Mannauðsstjórnun

Námskeið metið til 6 ECTS eininga.

 

Námskeiðslýsing

Fjallað er um stefnumiðaða mannauðsstjórnun, breytingar á vinnumarkaði, áhrif þess á stjórnun starfsmannamála.  Farið er í ferli mannauðsstjórnunar frá ráðningu til starfsloka. Áhersla er lögð á tengsl mannauðsstjórnunar við stefnumótun fyrirtækja og stofnana, rétta verkaskiptingu almennra stjórnenda og starfsmannadeilda og mælingar á árangri. Verklegar æfingar og lausn raundæma er ætlað að þjálfa ýmiss atriði námsins.

 

Meðal efnistaka er

  • Breytingastjórnun
  • Alþjóðleg mannauðsstjórnun
  • Stefnumiðuð mannauðsstjórnun
  • Starfsmannastefna
  • Hlutverk mannauðsdeilda og stjórnenda
  • Ráðningarferlið
  • Móttaka nýliða
  • Frammistöðumat
  • Starfsánægja

 

Námsmarkmið

Að námskeiðinu loknu er stefnt að því að nemar:

  • Fái góða yfirsýn yfir hvernig markviss og stefnumiðuð mannauðsstjórnun getur aukið árangur, framlegð og starfsánægju.
  • Öðlist þekkingu á hagnýtum þáttum mannauðsstjórnunar, s.s. breytingastjórnun, mótun starfsmannastefnu, ráðningum, móttöku nýliða, frammistöðumati, starfslokum ofl. þáttum.
  • Geti sett skýr markmið í mannauðsstjórnun og í tengslum við stefnu fyrirtækisins.

 

Dagsetningar

Námskeiðið er kennt  á haustönn 2009.
Kennsla hefst 24. ágúst.
Kennt er á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16:30 til 20:00.
Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur.

 

Kennari

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir, MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Ráðgjafi hjá Attentus og er annar höfundur bókarinnar Starfsánægja.

 

Verð

Námskeiðið kostar kr. 77.000,-

 

 

* Umsóknarfrestur á námskeiðið er til 20. ágúst 2009

 

 

Þátttökuskilyrði

Þar sem námskeiðin eru á háskólastigi þurfa þátttakendur að vera með stúdentspróf, sambærilega menntun eða haldbæra reynslu af vinnumarkaði.

 

Mat námskeiðs til eininga

Námskeiðið er metið til 6 ECTS eininga. Vilji viðkomandi halda áfram metur skólinn tekin námskeið enda er um fullgildar háskólaeiningar að ræða sbr. ECTS staðalinn. Sá fyrirvari er þó settur á að hvert tilvik sé skoðað sérstaklega og að einkunn sé að lágmarki 7. Umsækjandi þarf að biðja sérstaklega um að fyrri einkunn sé metin í námið – slíkt gerist ekki sjálfkrafa.

 

Forföll og innheimta

FagMennt áskilur sér rétt til þess að rukka 10.000 króna skráningar og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan viku áður en námskeið hefst. Nauðsynlegt er að skrá sig úr námskeiði a.m.k. 2 dögum fyrir námskeið. Að öðrum kosti áskilur FagMennt sér rétt til þess innheimta fullt námskeiðsgjald.
Sjá greiðsluskilmála

 

Nánari upplýsingar

Salóme Guðmundsdóttir
Verkefnastjóri hjá Opna háskólanum
salomeg@ru.is
Sími: 599 6353








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica