REKSTRARSTJÓRNUN
Námskeiðslýsing
Rekstrarstjórnun fjallar um framleiðslu vara og þjónustu. Fjallað er um hvernig hlutverk og markmið rekstrarins er skilgreint út frá stefnu fyrirtækis, jafnframt áhrif rekstrarstjórnunar á stefnu fyrirtækis. Þá er fjallað um helstu aðferðir og hugmyndafræði í hönnun ferla, vöru og þjónustu. Ennfremur um áætlanagerð og stýringu t.d. afkastagetu, birgða, aðfangakeðja. Þá er fjallað um verkefnastjórnun, gæðaeftirlit og stjórnun. Loks er fjallað um umbætur í rekstri og gæðastjórnun.
Námskeiðið er hluti af námsbraut í Flutningafræði.
Lærdómsviðmið
Að nemendur:
- Geti skilgreint hlutverk og markmið rekstrarstjórnunar í skipulagsheildum.
- Þekki aðferðir við hönnun ferla, vöru, þjónustu og helstu aðferðir og áætlanagerð og stýringu í rekstri. Stýring afkastagetu og stýring birgða.
- Kunni skil á aðfangakeðjum og hugmyndafræði Lean og JIT.
- Hafi innsýn í verkefnastjórnun, gæðaeftirlit og gæðastjórnun.
- Þekki til aðferða við umbætur í rekstri, TQM, Six Sigma og ISO 9000 staðla og vottunar.
Námsmat
Verkefni 40%
Lokapróf 60%
Kennsluaðferðir
Kennsla verður í formi fyrirlestra, verkefnavinnu, dæmatíma og umræðna.
Lesefni
Operations management. Slack, Nigel (2008).
Kennari
Reynir Kristjánsson, MSc í efnaverkfræði, stundakennari við viðskiptadeild HR.
Dagsetningar
Námskeiðið er kennt á vorönn 2012
Námskeiðið hefst 16. apríl 2012
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:30-20:00
Námskeiðinu lýkur með prófi 21. maí 2012
Verð kr. 81.000,-
SÆKJA UM HÉR
* Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2012.
Þátttökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.
Mat námskeiðs til eininga
Námskeiðið er á háskólastigi og samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi, en það veitir ekki ECTS einingar. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Elísabet Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
elisabet@ru.is
Sími: 599 6296

