Stærðfræði

FagMennt Opna háskólans í samstarfi við FrumgreinaMennt bjóða upp á hraðnámskeið í stærðfræði ( rúmfræði). Námskeiðið byggir á áföngum 3103 og 4103.

  

Hornaföll: Hornafallareglur, tengsl hornafalla, summuformúlur, formúlur fyrir tvöföldun og helmingun horns, þáttunar- og liðunarformúlur, hornafallajöfnur og lotubundnar sveiflur.
Fylki : Skilgreining fylkja og reikniaðgerðir, meðhöndlun mynda í plani .
Keilusnið :  Þrívítt kartesískt (rétthyrnt) hnitakerfi og vigrar í rúmi.
Vigrar : Innfeldi, krossmargfeldi og rúmfeldi. Línur og sléttur í rúmi. Stikajöfnur og stikaform lína og slétta. Vigurföll og lýsing hreyfingar í þrívíðu rúmi.
Hnitakerfi:  Ýmsar gerðir hnitakerfa, s.s. sívalningshnit og kúluhnit. Fjarlægðir og horn í þrívíðu hnitakerfi.

 

Námsmarkmið:

Stefnt er að því að nemendur:

  • kunni reglur um hornaföll af summu og mismuni horna og ýmsar reglur sem af þeim má leiða og kunni að beita þeim
  • þekki pólhnit og geti umritað pólhnit í kartesískt hnit og öfugt
  • þekki fylki og kunni helstu reikniaðferðir, margföldun fylkja, ákveður og þekki nokkur dæmi um nýtingu þeirra
  • þekki framsetningu vigra í þrívíðu rúmi og kunni að nota reiknireglur sem um þá gilda, s.s. innfeldi og krossmargfeldi
  • þekki framsetningu á línu og sléttu í rúminu og geti beitt þessum hugtökum til að reikna stefnur og fjarlægðir í rúminu
  • þekki og kunni að meðhöndla vigurföll í plani og í rúmi, m.a. við að lýsa hreyfingu agnar í rúmi.
  • kunni skilgreiningar á keilusniðunum og framsetningu þeirra.
  • Kunni skil á nokkrum gerðum hnitakerfa, s,s, sívalningshnit og kúluhnit og geti skipt á milli hnitakerfa

 

Fyrirkomulag:

Námskeiðið er frá  26. apríl  - 7. júní  2010. Alls 90 kennsluklukkustundir

kennsla fer fram á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl. 17:00 - 21:35

Próf þriðjudaginn 15. júní

Gildir 4,5 einingar

Inntökuskilyrði: Stúdentspróf og 15-18 einingar í stærðfræði

Verð krónur 90.000 .-

 

Skráðu þig hér

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR:

Birna BjörnsdóttirBirna Björnsdóttir
Sími: 599 6316begin_of_the_skype_highlighting              599 6316begin_of_the_skype_highlighting              599 6316      end_of_the_skype_highlighting      end_of_the_skype_highlighting
birnabj@ru.is
FagMennt.is

 

ATH: Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:

  • Fullt nafn.
  • Kennitala.
  • Símanúmer.
  • Tölvupóstfang.
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi.

 

*ATH: Fagmennt áskilur sér rétt til þess að rukka 5.000 króna umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði skriflega amk. viku fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur Fagmennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.

 

ATH: Það er mjög mikilvægt að skoða þá greiðsluskilmála sem eiga við um hvert námskeið.

 

EFST á síðu








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica