Grunnþættir í fréttamennsku
Námskeiðið hefst á almennri umfjöllun um fjölmiðla. Farið er yfir gagnrýna hugsun, siðfræði, ritstjórnarlegt frelsi og sjálfstæði fréttamanna. Ólíkar stefnur fjölmiðla eru kynntar og aðferðafræði. Einnig er farið yfir heimildaöflun og mikilvægi trúnaðar. Upplýsingalög eru kynnt, siðareglur fjölmiðla, túlkun tölfræðilegra heimilda og niðurstöður.
Leiðbeinandi:
Þórhallur Gunnarsson, fyrrverandi dagskrárstjóri RÚV og Kastljóss
Námsmat:
Fyrirlestrarform, umræður, hópavinna og einstaklingsverkefni.
Verklegur hluti
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig frétt er unnin, nemendum er kennt að gera skil á grunnþáttum kvikmyndatöku, notkun á hljóði, lýsingu og eftirvinnslu frétta og innslaga.
Fjölmiðlar og siðfræði
Með námskeiðinu eru þátttakendur búnir undir að geta komið auga á spurningar sem lúta að siðferðilegu réttmæti ákvarðana og framgöngu fólks sem til umfjöllunar eru hverju sinni. Þá verður einnig fjallað um þau álitamál sem tengjast upplýsingagjöf, heimildarmönnum, nafnabirtingum og fleiru, en fjölmiðlamenn þurfa oft og tíðum að taka ákvarðanir sem tengjast þessum atriðum með einum eða öðrum hætti. Þá getur skipt sköpum að geta greint viðfangsefnin með verkfærum siðfræðinnar.
Markmið:
- Nemendur fái aukinn skilning á því hvað siðfræðileg röksemdafærsla felur í sér.
- Nemendur kynnist inntaki siðareglna BÍ.
- Nemendur geti greint og tekið ákvarðanir um siðferðileg álitamál í fjölmiðlun með yfirveguðum og upplýstum hætti.
- Nemendur læri að spyrja viðmælendur sína krefjandi siðferðilegra spurninga.
Leiðbeinandi:
Stefán Einar Stefánsson
Siðfræðingur
Lagadeild HR
Námsmat:
Fyrirlestrar og umræður, hópavinna og einstaklingsverkefni. Nemendur fullvinna tvær fréttir í samræmi við efni.
Stjórnskipun og stjórnsýsla
Á námskeiðinu verður farið yfir grundvallarhugmyndir í stjórnskipunarrétti og áhrif þeirra. Einnig verður farið í uppbyggingu stjórnsýslukerfinsins.
Markmið:
- Að þátttakendur hafi þekkingu á stjórnskipun landsins.
- Að þátttakendur hafi þekkingu á þeim grunnreglum sem stjórnsýslan þarf að gæta gagnvart borgurunum.
- Að þátttakendur tileinki sér gagnrýna hugsun og kunni að meta hvenær sé ástæða til þess að óska eftir sérfræðiþekkingu á sviði lögfræðinnar.
- Að þátttakendur kynnist réttarheimildum og lögskýringum.
- Að þátttakendur hafi þekkingu á því hvar megi nálgast réttarheimildir/lögskýringargögn (lög, lögskýringargögn, dóma o.s.frv.) og kunni að vísa til réttarheimilda með fullnægjandi hætti.
Leiðbeinandi:
Hulda Hákonardóttir, lagadeild HR
Námsmat:
Fyrirlestrarform, umræður , hópavinna og einstaklingsverkefni. Nemendur fullvinna tvær fréttir í samræmi við efni.
Túlkun efnahagsmála
Þjóðhagfræði og fjármálamarkaðir
Á námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði þjóðhagfræðinnar. Fjallað verður um þá þætti sem hafa áhrif á hagvöxt, verðbólgu, atvinnuleysi, vexti og gengi. Á námskeiðinu verður áhersla lögð á að þátttakendur skilji hlutverk hagstjórnar, bæði peningamálastjórnar og ríkisfjármálastjórnar. Einnig verður fjallað um fjármálakerfið og helstu stofnanir þess með áherslu á íslenskar aðstæður.
Markmiðið er að nemendur geti greint aðstæður og metið stöðu og horfur í efnahagsmálum. Að loknu námskeiðinu eiga nemendur að:
- Geta gert grein fyrir grunnhugtökum þjóðhagfræðinnar og þekkja hugtök á borð við margföldunaráhrif, peningastefnu, greiðslujöfnuð og raungengi.
- Hafa öðlast skilning á þeim þáttum er hafa áhrif á verðbólgu, atvinnuleysi, vexti, gengi og aðrar þjóðhagsstærðir.
- Geta metið áhrif stjórnvaldsaðgerða á hina ýmsu þætti hagskerfisins. Bæði hlutverk ríkis og sveitarfélaga sem og hlutverk Seðlabanka.
- Búi yfir grundvallarþekkingu á íslenskum fjármálamörkuðum og stofnunum þeirra.
- Geta leitað fanga í þeim gagnaveitum á vefnum sem safna upplýsingum um efnahagsástand og greina efnahagshorfur.
Leiðbeinendur:
Katrín Ólafsdóttir PhD., lektor í viðskiptadeild HR.
Námsmat:
Fyrirlestrarform, umræður , hópavinna og einstaklingsverkefni. Nemendur fullvinna tvær fréttir í samræmi við efni.
Fjármálalyklar
Í fyrri hluta námskeiðsins verður farið í reglur reikningshaldsins er lúta mati á liðum í rekstrar- og efnahagsreikningum fyrirtækja svo sem tekjum, kostnaðarverði seldra vara, afskriftum, óáþreifanlegum eignum s.s. viðskiptavild, fastafjármunum, frestuðum sköttum, viðskiptakröfum, birgðum, fjárfestingum í hluta- og skuldabréfum o.fl.
Í síðari hluta námskeiðsins verður lögð áhersla á lestur ársreikninga í greiningu þeirra atriða sem mestu máli skipta og þýðingu kennitöluútreikninga.
Markmið:
- Að gefa þátttakendum betri innsýn inn í þær meginreglur sem gilda um mælingar á afkomu og efnahag fyrirtækja.
- Gera þátttakendur hæfari til þess að fjalla um rekstrar- og uppgjörsleg málefni fyrirtækja í töluðu og rituðu máli.
- Gera þátttakendur hæfari til þess að meta skuldaþol fyrirtækja út frá kennitölugreiningum
- Gera þátttakendur hæfari til þess að bera saman afkomu félaga í sömu atvinnugrein
- Gera þátttakendur hæfari til lesturs ársreikninga og greina aðalatriðin frá aukaatriðum
Leiðbeinandi:
Ólafur Þór Jóhannesson, löggiltur endurskoðandi og framkvæmdastjóri Miðengis ehf.
Námsmat:
Fyrirlestrarform, umræður , hópavinna og einstaklingsverkefni. Nemendur fullvinna tvær fréttir í samræmi við efni.
Evrópumál
Á námskeiðinu verður fjallað um alþjóðastjórnmál og Evrópusambandið út frá margvíslegum hliðum. Saga evrópusamvinnu og evrópusamruna sl. 60 ár verða gerð skil. Fjallað verður um uppbyggingu Evrópusambandsins og helstu stofnanir þess einsog Framkvæmdastjórnarinnar, Ráðherraráðsins, Evrópuþingsins og Evrópudómstólsins. Ennfremur verður fjallað um ákvarðanatökuferli og hagmunagæslu innan sambandsins og mismunandi skoðanir aðildarríkjanna um hvert skuli stefna. Ennfremur verður fjallað um náin tengsl Íslands við Evrópusambandið þá sérstaklega EES-samninginn og einstaka þætti sem snerta hagsmuni Íslands sérstaklega.
Markmið
- Að þátttakendur öðlist skilning á því hvernig Evrópusambandið og EES -samningurinn virka.
- Að þátttakendur geti metið sjálfstætt mismunandi hagsmuni ríkja.
- Hafi þekkingu á þeim breytingum sem verða við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
- Að þátttakendur öðlist færni í að spyrja gangrýninna spurninga á viðkomandi málefnasviði.
Leiðbeinandi
Leiðbeinandi er Kristján Vigfússon forstöðumaður Evrópufræða við HR.
Námsmat:
Fyrirlestrarform, umræður , hópavinna og einstaklingsverkefni. Nemendur fullvinna tvær fréttir í samræmi við efni.
Fréttamennska, samantekt og lokaverkefni
Námskeiðið endar á því að nemendur skila af sér tíu mínútna öflugri fréttaskýringu. Sem er lokaverkefni í námslínunni þar sem nemendur eiga að nýta sér þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér í námskeiðinu.

