Námskeiðið er ígildi 6 ECTS eininga.
Námskeiðslýsing
Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Annars vegar að efla persónufærni einstaklinga og sjálfsmat með það fyrir augum að auka færni þeirra sem mögulegra starfsmanna í ferðaþjónustu. Hins vegar að skoða uppbyggingu og mat á þjónustugæðum í ferðaþjónustu og hlutverk starfsfólks í því sambandi. Horft er til þess að auka færni nemenda í samskiptum og auka vitund þeirra um mikilvægi þjónustu í samskiptum við viðskiptavini. Nemendur greini eigin styrkleika og veikleika og framtíðarmöguleika hvað snertir störf í ferðaþjónustu.
Ath. Staðarlota með áherslur og æfingar í samningatækni og menningarmun.
Námsmarkmið
Að námskeiði loknu ættu nemendur að:
- Hafa eflt persónufærni sína og hæfni til árangursríkra samskipta.
- Hafa eflt eigið sjálfsmat og skilning á styrkleikum og veikleikum.
- Hafa aukinn skilning á mikilvægi gæða í þjónustu og samskiptum í ljósi mismunandi menningar.
- Hafa fengið innsýn í mælingu þjónustugæða.
- Fengið aukinn skilning á atvinnutækifærum í ferðaþjónustu.
- Fengið innsýn í samningatækni.
Námsmat
Verkefni 40%
Próf 60%
Kennsluaðferðir
Kennsla verður í formi hljóðfyrirlestra og verkefnavinnu. Staðarlota þar sem fjallað verður um samningatækni og samskipti í ljósi menningarmuns.
Kennarar
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, M.s. stundakennari við HR og framkvæmdarstjóri og ráðgjafi hjá HRM rannsóknum og ráðgjöf.
Dagsetningar
Námskeiðið er kennt á haustönn 2009.
Kennsla hefst 4. nóvember.
Námskeiðið stendur yfir í 5 vikur.
Verð kr. 77.000,-
SÆKJA UM HÉR
* Umsóknarfrestur er til 25. október
Þátttökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.
Mat námskeiðs til eininga
Námskeiðið er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er átt við tímasókn, próf, prófundirbúning, verkefnavinnu og undirbúning fyrir tíma. Óski nemandi eftir að fá námskeiðið metið er honum bent á að kynna sér vel reglur viðkomandi skóla og/eða deildar.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353

