fagmennt

Næstu námskeið

28.03.2012 Fagmennt

Nýmiðlun - markaðssetning á netinu

Námskeiðslýsing


Skoðaðar eru helstu ástæður þess að markaðsfólk er í auknu mæli farið að snúa sér að Internetinu í viðskiptum og sem markaðstæki. Farið er í grunnhugtök tengd viðskiptum á netinu, uppbyggingu vefsvæða og markaðssetningu á netinu. Farið er vandlega í gegnum helstu leiðir og nýjungar sem eru boði á þessum vettvangi s.s. markaðssetning á leitarvélum (SEO), vefborðar, rafræn fréttabréf, markaðssetning á samfélagsvefjum ásamt því hvernig á að meta og mæla árangur í viðskiptum og markaðsstarfi á netinu.

Fyrir hverja


Námskeiðið hentar vel þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref eða vilja styrkja sig á þessu sviði þar sem farið er nokkuð hratt yfir áhrifaríkar leiðir til að ná árangri í markaðssetningu á netinu.

Leiðbeinandi


Gunnar Thorberg Sigurðsson, BSc í viðskiptafræði, MSc Management of eBusiness.

Kennslufyrirkomulag


Staður: Opni háskólinn í HR,  Menntavegi 1, Reykjavík
Stund: Námskeiðið fer fram milli kl. 16.30 og 19.30 eftirfarandi daga:

miðvikudagur 28. mars
mánudagur 2. apríl
miðvikudagur 4. apríl
mánudagur 9. apríl
miðvikudagur 11. apríl
mánudagur 16. apríl
miðvikudagur 18. apríl.

Lengd: 21 klukkustund (7x3 klst.)
Verð: 82.000.- kr.*

 

 NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING

 







  • Fagmennt - þekking í þágu þjóðar

    Vits er þörf þeim sem víða ratar. FagMennt Opna háskólans þjónar einstaklingum með hagnýtum námskeiðum til að auka færni og fagþekkingu.

  • Viðskipti um vefinn

    þverfaglegt nám um viðskiptahætti á netinu sem gefur innsýn í tæknilega, markaðslega og rekstrarlega þætti í farsælum viðskiptum um vefinn.
    Hefst 5.mars 2012

  • Rekstrar- og fjármálanám

    Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti reksturs og fjármála lítilla og millistórra fyrirtækja (SME).
    Hefst 17.janúar 2012

  • Lífsviðhorf - Lífstíll - Lífsgæði

    Heildrænt og árangursmiðað nám sem snýr að uppbyggingu einstaklingsins og persónulegri færni.
    Hefst 17. janúar 2012

  • Excel fyrir lengra komna

    Á námskeiðinu verður farið yfir mörg þeirra atriða sem starfsmenn þurfa að kunna til að geta nýtt Excel á markvissan máta í sínu starfi.
    Hefst í febrúar 2012

  • Námsbrautir

    Námsbrautirnar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og auka við menntun sína.
    Opið fyrir umsóknir

  • Stök námskeið á háskólastigi

    Hagnýt námskeið á háskólastigi samhliða vinnu. Námskeiðin henta þeim sem vilja auka samkeppnishæfni sína og bæta við sig þekkingu án þess að fara í fullt nám.
    Opið fyrir umsóknir


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica