemendur sem standast prófin fá staðfestingu frá fjármálaráðuneytinu að þeir séu viðurkenndir bókarar, skv. 43.grein laga nr. 145/1994 um bókhald. Námið er þríþætt:

 

 

Skráðu þig hér

Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2011

 

I. hluti - Skattskil (40 klst.)

 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái almenna innsýn í skattalög og reglur varðandi skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga. Auk þess er lögð áhersla á að bæta þekkingu þátttakenda á upplýsingaskyldu og verklagi varðandi virðisaukaskatt og aðra vörsluskatta.
Hefst í  ágúst 2011.

 

II. hluti - Upplýsingamiðlun og upplýsingakerfi (31 klst.)

 

Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning þátttakenda á áhrifum upplýsingakerfa nútímans á reikningshald og á rafræn samskipti. Mikil áhersla er lögð á Excel (2007).
Hefst  í október 2011

 

III. hluti - Reikningshald (40 klst.)

 

Markmið námskeiðsins er að dýpka skilning þátttakenda á meginreglum reikningshalds og því lagaumhverfi sem bókhald og reikningsskil eru byggð á.
Hefst í nóvember 2011

 

 

Kennslufyrirkomulag:


Kennsla er í formi fyrirlestra, nema þegar nemendur eru í tölvustöfum í upplýsingatæknihlutanum.


  

Markmið með náminu:

 

  • Að þátttakendur öðlist dýpri þekkingu á bókhaldi, reikningsskilum og skattskilum.  
  • Að þátttakendur öðlist hæfni við að nýta upplýsingatækni við störf sín.
  • Að þátttakendur öðlist enn meiri víðsýni og verði verðmætari starfskraftar.
  • Að þátttakendur geti beitt enn betri og vandaðri vinnubrögðum í starfi.

 

Mikilvægar dagsetningar:

 

  • Umsóknarfrestur var til 1. júlí  2011
  • Umsóknum er svarað tveimur vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út
  • Námið sjálft hefst í ágúst 2011

  

 

Vinsamlega athugið:

 

  • Námið er einkum ætlað starfsfólki bókhalds-, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja og sjálfstætt starfandi bókurum.
  • Mælt er með því að umsækjendur hafi unnið við bókhald í amk 2-3 ár og hafi á þeim tíma sinnt margvíslegum og krefjandi bókhaldsstörfum.
  • Námið er á háskólastigi og er metið til 6 eininga í viðskiptafræðinámi. 
  • Námið er fagnám og er mjög umfangsmikið. Þátttakendur mega gera ráð fyrir að þurfa að taka sér frí frá vinnu á mestu álagstímum í náminu.
  • Góð reynsla og þekking á Excel, bókhaldi, reikningshaldi og skattalegum atriðum er nauðsynleg. Þeir sem eru ekki vissir um getu sína í einhverju fyrrgreindra eiga þess kost að sitja námskeiðið Almennir bókarar vorið 2008 áður en þeir sækja um í viðurkennda bókara. Seta í því námskeiði tryggir samt ekki inngöngu í viðurkennda bókara.
  • Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur eru einungis skoðaðar ef taka skal inn af biðlista í námskeið.
  • Greitt er fyrir námið um leið og samþykki berst fyrir náminu. Greiðsluseðlar eru sendir með pósti og skulu greiðast ÁÐUR en námið hefst. Ef greiðsla hefur ekki borist áður en námið hefst fellur réttur þess einstaklings til að sitja námið niður.

 

 

Upplýsingar varðandi próf, einkunnagjöf.

 
Prófin eru 3 klst. að lengd. 


Ná verður að lágmarki 5,0 á lokaprófi til að verkefni gildi og þarf að ná heildarmeðaleinkunn úr náminu 7,0 til að hljóta titilinn viðurkenndur bókari. Þeir þátttakendur sem taka allt námskeiðið en ná ekki 7,0 í meðaleinkunn geta komið aftur og tekið einn eða fleiri hluta gegn hlutfallslegri greiðslu.  Einnig er hægt að taka endurtektarpróf og er þá greitt fyrir það sérstaklega kr. 10.000,-. Ef þeir sem sækja endurtektarpróf vilja fá aðgang að efni þess árs verða þeir að greiða efnis- skráningar- og umsýslukostnað kr. 10.000,-.

 

Námið er alls í kringum 110 klst. að lengd.

Þátttökugjald er samtals kr. 265.000*. Þátttökugjald greiðist um leið og viðkomandi er samþykktur í námið. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Hægt er að sækja um námið rafrænt hér að neðan. Athugið að mikilvægt er að fylla út alla nauðsynlegar upplýsingar svo starfsmenn FagMenntar geti haft samband ef upplýsingar vantar og þegar umsóknum er svarað í júní.


Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Opna háskólanum í  Háskólanum í Reykjavík í síma 599-6394 í  tölvupósti á hallaad@ru.is eða hjá Heimir Haraldsson heimir@simey.is í síma 460 5725

 

 

* ath. verð getur breyst án fyrirvara.

 Skráðu þig hér

 

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 1. júlí

 

 *Nauðsynlegar upplýsingar við umsókn eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Tölvupóstfang
  • Símanúmer -helst GSM, heimasími og vinnusími
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
  • Upplýsingar um menntun
  • Upplýsingar um reynslu
  • Fylgiskjöl eins og til dæmis ferilskrá, meðmælabréf og afrit af prófskírteinum eða viðurkenningarskjölum ef við á (ekki skilyrði).

ATH:

  • Upplýsingar í umsókn eru notaðar til þess að meta fólk inn í námið. Nauðsynlegt er að fylla út ALLAR helstu upplýsingar svo hægt sé að meta umsækjendur hlið við hlið.
  • Fylgiskjöld eru einungis ætluð til þess að bæta við það sem ekki kemur fram annarstaðar. Fylgiskjöl eru EKKI skilyrði. Ef umsækjandi hefur fleira en eitt fylgiskjal sem hann/hún vill skila inn skal viðkomandi sameina þau áður en þeim er bætt við umsókn.
  • ÖLLUM gögnum skal skila rafrænt.

 

*ATH: Ef umsækjandi hættir við umsókn eða hyggst ekki sitja nám af einhverjum ástæðum er nauðsynlegt að að láta vita skriflega a.m.k viku áður en námið hefst. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess að innheimta 10.000 króna skráningar- og umsýslugjald. Ef nemanda láist að skrá sig úr náminu eða skráir sig úr náminu eftir að það hefst áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt gjald.

 

ATH: Það er mjög mikilvægt að skoða þá greiðsluskilmála sem eiga við um hvert námskeið, þú getur skoðað það hér.

 

 


Halla Aðalsteinsdóttir

 

 

Halla Aðalsteinsdóttir,
verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
hallaad@ru.is / 599 6394


 

Það er Fagmennt Opna háskólans samvinnu við Fjármálaráðuneytið sem standa að þessu námi.

 

EFST á síðu








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica