Námskeiðið er kennt á 9 dögum
Uppspretta viðskiptahugmynda og frumkvöðlastarfs
Í fyrsta hluta námskeiðsins fá þátttakendur tækifæri til að kynna sig og sínar viðskiptahugmyndir. Einnig koma aðilar úr atvinnulífinu í heimsókn, segja frá sinni reynslu og gefa þátttakendum góð ráð þegar kemur að stofnun fyrirtækja. Þessir aðilar eiga það flestir sameiginlegt að hafa byrjað með litla hugmynd sem varð að einhverju stóru og í dag starfa þeir í sínu eigin fyrirtæki.
Leiðbeinendur: Hinir ýmsu gestafyrirlesarar úr atvinnulífinu
Dagsetning: 1. nóvember kl. 17:15 - 20:15
Stefnumótun og uppbygging fyrirtækisins
Í þessum hluta námskeiðsins verður farið yfir skilgreininguna á stefnumótun, ferlið sem þarf að fara í gegnum, hvaða þættir
þurfa að koma fram í viðskiptaáætlun og verkáætlun og síðast en ekki síst innri og ytri (SVÓT) greiningu. Líftíma vöru og þjónustu verða gerð góð skil sem og samkeppnisöflin fimm. Einnig verður lögð áhersla á markmiðasetningu og staðsetningu með tilliti til sérstöðu og vitundar á markaði. Farið verður yfir skipurit og helstu gerðir hennar, sem og starfslýsingar innan fyrirtækja.
Leiðbeinandi: Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Dagsetning: 3. nóvember kl. 17:15 - 20:15
Markaðsgreiningin: Markhópurinn og samkeppnisaðilar
Í þriðja hlutanum verður farið yfir rekstrar- og fjárhagsáætlun, markaðshugsun og þróun fyrirtækja. Farið verður ítarlega í hin fjögur P (e. price, product, place, promotion) og hvaða markaðstól er hægt að nýta sér á þessum vettvangi. Ytri og innri greining fyrirtækja verður kryfjuð til mergjar og þátttakendur kynntir fyrir markaðsrannsóknum og kostum slíkra rannsókna.
Leiðbeinandi: Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Dagsetning: 8. nóvember kl. 17:15 - 20:15
Lagaleg atriði við stofnun fyrirtækis
Hér verður farið yfir helstu félagaform í rekstri á Íslandi, svo sem sameignarfélög, samlagsfélög, einkahlutafélög og hlutafélög. Félögin eru borin saman og tekið er tillit til ýmissa þátta, t.d. skráningu, fjölda stofnenda og kostnað við stofnun. Kafað er í frádráttarbæran rekstrarkostnað og hvar sé best að leita sér að lagalegum upplýsingum um stofnun fyrirtækja. Þátttakendur fá raunhæft verkefni áður en komið er á námskeiðið sem þarf að leysa fyrir tímann. Farið er yfir það í sameiningu í tímanum sjálfum.
Leiðbeinandi: Anna Linda Bjarnadóttir, hdl, eigandi lögmannsstofunnar Lexista.
Dagsetning: 10. nóvember kl. 17:15 - 20:15
Gerð markaðs- og söluáætlunar
Á þessu námskeiði verður farið í þá þætti sem eru mikilvægir þegar kemur að gerð góðrar markaðs- og söluáætlunar. Farið er í tvo undirþætti markaðsáætlunar; stefnumarkandi og sérhæfðari áætlun. Farið verður í hönnun, innihald, mat og eftirlit markaðsáætlunar og þarfapíramída Maslows. Mikilvægt er að þekkja markaðsumhverfið og þá þætti sem innan þess eru, svo sem tækni, stjórnmál, lög og menningu. Fyrirtækjaeigiendur þurfa að geta greint tækifæri á markaði og í umhverfinu og hvernig hægt sé að nýta þau. Þátttakendur leysa verkefni í tíma.
Leiðbeinandi: Árni Árnason, stundakennari við viðskiptadeild HR og vörumerkjastjóri hjá Vífilfelli.
Dagsetning: 15. nóvember kl. 17:15 - 20:15
Fjármálin
Fjármál eru eflaust mikilvægasti hluti þess að stofna fyrirtæki og því fær sá hluti tvöfalt vægi á námskeiðinu og kennt í tvö skipti. Farið er í líftíma nýstofnaðra fyrirtækja og raktar eru upp helstu ástæður þess að fyrirtæki neyðast til að leggja upp laupana. Taldir verða upp eiginleikar góðrar viðskiptaáætlunar og helstu mistök sem hægt er að gera við smíð slíkrar áætlunar. Farið er í helstu lykiljöfnur sem notaðar eru við gerð fjárhagsáætlunar, hvaða ferli þarf að fara í gegnum til að móta stefnu í fjármálum og eru þátttakendur hvattir til að mynda sér framtíðarsýn. Farið er djúpt í áætlanagerð, af hverju hún er svo mikilvæg, hvaða upplýsingar hún þarf að geyma og hvernig er hægt að hafa eftirlit með áætlunum. Þátttakendum eru gefin góð ráð þegar kemur að gerð viðskiptaáætlunar og hvað þarf að hafa í huga. Taldir eru upp þeir þættir sem hafa áhrif á tekjur fyrirtækisins og hvernig er hægt að skapa þessar tekjur. Farið er í fastan og breytilegan kostnað, handbært fé og núllpunktsgreiningu og rýnt í þær leiðir sem hægt er að fara þegar kemur að fjármögnunarleiðum, svo sem utanaðkomandi fjárfestum.
Leiðbeinandi: Þór Clausen, MSc, sérfræðingur í stofnun fyrirtækja með áherslu á fjármál
Dagsetning: 17. og 22. nóvember kl. 17:15 - 20:15
Samningatækni
Í samningatæknihlutanum verður lögð áhersla á að þátttakendur geti samið við birgja og aðra aðila á sanngjarnan hátt þegar út í
fyrirtækjarekstur er komið. Byrjað er á að útskýra hvað samningatækni gengur út á og hvernig skal beita almennri skynsemi til að finna út hvernig hún virkar í daglegu lífi. Farið er í útgangspunkt (e. reservation point) seljenda og kaupenda sem og markmiðspunkt (e. Target price) seljenda og kaupenda og hvernig hægt er að nýta þessi tól til árangursríkra samningaviðræðna. Undirbúningur fyrir samninga er ekki síður mikilvægur og fá þátttakendur góð ráð þegar kemur að einu mikilvægasta ferli góðra samningaviðræðna. Win-win samningamennska er ekki síður mikilvæg og verður gerð góð skil á námskeiðinu.
Leiðbeinandi: Sigurður Ragnarsson, MBA og stundakennari við Viðskiptadeild HR
Dagsetning: 24. nóvember kl. 17:15 - 20:15
Samskipta- og kynningarhæfni – hópnum skipt niður á tvo daga
Á síðasta námskeiðinu fá þátttakendur góða punkta þegar kemur að kynningu hugmynda sinna fyrir fjárfestum og öðrum. Líkamsstaða, raddbeiting og fleira verður tekið fyrir og þátttakendur fá heimaverkefni áður en komið er í tímann. Eiga þeir að semja kynningu með hjálp power point, flytja fyrir þátttakendur og leiðbeinanda og fá ráð um það sem betur má fara. Það er ekki nóg að gera hina fullkomnu viðskiptaáætlun, heldur þarf einnig að selja hugmyndina og gera hana trúverðuga.
Leiðbeinandi: María Ellingsen, BA í leiklist frá NYU, leikstjóri og fjölmiðlakona
Dagsetning: 28. og 29. nóvember kl. 17:15 - 20:15 (hópnum skipt niður á tvo daga)

