OPNI HÁSKÓLINN BÝÐUR UPP Á HAGNÝTT, FAGLEGT OG VERKLEGT NÁM Í FJÖLMIÐLUN SAMHLIÐA VINNU
Markmið námsins er að auka fagþekkingu nýrra fjölmiðlamanna og þeirra sem huga á fjölmiðlastörf, einkum á sviði viðskipta- og lögfræði, auk þess að efla færni í vinnslu og miðlun efnis um ljósvakamiðla. Verðandi og vaxandi fréttamenn fá tækifæri á að nema þá fagkunnáttu, list og siðfræði fréttamennsku með fræðimönnum Háskólans í Reykjavík og reyndu kunnáttufólki úr heimi innlendrar fjölmiðlunar.
Sérstaða námsins liggur í hagnýtu eðli námsins, sterkum tengslum við atvinnulífið og fræðilegum grunni. Námið er í senn fræðilegt og hagnýtt en byggir að miklu leyti á verklegum æfingum þar sem reynir á fagþekkingu þátttakenda í grunnþáttum viðskipta og lögfræði s.s. hagfræði, stjórnsýslu og siðfræði. Þátttakendur fá einnig undirstöðuþekkingu og færni í fréttavinnslu, samtalsfærni, skriffærni og tæknikunnáttu. Námið á sér ekki hliðstæðu á Íslandi.
Að námi loknu eiga þátttakendur að vera vel í stakk búnir undir sérhvert starf sem tengist atvinnugreininn. Mikil áhersla er lögð á að þátttakendur geti nýtt þá þekkingu sem þeir afla sér á beinan hátt í núverandi eða framtíðarstarfi. Einnig er mikil áhersla á að nemendur geti lært hver af öðrum og miðlað reynslu sinni. Kennarar hafa víðtæki og akademíska reynslu.
Kennslufyrirkomulag
Kennsla er lifandi og fer fram í umræðuformi, hópavinnu, einstaklingsverkefnum. Nemendur þurfa að undirbúa sig fyrir tíma skila af sér fréttum í samræmi við efni. Námið stendur yfir í eina önn. Kennt er í lotum sem byggjast upp á fyrirlestrum, umræðum, hópavinnu og einstaklingsverkefnum.
Námið er að miklu leyti verklegt og nemendahópurinn myndar eina ritstjórn sem vinnur fréttir líkt og um hefðbundinn fjölmiðil væri að ræða.
Hver verklegur tími byrjar á fundi þar sem rædd eru verkefni dagsins. Hópnum er síðan skipt upp og 2-3 nemendur vinna frétt allt frá því að afla upplýsinga og gagna, taka viðtöl og fullvinna síðan fréttina.
Verkefnum er einnig skipt upp með tilliti til þess hvort unnið er fyrir ljósvakamiðil, dagblað eða netmiðil.
Nemendur læra á þessa ólíku miðla og hvernig þeir starfa. Þeir verðar þjálfaðir í að nota kvikmyndatökuvélar, klippa myndefni og eftirvinnslu frétta og innslaga. Þeir læra einnig uppsetningu frétta fyrir dagblöð og netmiðla og noktun myndefnis fyrir þá miðla.
Skipulag náms
Námið skiptist í 7 hluta:
- Grunnþættir í fréttamennsku
- Evrópumál og alþjóðastjórnmál
- Fjölmiðlar og siðfræði
- Stjórnskipun og stjórnsýsla
- Fjármál fyrirtækja og stofnana
- Efnahagsmál
- Samantekt og lokaverkefni
Samhliða þessum námskeiðum þurfa nemendur að vinna fréttatengd efni og fá með því þjálfun í því að vinna raunhæfar fréttir tengdar þessum málaflokkum.
Nemendur munu reka fréttavefmiðil og birta þar allar sínar fréttir og rannsóknarverkefni.
Nánari upplýsingar:

Birna Björnsdóttir, verkefnastjóri
Sími: / 825 6316Tölvupóstur: birnabj@ru.is
Skráning
Áhugasamir þurfa að fylla út umsókn, skila inn greinargerð af hverju þeir hafa áhuga á náminu. Þátttakendur verða teknir í viðtal áður en þeir fá inngöngu í námið.
Verð krónur 370.000.-
*Nauðsynlegar upplýsingar við umsókn eru:
-
Fullt nafn
-
Kennitala
-
Tölvupóstfang
-
Símanúmer -helst GSM, heimasími og vinnusími
-
Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
-
Upplýsingar um menntun
-
Upplýsingar um reynslu
-
Fylgiskjöl eins og til dæmis ferilskrá, meðmælabréf og afrit af prófskírteinum eða viðurkenningarskjölum ef við á (ekki skilyrði).
Athugið;
-
Upplýsingar í umsókn eru notaðar til þess að meta fólk inn í námið. Nauðsynlegt er að fylla út ALLAR helstu upplýsingar svo hægt sé að meta umsækjendur hlið við hlið.
-
Fylgiskjöld eru einungis ætluð til þess að bæta við það sem ekki kemur fram annarstaðar. Fylgiskjöl eru EKKI skilyrði. Ef umsækjandi hefur fleira en eitt fylgiskjal sem hann/hún vill skila inn skal viðkomandi sameina þau áður en þeim er bætt við umsókn.
-
ÖLLUM gögnum skal skila rafrænt.
*ATH: Ef umsækjandi hættir við umsókn eða hyggst ekki sitja nám af einhverjum ástæðum er nauðsynlegt að að láta vita skriflega a.m.k viku áður en námið hefst. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess að innheimta 10.000 króna skráningar- og umsýslugjald. Ef nemanda láist að skrá sig úr náminu eða skráir sig úr náminu eftir að það hefst áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt gjald.
Hér til vinstri eru ítarlegri upplýsingar um námið, samstarfsaðila og tímalína.

