Lífsviðhorf - Lífstíll - Lífsgæði

Opni háskólinn í HR býður í fjórða sinn upp á heildrænt og árangursmiðað nám sem snýr að uppbyggingu einstaklingsins og persónulegri færni (personal development).


Audur_epliNámið byggir meðal annars á rannsókn sem framkvæmd var á vegum Gallup í yfir 150 löndum*. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að með því að vinna að því að bæta helstu undirstöðuþætti í lífi okkar samtímis í stað þess að einblína á einn sérstakan, getum við aukið lífsgæði okkar og persónulega færni umtalsvert. Þessir þættir snúa að lifnaðarháttum okkar, samskiptum, andlegri og líkamlegri vellíðan, atvinnu og tómstundum, fjárhagslegu öryggi og samfélagslegri ábyrgð.

Markmið námsins er að hvetja þátttakendur til að víkka sjóndeildarhringinn og setja sér markmið en á sama tíma að læra að njóta augnabliksins og efla persónulegan árangur með því að veita því athygli hvaða þættir það eru sem gefa lífinu gildi.

Leiðbeinendur hafa víðtæka reynslu og þekkingu á sviði mannræktar.

OECD opnar hamingjukvarða. 

* Wellbeing. The Five Essential Elements.Tom Rath og Jim Harter, Phd. Gallup Press (2010).

Allar_wellbeingNámið byggir að miklu leyti á virkni þátttakenda. Í upphafi fá þátttakendur afhenta dagbók / verkefnabók þar sem þeir eru beðnir um að skrá m.a. upplifun sína, vangaveltur og markmið meðan á námi stendur.

Þátttakendur fá að auki tvær klst með markþjálfa (coach). Markþjálfi hefur það að markmiði að laða fram það besta í viðmælanda sínum. Markþjálfun má beita á ýmsa vegu bæði tengt vinnu og einkalífi og miðar sérstaklega að því að bæta árangur einstaklinga og skipulagsheilda.

 

Fyrir hverja

Námið er fyrir alla þá sem vilja auka færni sína og árangur m.a. á sviðum fjármála, heilsu, samskipta og samfélagslegar ábyrgðar. Námið hentar því einnig þeim sem hafa nú þegar náð árangri en vilja gera enn betur og þeim sem vilja láta gott af sér leiða og stækka tengslanetið.

 

Námið samanstendur af sjö námskeiðum:

 

Persónuleg færni

„Nothing happens without personal transformation“  - W.E. Deming

Fyrsta námskeiðið hefst með stuttri kynningu á þeirri hugmyndarfræði sem námið í heild sinni byggir á. Kynntar verða aðferðir til að efla frumkvæði, skipuleggja sig og vinna að markmiðum og stefnu. Námskeiðið byggir á lausnum Franklin Covey – 7 venjur til árangurs (7 habits for highly effective people). Námskeiðið miðar að því að skerpa framtíðarsýn, forgangsraða verkefnum og skilja betur eigin hlutverk.

 

Í leit að hamingjunni

Hvað er hamingja? Spurningin er sennilega jafngömul mannkyninu og margir fremstu hugsuðir heims hafa glímt við hana. Sitt sýnist hverjum, en eitt hafa allir verið sammála um; hamingjan hefur mismunandi merkingu fyrir hvern og einn. Hamingjufræðin eða jákvæða sálfræðin er ekki úr lausu lofti gripin. Fræðin byggja á fjölda rannsókna sem fjalla meðal annars um hvað þeir sem eru hamingjusamir eiga sameiginlegt. Í námskeiðinu er skoðað hvernig við getum aukið hamingju okkar. Farið verður yfir þá þætti sem virðast skipta mestu máli til að fanga hamingjuna í lífi og starfi og  hjálpa okkur að byggja upp ánægjulegra og eftirsóknarverðara líf. Þátttakendur fá verkfæri í hendur sem þeir geta nýtt sér í hamingjusmíð sinni.

 

Innihaldsrík samskipti

Skoðað verður hvernig okkar nánustu samskipti og vinatengsl hafa áhrif á vellíðan okkar og hvernig við getum bætt þau með jákvæðu hugarfari. Fjallað verður um hvað felst í því að vera sönn manneskja og þá sammannlegu þörf að finna merkingu með lífi sínu. Fjallað verður um eðli valds og samskipti karla og kvenna. Gerðar verða æfingar til að styrkja framkomu og tjáningu.

 

Styrkleikar og starfsánægja

"Once you do something you love, you never have to work again" - Willie Hill

Rætt  er um mikilvægi þess  að þekkja eigin styrkleika, byggja á þeim og rækta sjálfan sig. Fjallað um einkenni  þeirra sem ná árangri í verkefnum sínum og ýmsar leiðir til að ná árangri í þeim  mörgu hlutverkum sem við sinnum daglega. Forgangsröðun og markmiðssetningu í eigin lífi.  Boðið er upp á áhugasviðskönnun þar sem þátttakendur tengja eigin niðurstöðu við starfssvið, tómstundir og starfsánægju.

  

Hugur, líkami og líðan

"Ekkert gerist fyrr en eitthvað hreyfist" - Albert Einstein

Farið verður yfir það hvernig hreyfing í hinni margbreytilegu mynd og næringarríkt mataræði getur stuðlað að vellíðan.

  • Fyrsti hluti

Við erum andlegar verur með líkamlega reynslu.

Jóga/sameining er þúsund ára gömul mannrækt sem leitast við að koma á jafnvægi á líkama huga og sál. Ógnarhraði nútímans hefur leitt af sér streitu, eirðarleysi og ofvirkann huga. Skapandi hugur er kyrrlátur hugur. Jóga færir okkur nær því heildræna, skapar tengingu milli þess líkamlega og andlega.

Skoðuð verða jógafræðin og hvernig þau eiga erindi við okkur í dag. Lögð verður áhersla á öndun, æfingar, hugleiðslu, núvitundaræfingar og opnað fyrir vitundarglugga sálarinnar. 

  • Annar hluti

"The greatest wealth is health" - Virgil

Fjallað verður um ávinning hreyfingar fyrir líkamlega, andlega og félagslega vellíðan fólks. Fjallað verður sérstaklega um þrautseigju og verndandi þætti í lífi einstaklinga á álagstímum, með áherslu á mikilvægi hreyfingar.

  • Þriðji hluti

Fjallað verður um næringu, heilsu og skilning á næringargildi matar. Fjallað verður um hvernig hollt mataræði getur aukið orku bæði í leik og starfi.

  • Fjórði hluti

Fjallað verður um ávinning hreyfingar fyrir líkamlega vellíðan fólks og mikilvægi þess að flétta hreyfingu inn í dagleg störf og frítímaiðju. Í því sambandiverður rætt um hvaða helstu þættir hafa áhrif á hreyfingu einstaklinga en einnig um árangursríkar og einfaldar aðferðir til heilsueflingar. Erindið endar á léttri hálftíma göngu í Nauthólsvíkinni og eru þátttakendur því hvattir til að vera klæddir til útiveru í samræmi við veðurfar.

 

Samfélagið - þátttaka og áhrif

"Be the change you want to see in the world" - Mathma Gandhi

Fjallað verður um samfélagslega virkni, félagslega frumkvöðla, sjálfboðaliðastarf, söfnunarátök, stofnun hópa eða félaga um ákveðin málefni og það hvernig hver einstaklingur getur látið til sín taka. Við kennsluna verður m.a. stuðst við stuttar sögur og myndbönd, auk þess sem nemendum verður skipt í hópa sem ætlað að leysa ákveðin verkefni.

 

Farsæl fjármál

Leitast er við að svara spurningunum hvort við þurfum peninga til að vera hamingjusöm og hvort hægt sé að kaupa hamingjuna. Kynnt er hugmyndafræði þeirra Rath og Harter um að þrennt skipti máli til að stuðla að farsæld í fjármálum:

1. Að kaupa á upplifun

2. Að njóta auðæfa sinna með öðrum

3. Að búa til sjálfvirk kerfi yfir greiðslur og sparnað

Einnig er fjallað um lykilþætti sem mikilvægir eru í fjármálum heimilisins:

  • Stefnumótun og yfirsýn yfir fjármálin
  • Ráðstöfunartekjur
  • Útgjöld (neysla og afborganir lána)
  • Skuldir
  • Sparnaður (með sérstakri áherslu á lífeyrissparnað)
  • Mikilvægi trygginga

 

Umræður og samantekt

 

Markmið

Salome_jogaEftir námskeiðið eiga þátttakendur að:

  • Þekkja helstu tæki og tól sem geta hjálpað við að bæta lífsgleði og persónulega færni og árangur
  • Þekkja styrkleika sína
  • Vita hvað þarf til þess að bæta samskipti við aðra
  • Hafa myndað persónulega stefnumótun og markmið
  • Hafa öðlast aukinn skilning á grunnþáttum í fjármálum einstaklingsins
  • Þekkja þau atriði sem stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan, efla heilsu okkar og hreysti
  • Skilja hvernig margt smátt getur gert eitt stórt þegar kemur að samfélagslegri velferð

 

Kennsla og fyrirkomulag

Næsta námskeið hefst í september 2012. Nánari dagsetningar væntanlegar.

Námskeiðið stendur yfir í 11 vikur.
Kennt er einu sinni í viku frá kl.16:30 og í 3 klst í senn.
Námskeiðið er alls 36 klst., þar af 34 klst. kennsla og 2 klst. með markþjálfa.

 

Verð er kr. 135.000,-*

 

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIÐ HÉR

 

Nánari upplýsingar

Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
Sími: 599 6358

 

Umsagnir fyrrum þátttakendum:


,,Ég er minn  lífsförunautur og gerandinn í mínu lífi.  Námskeiðið kynnti fyrir mér verkfæri sem rannsóknir sýna að virka og geta aukið velferð. Við höfum val þegar kemur að velferð okkar.
Ég vil nýta mér þessa þekkingu  til að auka enn betur lífsfærni mína."

- Anna Sigríður Pétursdóttir þátttakandi á námskeiðinu á vorönn 2012

 

,,Námskeiðið er á góðri leið með að breyta lífi mínu. Er á leiðinni í nám á nýjum vettvangi, nokkuð sem ég hef lengi haft brennandi áhuga á en aldrei ,,þorað" fyrr en nú!"

-Unnur Alma Thorarensen


*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta kr. 25.000,- í skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði með minna en tveggja vikna fyrirvara áður en það hefst.
Ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði með minna en einnar viku fyrirvara áður en námsskeið hefst áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica