Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti reksturs og fjármála lítilla og millistórra fyrirtækja (SME). Sérstök áhersla er að námskeiðið nýtist einnig þeim sem ekki starfa við fjármál dagsdaglega. Lögð er áhersla á lifandi kennslu þar sem þátttakendur fá tækifæri til að vinna að hagnýtum verkefnum sem þeir geta nýtt sér beint í starfi eða stofnun eigin fyrirtækis.
Markmið námsins er að auka færni þátttakenda í fjármálum og rekstri lítilla og miðlungsstórra fyrirtækja.
Fyrir hverja?
- Fyrir alla þá sem hafa áhuga á því að vita meira um almennan rekstur og stjórnun lítilla og miðlungsstórra fyrirtækja
- Fyrir þá sem hafa áhuga á því að auka þekkingu sína á fjármálum í rekstri fyrirtækja
- Fyrir alla þá sem eiga, vinna fyrir eða eru að hugsa um að stofna lítið til miðlungsstórt fyrirtæki
Ávinningur
-
Hagnýt þekking sem nýtist strax
-
Aukin hagnýtt kunnátta í fjármálafræðum
-
Skilja betur hlutverk og ferli fjármála í rekstri fyrirtækja
-
Öðlast betri skilning á tengslum fjármála við aðra þætti í rekstri fyrirtækis
Námskeiðið skiptist í eftirfarandi hluta
Samninga- og samskiptatækni (9 klst.)
Besti árangur í samningum næst með réttum undirbúningi og með því að vera meðvitaður um eigin styrk og veikleika þegar kemur að krefjandi samskiptum. Með verkefnum, æfingum o.fl. munu þátttakendur fá góðan skilning á mikilvægum þáttum samningatækni, skoða hvernig samningamenn þeir eru í raun, hverju má breyta til að ná betri árangri og hvernig samskiptatækni hefur áhrif í samningum. Sérstök áhersla verður lögð á hegðun og lausn vandamála í tengslum við samningamennsku.
Leiðbeinandi: Sigurður Ragnarsson, BA, MBA, stundakennari við Viðskiptadeild HR.
Stofnun og rekstur (9 klst.)
Hvað þarf að gera þegar hefja á rekstur og hvað ber að varast. Farið verður í gegnum helstu þætti sem hafa þarf í huga þegar hafist er handa við rekstu fyrirtækja. Samband markaðsmála og fjármagns, gerð kostnaðargreininga og fjárhagslegs eftirlits. Kenndir eru grunnþættir rekstrarstjórnunar og birgðastjórnunar ofl.
Leiðbeinandi: Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Fjármálastjórnun (3 klst.)
Helstu þættir fjármálastjórnunar eru kenndir, grunnhugmyndir um arðsemismat og hvernig slíkt er notað í ákvörðunartöku. Farið er í hvar fjármagn er bundið í rekstrinum og hugmyndir um hvernig hægt er að losa slíkt. Kynntar eru grunnhugmyndir um góða stjórnunarhætti í tengslum við innkaup, samþykkt reikninga og greiðslur og hvað ber að varast í því ferli. Leiðbeinandi: Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Verkefnastjórnun (9 klst.)
Farið verður yfir grundvallaratriði í aðferðarfræði verkefnastjórnunar og gerð verkefnisáætlunar sem grundvöll að góðri verkefnastjórnun. Fjallað er um greiningu á umhverfi verkefna, hagsmunaaðila og áhættugreiningu. Farið er í markmiðasetningu verkefna, niðurbrot verkefna í verkþætti, æviskeið, ræs og lúkningu, meginrás og vörður. Einnig verður fjallað um hlutverk verkefnastjórans sem leiðtoga og framkvæmdastjóra í verkefnum. Á þessu námskeiði er ekki fjallað um tölvuforrit.
Leiðbeinandi: Kristín L. Bjarnadóttir, MPM í verkefnastjórnun, BSc í viðskiptafræði frá HR og BEd frá Kennaraháskóla Íslands.
Bókhald og ársreikningar (18 klst.)
Farið verður yfir grunnþætti bókhalds, bókun kostnaðar og tekna, virðisaukaskatt og ýmsa aðra skatta, útreikning launa, tæknileg atriði varðandi stofnun félags og félagaform. Að lokum verður farið yfir ársreikning fyrirtækis og kennitölur tengdar ársreikningum.
Leiðbeinandi: Lúðvík Þráinsson, sérfræðingur hjá Deloitte.
Stjórnun (6 klst.)
Leitast verður við að spurningunni „Hvað er stjórnun?“ Farið yfir grunnþætti stjórnunar, viðskiptaumhverfið, siðferði, ábyrgð, hópa, samfélagsleg ábyrgð, breytingastjórnun og stjórnunarstíla. Blandað saman fræðilegum skilgreiningum og raunhæfum dæmum auk reynslu nemenda sjálfra. Verkleg æfing með þátttöku allra.
Leiðbeinandi: Sverrir Arngrímsson, framkvæmdastjóri hjá Birtíngi.
Markaðsfræði (6 klst.)
Farið er í gegnum grunnþætti markaðsfræðinnarr: Að skilja grunnþætti markaðsstarfs, greina markaðsumhverfið, þekkja neytendur, byggja og viðhalda sterkum vörumerkjum, setja saman tilboð til viðskiptavina og koma þeim tilboðum til skila. Markmiðið er að breyta því hvernig nemendur horfa á markaðsmál og skilji mikilvægi þeirra í starfsemi fyrirtækja.
Leiðbeinandi: Árni Árnason, markaðsfræðingur og kennari við viðskiptadeild HR.
Fyrirkomulag
- Námskeiðið hefst 17. janúar 2012 og lýkur 22.mars 2012.
- Kennt er tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl: 17:15-20:15.
- Á vorönn 2012 verður líka boðið upp á Rekstarar- og fjármálanám í fjarnámi. Vinsamlega hafið samband við verkefnastjóra til að fá frekari upplýsingar um fyrirkomulag.
Verð kr.: 172.500.-
Nánari upplýsingar veitir

Elísabet I. Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri
elisabet@ru.is
Sími: 599 6296
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

