Tryggingaskólinn

Vátrygginganám Opna háskólans hefur verið unnið í samstarfi við íslensk vátryggingafélög frá haustinu 2007. Námið skiptist í þrjú námskeið sem mynda eina samfellu, samtals 135 klst. frá hausti 2011 fram á vor 2012.

 

Tryggingaskólinn hefst á haustönn

 

Farið er í gegnum grundvallaratriði í lögfræðilegri aðferðafræði og réttarheimildir í íslenskum rétti. Farið er yfir reglur opinbers réttar um vátryggingastarfsemi og tengd réttarsvið, starfsemi eftirlitsaðila og grundvallaratriði í stjórnskipunar- og stjórnsýslurétti. Ítarlega er síðan farið í grunnreglur skaðabóta- og vátryggingaréttar þannig að nemendur læri að leysa úr álitamálum sem geta komið upp í störfum sem tengjast vátryggingastarfsemi.

Í lok náms ættu nemendur að:

  • Vera í stakk búnir til þess að takast á við mismunandi störf á sviði vátryggingastarfsemi.
  • Þekkja réttarheimildir í íslenskum rétti sem og sérstaklega lög og reglur sem tengjast með beinum hætti vátryggingastarfsemi.
  • Hafa öðlasat færni í að leysa úr álitamálum með lögfræðilegri aðferðafræði.

 

Umsjón með náminu hafa dr. Guðmundur Sigurðsson deildarforseti við Lagadeild HR og Þóra Hallgrímsdóttir stundakennari við sömu deild. 

 

Námskeið I - Grunnnámskeið

Á grunnnámskeiðinu er byrjað á að fara yfir meginþætti í námstækni, samningatækni og viðskiptasiðfræði. Í kjölfarið er farið yfir helstu sjónarmið í lögfræðilegri aðferðarfræði og nemendum er kynnt hvernig eigi að leysa raunhæf verkefni. Í kjölfarið er farið yfir helstu atriði í lögum um vátryggingasamninga nr. 30/2004 um hvernig vátryggingasamningur kemst á, upplýsingaskyldu vátryggingafélaga og vátryggingartaka og önnur atriði sem varða allar tegundir trygginga, bæði skaðatrygginga og persónutrygginga. Að lokum er farið yfir helstu skilyrði skaðabótaábyrgðar í íslenskum rétti, sakarregluna og víðtækar bótareglur og tengsl skaðabótaréttarins við vátryggingar.

Dags: 29. ágúst - 14. október 2011

Námskeið II

Á öðru námskeiðinu er farið yfir helstu þætti bótareglna umferðarlaga og ökutækjatrygginga og sérkenni ábyrgðartrygginga. Ítarlega er farið yfir hvað eigi að greiða í bætur vegna tjóna, sérstaklega líkamstjóna m.t.t. ákvæða skaðabótalaga nr. 50/1993.

Dags: 24. október - 9. desember 2011

Námskeið III

Á síðasta námskeiðinu er farið yfir sérreglur sem gilda í lögum um vátryggingarsamninga nr. 30/2004 um annars vegar skaðatryggingar og hins vegar persónutryggingar. Einnig er fjallað sérstaklega um einstakar tegundir eignatrygginga annars vegar og persónutrygginga hins vegar, þ.á.m. slysatryggingar og líf- og sjúkdómatryggingar. Auk þessa er farið yfir starfsemi eftirlitsaðila og ákvæði þeirra laga sem tengjast þeirri starfsemi, t.d. lög um vátryggingastarfsemi, persónuupplýsingar og persónuvernd, samkeppnisreglur, neytendavernd o.fl. Einnig er fjallað um endurtryggingar og tryggingastærðfræði í tengslum við rekstur vátryggingafélaga.

Dags: 16. janúar - 7. mars 2012

 

Kennslufyrirkomulag:

Kennt er á mánudögum og miðvikudögum frá 8:30-11:30. Kennsla fer fram í formi fyrirlestra og eftir atvikum í hópavinnu.

Ætlast er til þess að nemendur mæti í allar kennslustundir og skili öllum verkefnum. Forföll skal tilkynna sérstaklega til verkefnastjóra.

Námið stendur til boða í fjarnámi en gert er ráð fyrir viðveru fjarnema í Reykjavík tvisvar á vetri (staðarlotur) auk þess sem allir nemendur þurfa að þreyta munnleg próf í Reykjavík í lok hvers námskeiðs.

Staðarlotur:

Mánudagur 29. ágúst - þriðjudags 30. ágúst 2011.

Miðvikudagur 30. nóvember - föstudags 2. desember 2011.

Vinsamlegast athugið:

  • Námið er einkum ætlað þeim sem starfa á sviði vátryggingarstarfsemi, svo sem starfsfólki vátryggingafélaga og starfsfólki lögmannsstofa

  • Námið er ekki metið til ETCS-eininga á háskólastigi

  • Mælt er með því að námskeiðin séu tekin í einni samfellu en hægt er að semja við Opna Háskólann um að nemendur taki stök námskeið

  •  



Verð krónur 289.000.-*

 

SKRÁNING HÉR

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst  2011

Forföll og innheimta

Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að rukka kr. 50.000 í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námi innan tveggja vikna áður en námið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði skriflega a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

elisabet

Elísabet Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
elisabet@ru.is

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica