fagmennt

Næstu námskeið

16.04.2012 - 17.04.2012, kl.13:00 - 17:00 Fagmennt

Grunnatriði verkefnastjórnunar

Námskeiðslýsing:

Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði í aðferðafræði verkefnastjórnunar.
Unnið er með skilgreiningu á umfangi, innihaldi og markmiðum verkefna, niðurbrot verkefna í verkþætti, grunnatriði verkefnaferilsins, uppbyggingu verkefnaáætlunar, stöðugreiningar og vörður. Auk þess er unnið með hagsmunaaðila- og áhættugreiningar.

Fjallað verður um einkenni árangursríkra verkefna og hvað veldur því að verkefni misheppnast. Farið er yfir hlutverk verkefnastjóra, bakhjarla og liðsmanna, skoðuð lykilatriði í hópárangri, fundarstjórnun og eftirliti með framgangi verkefna. 

Á námskeiðinu vinna þátttakendur í hópum með verkefni eins þátttakenda. Verkefnið er brotið niður og sett upp í verkefnisáætlun sem viðkomandi þátttakandi fær með sér heim. Á þessu námskeiði er ekki fjallað um tölvuforrit.

Leiðbeinandi:

Þóra Valný Yngvadóttir er verkefnastjóri hjá Landsbankanum og hefur víðtæka reynslu af stjórnun og ráðgjöf. Þóra Valný lauk BA prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá Oxford Brookes University 1994 og hefur síðan bætt við sig þekkingu m.a. með löggildingarprófum í fjármálaráðgjöf, verðbréfaviðskiptum og stjórnun.

Kennslufyrirkomulag:

Staður: Námskeiðið verður haldið í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Stund: mánudaginn 2. og miðvikudaginn 4. apríl frá kl. 13.00-17.00.

Lengd: Námskeiðið er 8 klukkustundir.

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING

 







  • Fagmennt - þekking í þágu þjóðar

    Vits er þörf þeim sem víða ratar. FagMennt Opna háskólans þjónar einstaklingum með hagnýtum námskeiðum til að auka færni og fagþekkingu.

  • Viðskipti um vefinn

    þverfaglegt nám um viðskiptahætti á netinu sem gefur innsýn í tæknilega, markaðslega og rekstrarlega þætti í farsælum viðskiptum um vefinn.
    Hefst 5.mars 2012

  • Rekstrar- og fjármálanám

    Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti reksturs og fjármála lítilla og millistórra fyrirtækja (SME).
    Hefst 17.janúar 2012

  • Lífsviðhorf - Lífstíll - Lífsgæði

    Heildrænt og árangursmiðað nám sem snýr að uppbyggingu einstaklingsins og persónulegri færni.
    Hefst 17. janúar 2012

  • Excel fyrir lengra komna

    Á námskeiðinu verður farið yfir mörg þeirra atriða sem starfsmenn þurfa að kunna til að geta nýtt Excel á markvissan máta í sínu starfi.
    Hefst í febrúar 2012

  • Námsbrautir

    Námsbrautirnar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og auka við menntun sína.
    Opið fyrir umsóknir

  • Stök námskeið á háskólastigi

    Hagnýt námskeið á háskólastigi samhliða vinnu. Námskeiðin henta þeim sem vilja auka samkeppnishæfni sína og bæta við sig þekkingu án þess að fara í fullt nám.
    Opið fyrir umsóknir


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica