MARKAÐSFRÆÐI
Námskeiðslýsing
Farið er í gegnum grunnþætti markaðsfræðinnar. Námskeiðið byggir á fjórum meginþáttum í bók Kotlers: Að skilja grunnþætti markaðsstarfs. Að greina markaðstæki. Að setja saman tilboð til viðskiptavina og stýringu og framkvæmd markaðsþátta. Í lok námskeiðsins eiga nemendur að hafa öðlast skilning á mikilvægi markaðsstarfs í daglegri starfsemi fyrirtækja og hafa næga innsýn til að móta og framfylgja markaðsáætlun.
Lærdómsviðmið
Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemendur:
- Hafi skilning á grunnþáttum markaðsfræðinnar
- Skilji hlutverk markaðsfræðinnar í rekstri fyrirtækja
- Hafi góða hugmynd um hvernig á að útbúa markaðsáætlun og hvernig henni er framfylgt.
Námsmat
Lokapróf 70%
Hópaverkefni 20%
Stöðupróf 10%
Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar og umræður.
Lesefni
Marketing Management, Kotler, Philip 2003 – Prentice Hall. Ýmsar greinar og ljósrit.
Kennari
Árni Árnason, MA í markaðssamskiptum, eigandi markaðsþjónustufyrirtækisins Árnasynir og stundakennari við viðskiptadeild HR.
Dagsetningar
Námskeiðið hefst 1.mars 2012
Kennt er á mánudögum kl.16:30 - 20:00 og fimmtudögum kl. 16:30 - 20:00
Námskeiðinu lýkur með prófi 4. apríl 2012
Verð kr. 81.000,-
* Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2012.
Þátttökuskilyrði
Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.
Mat námskeiðs til eininga
Námskeiðið er á háskólastigi og samsvarar um 150 - 180 klst í vinnuframlagi, en það veitir ekki ECTS einingar. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn, próftaka, prófundirbúningur, verkefnavinna og undirbúningur fyrir tíma. Óski nemandi eftir að námskeið frá Opna háskólanum verði metin inn í nám við eina af fjórum akademísku deildum HR verður nemandinn fyrst að fá inngöngu inn í viðkomandi deild. Deildir HR hafa mismunandi reglur varðandi mat á námi og er nemendum bent á að kynna sér vel reglur þeirra um mat á ECTS einingum.
Forföll og innheimta
FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála
Nánari upplýsingar
Elísabet Þorvaldsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR
elisabet@ru.is
Sími: 599 6296

