Hagnýtar upplýsingar


Opni háskólinn (OH) er staðsettur á 2. hæð skólans í Mars álmu. Móttaka OH er opin alla virka daga á milli kl. 8:30 og 16:00. Kennslustofur sem tilheyra OH eru M215, M216 og M217.

Nemendur Opna háskólans hafa aðgang að kaffi- og vatnsvélum í sameiginlegu veitingarými á hæðinni.

Þráðlaust net

Vefur: help.ru.is
Þar er hægt að finna upplýsingar varðandi tæknimál og leiðbeiningar við uppsetningu á þráðlausu neti fyrir öll helstu stýrikerfi (undir Knowledgebase).
Í upphafi náms útvegar Opni háskólinn nemendum námsbrauta aðgang (notendanafn og lykilorð) að þráðlausu neti.

Móttaka HR

Þjónustuborðið í Sólinni (aðalinngangur skólans að framanverðu) – almenn þjónusta við gesti, nemendur og starfsmenn.
Opnunartími: kl. 8:00 - 17:00 alla virka daga.
Aðalsímanúmer skólans: 599 6200. Skiptiborðið er opið frá kl. 8:00 til 17:00.

Greiðslumöguleikar

Fyrir þá sem það vilja þá býður fjármáladeild HR uppá raðgreiðslur með kreditkortum. Ef óskað er eftir raðgreiðslu þarf greiðandi að hafa samband við fjármálasvið Háskólans í Reykjavík í síma 599 6200 eftir að reikningur hefur borist. Ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður eftir að nám er hafið. Sjá greiðsluskilmála.
Við bendum á að flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Nýttu þér tækifærið og kannaðu þinn rétt. Sjá möguleika á námsstyrkjum.

Málið

Málið er mötuneyti HR. Það er opið frá kl.8:00 til 18:00, mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 8:00 til 16:00 á föstudögum.
Sjá matseðil vikunnar á malid.hr.is.

Te & Kaffi

Te & Kaffi er með kaffihús í Sólinni. Það er opið frá kl. 8:00 til kl.20:00 alla virka daga þegar skólastarf er í gangi. Á laugardögum er opið frá kl. 9:30 til kl.16:30 og á sunnudögum er opið frá kl.11:00 til 16:00.

Heilsurækt

World Class heilsuræktarstöð er staðsett í kjallara í Sólinni. Í stöðinni er 200 fermetra fullbúinn tækjasalur. Nemendur sem eiga kort í stöðinni geta stundað heilsurækt þar allan sólarhringinn.

Bóksala stúdenta í Nauthólsvík

Boðið er upp á allar þær námsbækur sem kenndar eru í HR, handbækur og ritföng, auk ýmissa annarra bóka og tímarita. Allar bækur verða á sama verði og í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi og þær bækur sem aðeins eru til í búðinni á Háskólatorgi geta nemendur í HR pantað og þá verða þær komnar í HR-búðina í síðasta lagi næsta virka dag.
Opnunartími Bóksölunnar í Nauthólsvík er frá kl.10:30 til kl 17:00 alla virka daga.

Bókasafn

Nemendur námsbrauta Opna háskólans hafa aðgang að bókasafni HR sem staðsett er í Úranusi, á bakvið móttökuna í Sólinni. Þeir verða skráðir inn í gagnagrunn safnsins í upphafi náms og geta þar með leigt þar bækur meðan á námi stendur.
Bókasafnið er opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00 til 19:00, föstudaga frá kl. 8:00 til 17:00, laugardaga frá kl.10:00 til 16:00 og sunnudaga frá kl.11:00-16:00.

Ljósritunarvélar eru staðsettar fyrir framan bókasafnið. Nemendur geta keypt ljósritunarkort í móttöku skólans á 1. hæð í Sólinni. 200 blöð 1.100 kr. / 100 blöð 600 kr.

Les- og vinnuaðstaða nemenda

2. hæð Venus (Kassíópeia 1-4) og Sólin 2. hæð
2. hæð Venus (V.2.01) og Sólin 3. hæð
Gert er ráð fyrir því að á 3. hæðinni í Sólinni sé meira næði en á öðrum hæðum. Við biðjum ykkur vinsamlegast að virða það.
Hafi nemendur áhuga á að fá lánaðar almennar kennslustofur Opna háskólans til prófundirbúnings eða verkefnavinnu er hægt að hafa samband við verkefnastjóra.

Námsráðgjöf

Stúdentaþjónustan er staðsett á 1. hæð í Úranus. Opnir viðtalstímar náms- og starfsráðgjafa eru í boði alla daga nema föstudaga, ekki þarf að bóka tíma í opna viðtalstíma. Til að bóka viðtal á öðrum tíma er hægt að senda tölvupóst til námsgráðgjafa sth@ru.is.
Opnir viðtalstímar eru alla daga nema föstudaga frá kl.13:30 til 16:00.

Náms- og prófareglur HR    

Nemendum er bent á að kynna sér reglur Háskólans í Reykjavík varðandi náms- og prófareglur en þær er að finna á heimasíðu HR hér.

Siðareglur HR

Við minnum þátttakendur á námskeiðum Opna háskólans að þeir eru bundnir sömu siðareglum og aðrir nemendur HR en þær má sjá hér.

Sjúkra- og endurtektarpróf

Við minnum þátttakendur á námskeiðum Opna háskólans að þeir eru bundnir sömu siðareglum og aðrir nemendur HR en þær má sjá hér.









Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica