Markaðssetning og sala í ferðaþjónustu

Námskeiðið er ígildi 6 ECTS eininga.

 

Námskeiðslýsing

Farið er í grundvallarhugtök markaðsfræðinnar með tilliti til ferðaþjónustu og stefnumótun fyrirtækja þátt markaðsfræðinnar í henni. Einnig er farið í markaðsrannsóknir, hvaða upplýsingar má nálgast um ferðaþjónustu hér á landi og spáð í framtíðarhorfur ferðaþjónustunnar. Fjallað er um vörur, verðlagningu, dreifingu, kynningu og söluferla ýmissa þjónustuþátta og horft til ákvörðunarferla og kauphegðunar ferðamanna á ýmsum mörkuðum, bæði á Íslandi og erlendis. Nemendur munu vinna heildstæða markaðsáætlun fyrir ákveðna vöru og/eða þjónustu. 

 

Námsmarkmið

Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemar:

  • Þekki og geti skilgreint grunnþætti markaðsfræðinnar með tilliti til ferðaþjónustu.
  • Geri sér grein fyrir mikilvægi faglegs markaðsstarfs í rekstri fyrirtækis
  • Geti mótað stefnu fyrirtækis
  • Geti gert greiningu á ytra og innra umhverfi fyrirtækis
  • Noti greiningar á ytra og innra umhverfi til að skapa samkeppnisforskot á markaði
  • Geti leitað að markaðsupplýsinga á netinu og unnið úr gögn sem skipa máli fyrir fyrirtækið
  • Kynnist söluráðunum sjö og kynningaráðunum fimm
  • Fái innsýn í starfsemi starfandi ferðaþjónustufyrirtækis
  • Geti sett upp heilstæða markaðsáætlun fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu
  • Geti tengt fræðin við það sem er að gerast í íslenskri ferðaþjónustu í dag

 

Kennsluaðferðir

Hljóðfyrirlestrar úr kennslubók Kotler (et. al), vikulegar umræður á neti, einstaklingsverkefni og hópverkefni ásamt staðarlotu með gestum úr atvinnulífinu. 

 

Leiðbeinandi

Edda Sólveig Gísladóttir, markaðsstjóri Bláa Lónsins. B.Sc í rekstrardeild frá Háskólanum á Akureyri og M.Sc International Marketing frá Strathclyde University í Glasgow. 

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á vorönn 2010.
Kennsla hefst 3. maí 2010.
Námskeiðið stendur yfir í 5 vikur.

 

Verð kr. 77.000,-

 

* Umsóknarfrestur er til 26. apríl 2010.

 

SKRÁNING HÉR

 

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Námskeiðið er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er átt við tímasókn, próf, prófundirbúning, verkefnavinnu og undirbúning fyrir tíma. Óski nemandi eftir að fá námskeiðið metið er honum bent á að kynna sér vel reglur viðkomandi skóla og/eða deildar. 

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica