Viðskiptaáætlanakeppni fyrir konur

Frá viðskiptaáætlun til framkvæmdar

Námskeiðið í hnotskurn

ViðskiptaáætlanirOpni háskólinn í HR, Íslandsbanki og FKA (Félag kvenna í atvinnurekstri) hafa tekið höndum saman og komið á fót viðskiptaáætlanakeppni fyrir konur. Opni háskólinn tekur að sér að halda námskeið í gerð viðskiptaáætlana og hefjast þau þann 1. nóvember 2011. Eru þau níu talsins og standa yfir í þrjá tíma í senn. Námskeiðið er því alls 27 klukkustunda langt og stendur til 29. nóvember 2011.

Kennsla fer fram í Opna háskólanum á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17:15 - 20:15.

Íslandsbanki niðurgreiðir 50% af námskeiðsgjaldi og þarf ein kona með viðskiptaáætlun því aðeins að greiða 45.000 kr. fyrir þátttöku í staðinn fyrir 90.000 kr. Tvær konur með eina viðskiptaáætlun greiða aðeins 74.250 kr. fyrir tvö sæti á námskeiðið í staðinn fyrir 148.500 kr. Við skráningu á námskeiðið þarf að skrá annað nafnið undir "Annað sem umsækjandi vill koma á framfæri" ef tvær konur sækja um saman. 

Eftir að námskeiðinu lýkur, fá þátttakendur um einn og hálfan mánuð til að fullklára viðskiptaáætlanir sínar sem síðan verða metnar af matsnefnd. Þá verða 5 bestu viðskiptaáætlanirnar valdar og komast þær áfram í vinnustofu undir leiðsögn færustu aðilanna á þessu sviði. Að lokum verður besta áætlunin valin og hlýtur hún 2.000.000 kr. í styrk frá Íslandsbanka.

Í boði er faglega unnið námskeið þar sem leitast er við að bjóða þátttakendum bestu kennara sem völ er á í faginu.

Inntökuskilyrði: Þátttakandi þarf að hafa viðskiptahugmynd til að vinna með. Skila þarf inn grófri skilgreiningu á hugmyndinni á einni síðu við skráningu í flipanum "Fylgiskjöl". Þátttakandi skuldbindur sig til að vinna að gerð viðskiptaáætlunarinnar heima. Hugmyndin fær ekki inngöngu á námskeiðið, hafi hún unnið til verðlauna eða hlotið styrk af einhverju tagi.

Skipulag námskeiðs og kennarar

Uppspretta viðskiptahugmynda og frumkvöðlastarfs - 1. nóvember 2011

Leiðbeinendur: Hinir ýmsu aðilar og frumkvöðlar úr atvinnulífinu, s.s. Lukka frá Happ, Sóley frá Sóley Organics, Halldóra Gyða frá Íslandsbanka og Þóranna Jónsdóttir frá HR, áður hjá Auði Capital.

Stefnumótun og uppbygging fyrirtækisins - 3. nóvember 2011

Leiðbeinandi: Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Markaðsgreiningin - Markhópurinn og samkeppnisaðilar - 8. nóvember 2011

Leiðbeinandi: Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Lagaleg atriði við stofnun fyrirtækis - 10. nóvember 2011

Leiðbeinandi: Anna Linda Bjarnadóttir, hdl, eigandi lögmannsstofunnar Lexista.

Gerð markaðs- og söluáætlunar - 15. nóvember 2011

Leiðbeinandi: Árni Árnason, stundakennari við viðskiptadeild HR og vörumerkjastjóri hjá Vífilfelli.

Fjármálin - 17. og 22. nóvember 2011

Leiðbeinandi: Þór Clausen,MSc, sérfræðingur í stofnun fyrirtækja með áherslu á fjármál.

Samningatækni - 24. nóvember 2011

Leiðbeinandi: Sigurður Ragnarsson, MBA og stundakennari við Viðskiptadeild HR.

Samskipta- og kynningarhæfni - 29. nóvember 2011

Leiðbeinandi: María Ellingsen, leikkona og blaðamaður með mikla reynslu af því að kenna framsögn og framkomu.

 

Nánari lýsingar á einstaka námskeiðum má finna hér

 

Nánari upplýsingar veitir:

saerunoskOHSærún Ósk Pálmadóttir

Verkefnafulltrúi Opna háskólans

s. 599-6342

Netfang: saerunosk@ru.is








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica