Markaðsáætlanagerð

Námskeiðið er ígildi 6 ECTS eininga.

 

Námskeiðslýsing

Haldgóð þekking á markaðsáætlunum er mikilvæg fyrir stjórnendur nútímans.  Þeir þurfa að gera sé grein fyrir mikilvægi þess að ferlið við gerð markaðsáætlana sé unnið á faglegan hátt sem og þurfa þeir að standa á bak við áætlunina þegar henni er hrint í framkvæmd.  Í námskeiðinu verður nemendum kennt að taka saman upplýsingar um þá þætti sem tilheyra markaðsáætlunum og nemendum verður sýnt fram á hverju markaðsstarf getur áorkað. Markaðsstefna og aðgerðir tengdar henni verða kynntar og fjallað um hvernig innleiða ber markaðsstefnuna á árangursríkan hátt.  

ATH. Gert er ráð fyrir að nemendur séu með einhvern grunn í markaðsfræðum og/eða reynslu af markaðmálum í starfi.

 

Námsmarkmið

Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemar:

  • Skilji mikilvægi stefnumarkandi áætlunargerðar í markaðsstarfi.
  • Skilji mikilvægi markaðsáætlana í markaðsstarfi fyrirtækja.
  • Þekki grundvallarhugtök tengd markaðsáætlunum.
  • Öðlist færni í gerð markaðsáætlana og þekki greiningarverkfæri.

 

Námsmat

Hópverkefni 60%.
Lokapróf 30% - nemendur verða að ná að lágmarki 5.0 á lokaprófi til að fá aðra vinnu á önninni metna.
Verkefnavinna og þátttaka í tímum 10%.

 

Kennsluaðferðir

Kennsla verður að mestu í fyrirlestrarformi en hópverkefni verður unnið jafnt og þétt yfir námstímann.  Þ.e. yfirferð í kennslubók er miðuð við að unnið sé samhliða að markaðsáætluninni.  Hluta af flestum kennslustundum verður því varið í að hóparnir vinni að sinni áætlun.  Því er afar sterklega mælst til þess að nemendur hafi alltaf lesið þá kafla sem á að fjalla um í tímanum, sem og annað efni sem kennari leggur fyrir til að fyrirlestrar, nýtist nemendum sem best við gerð markaðsáætlunarinnar. 

 

Lesefni

Bók:  Marketing Planning; Principles into Practice eftir Marian Burk Wood.

 

Kennari

Friðrik Larsen, Lektor við viðskiptadeild HR.

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á haustönn 2009.
Námskeiðið hefst 9. nóvember.
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:30-20:00.
Námskeiðið stendur yfir til 9. desember.

 

Verð kr. 77.000,-

 

SÆKJA UM HÉR

 

* Umsóknarfrestur til 30. október 2009.

 

Þátttökuskilyrði

Stúdentspróf, sambærileg menntun eða haldbær reynsla af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Námskeiðið er ígildi 6 ECTS eininga. Á bakvið hverja ECTS einingu eru áætlaðar 25-30 stundir í vinnuframlag. Við mat á vinnuframlagi er átt við tímasókn, próf, prófundirbúning, verkefnavinnu og undirbúning fyrir tíma. Óski nemandi eftir að fá námskeiðið metið er honum bent á að kynna sér vel reglur viðkomandi skóla og/eða deildar. 

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica