fagmennt

Næstu námskeið

11.04.2012, kl.9:00 - 15:00 Fagmennt

Greiningar á hegðun neytenda (Customer Analytics)

Sífellt meiri kröfur eru gerðar til stjórnenda að sýna fram á skýran ábata af þeim kostnaði sem settur er í markaðsmál.
Námskeiðið fjallar um hvaða kennitölur eigi að mæla og fylgjast með, en áherslan er á að byggja upp upplýsingamiðaða markaðssetningu byggða á greiningu viðeigandi gagna. Farið verður í undirstöðuatriði í greiningum á neytendahegðun og hvernig hún getur leitt til mælanlegra markmiða í markaðssetningu sem vel er hægt að gera grein fyrir. Námskeiðið kynnir ýmis nauðsynleg tæki og tól og hvernig notkun þeirra er háttað hjá árangursríkum fyrirtækjum. Útskýrt verður hvernig fyrirtæki geta breytt gögnum í verðmæti með því að innleiða greiningar á viðskiptavinum í starfsemi sinni. Fjallað verður um strauma og stefnur í greiningum á viðskiptavinum og hvað þarf til að ná árangri á þessu sviði. Einnig verður fjallað um helstu greiningaraðferðir, verklag við greiningar, greiningarhugbúnað og herferðastjórnun. Sífellt fleiri fyrirtæki eru nú að innleiða greiningar á viðskiptavinum í grunnstarfsemi sinni. Þátttakendur munu fá innsýn í þetta ört vaxandi fag, hvert það stefnir og hvernig árangursrík innleiðing fer fram á Íslandi. Bókin Competiting on analytics eftir Thomas H. Davenport og Jeanne G. Harris er innifalin í námskeiðsgjöldum. Einnig gefst þátttakendum færi á að leysa verkefni á þessu sviði í tengslum við fyrirtæki sín og fá endurgjöf frá leiðbeinendum.



Dagur 1

1. Markaðssetning sem fjárfesting  (VS)

2. Neytendahegðun (nokkur raundæmi) – greiningar og markaðssamskipti (VS)

3. Nýjustu straumar og stefnur í greiningum (customer analytics) (BBJ)

4. Undirstöðuaðtriði greininga, DELTA skrefin og undirbúningur fyrir verkefni (BBJ)


Dagur 2

5. Lærdómsfyrirtæki: Tölfræðileg greining og gagnanám (BBJ)

6. Greiningarferlið, helstu aðferðir og tól (BBJ)

7. Mælingar í markaðssmálum og upplýsingakerfi (VS)

8. Markaðssetning byggð á gögnum (VS)


Leiðbeinendur:

Valdimar Sigurðsson (VS), dósent við Háskólann í Reykjavík

Brynjólfur Borgar Jónsson (BBJ), Capacent

Kennslufyrirkomulag:

Staður: Námskeiðið verður haldið í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Stund: Námskeiðið fer fram miðvikudagana 11. og 18. apríl frá kl. 9:00-15:00.

Lengd: Námskeiðið er 2 dagar x 6 klukkustundir =12 klukkustundir.

Lagt er fyrir verkefni meðan á námskeiði stendur.

Verð: 52.000,- kr*

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING

 







  • Fagmennt - þekking í þágu þjóðar

    Vits er þörf þeim sem víða ratar. FagMennt Opna háskólans þjónar einstaklingum með hagnýtum námskeiðum til að auka færni og fagþekkingu.

  • Viðskipti um vefinn

    þverfaglegt nám um viðskiptahætti á netinu sem gefur innsýn í tæknilega, markaðslega og rekstrarlega þætti í farsælum viðskiptum um vefinn.
    Hefst 5.mars 2012

  • Rekstrar- og fjármálanám

    Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti reksturs og fjármála lítilla og millistórra fyrirtækja (SME).
    Hefst 17.janúar 2012

  • Lífsviðhorf - Lífstíll - Lífsgæði

    Heildrænt og árangursmiðað nám sem snýr að uppbyggingu einstaklingsins og persónulegri færni.
    Hefst 17. janúar 2012

  • Excel fyrir lengra komna

    Á námskeiðinu verður farið yfir mörg þeirra atriða sem starfsmenn þurfa að kunna til að geta nýtt Excel á markvissan máta í sínu starfi.
    Hefst í febrúar 2012

  • Námsbrautir

    Námsbrautirnar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og auka við menntun sína.
    Opið fyrir umsóknir

  • Stök námskeið á háskólastigi

    Hagnýt námskeið á háskólastigi samhliða vinnu. Námskeiðin henta þeim sem vilja auka samkeppnishæfni sína og bæta við sig þekkingu án þess að fara í fullt nám.
    Opið fyrir umsóknir


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica