Hagnýt vinnusálfræði

HAGNÝT VINNUSÁLFRÆÐI

Námskeiðslýsing

Vinnusálfræðin tekur á mörgum þáttum í samskiptum einstaklinga við vinnuumhverfið og því er kennslunni í  vinnusálfræði skipt upp í þrjá hluta bæði til aðgreiningar og til að ná yfir hugtakið Vinnusálfræði. 

  • Vinnusálfræði: Vinnusálfræði sem fræðigrein, mannþáttafræði. Hönnun vinnuumhverfis, streita. Öryggi og heilsa á vinnustað. Rannsóknir, aðferðir og túlkun
  • Persónuleika sálfræði: Einstaklingsmunur,  mat og greining.Teymisvinna, ágreiningur og þekkingarstarfsmaðurinn. Ráðgjöf – Þróun
  • Skipulagssálfræði: Starfshvati, starfsánægja og samskipti. Menning í fyrirtækjum. Jafnrétti, pólitík á vinnustað og áreitni. Þróun fyrirtækja. Áskoranir í starfsumhverfi

 

Hæfniviðmið

Leitast verður við að gefa nemendum fræðilega yfirsýn yfir vinnusálfræðina sem vísindagrein og kynnast helstu kenningum í fræðunum.  Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að nýta sálfræðilega þekkingu og aðferðir við að ná árangri fyrirtækja í gegnum starfsmenn.  Einnig verður leitast við að nemendur læri að leysa hagnýt vandamál tengd mannlegum þáttum á vinnustað og öðlist  leikni í  að lesa vísindagreinar og kynna niðurstöður kannana.

 

Námsmat 

Verkefni 60%

Próf 40%

 

Kennsluaðferðir

Fyrirlestrar, verkefnavinna og gestafyrirlesarar.

 

Lesefni

Robbins & Judge, (13. útg. 2009). Organizational Behaviour. Pearson.

Fjölritað efni frá kennara og tímaritsgreinar. Ítarefni: Journal of occupational and organizational psychology.

 

Kennari

Anna María Pétursdóttir M.Sc. Starfsmannastjóri Vífilfells hf.

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á vorönn 2011.
Námskeiðið hefst 11. janúar.
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl.16:30 - 20:00 og einn laugardag í mánuði kl.9:00 - 13:00.
Námskeiðinu lýkur 10. febrúar.

 

Verð kr. 77.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur er til 20. desember 2010.

  

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Þetta námskeið gefur ígildi ECTS eininga og samsvarar 6 ECTS einingum. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af hinum fimm akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica