fagmennt

Næstu námskeið

17.04.2012 - 18.04.2012 Fagmennt - ekki virkur

Sköpunargleði

Besta leiðin til að fá góða hugmynd er að fá margar. Hugmyndir spretta í frjóum jarðvegi þar sem þær fá þá næringu og umhyggju sem þær þurfa til að spíra og síðar blómstra. Tilgangur námskeiðs í sköpunargleði er að gera þátttakendur að hugmyndabændum sem fá hugmyndir, geta greint úr þeim og hlúð að þeim bestu svo þær vaxi og dafni.

Námskeiðið tekur til dæmis á samskiptum innan fyrirtækja og stofnana, hvernig hömlum sköpunargleði er rutt úr vegi, hvað skopskyn og leikur skiptir miklu máli og hvernig megi afla hugmyndum fylgi meðal fólks. Gleðin verður við stjórnvölinn, hugmyndaflæðið virkjað og miðað er að því að í enda námskeiðsins geti fólk snúið aftur til vinnu með nýja hugsun
sköpunargleðinnar og jafnvel raunhæf og hagnýt verkefni til að hrinda í framkvæmd, því sköpunargleði er forsenda nýsköpunar.

 







  • Fagmennt - þekking í þágu þjóðar

    Vits er þörf þeim sem víða ratar. FagMennt Opna háskólans þjónar einstaklingum með hagnýtum námskeiðum til að auka færni og fagþekkingu.

  • Viðskipti um vefinn

    þverfaglegt nám um viðskiptahætti á netinu sem gefur innsýn í tæknilega, markaðslega og rekstrarlega þætti í farsælum viðskiptum um vefinn.
    Hefst 5.mars 2012

  • Rekstrar- og fjármálanám

    Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti reksturs og fjármála lítilla og millistórra fyrirtækja (SME).
    Hefst 17.janúar 2012

  • Lífsviðhorf - Lífstíll - Lífsgæði

    Heildrænt og árangursmiðað nám sem snýr að uppbyggingu einstaklingsins og persónulegri færni.
    Hefst 17. janúar 2012

  • Excel fyrir lengra komna

    Á námskeiðinu verður farið yfir mörg þeirra atriða sem starfsmenn þurfa að kunna til að geta nýtt Excel á markvissan máta í sínu starfi.
    Hefst í febrúar 2012

  • Námsbrautir

    Námsbrautirnar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og auka við menntun sína.
    Opið fyrir umsóknir

  • Stök námskeið á háskólastigi

    Hagnýt námskeið á háskólastigi samhliða vinnu. Námskeiðin henta þeim sem vilja auka samkeppnishæfni sína og bæta við sig þekkingu án þess að fara í fullt nám.
    Opið fyrir umsóknir


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica